25/02/2023
Þegar Tónabíó opnaði árið 1962 var það án efa eitt glæsilegasta kvikmyndahús á Íslandi. Eitt og annað hefur þó breyst í salnum gegnum tíðina. Líklega var salurinn tekinn í gegn uppúr 1980 og nýtt hljóðkerfi sett upp, hátalarar byggðir inn í vegginn og nýr panell á vegginn þar fyrir neðan fyrir hljóðvist.
Rekstur Tónabíós fór á hausinn um 1988 og Vinabær bingó opnaði þar í stað um 1990-91. Þá var uppröðuninni í salnum gjör-breytt; settir upp litlir básar þar sem bingóspilarar gátu setið við borð, sviðið minnkað talsvert og byggð þessi búr sitt hvoru megin á það.
Nú er aftur verið að vinna í salnum. Ekki á þó að breyta miklu eins og er, en það á að gera hann hæfan fyrir tónleikahald, uppistand, litlar ráðstefnur og slíkt. Fylgist með Tónabíói á næstunni!
Gömul mynd fengin hér https://www.facebook.com/photo.php?fbid=624680569674087&set=a.493034022838743&type=3