29/11/2022
Spennandi tímar framundan!
Við þökkum Reykjavíkurborg kærlega fyrir ómetanlegan stuðning við nýtt leikverk í smíðum hjá Leikhópnum NAT production! 👊🏽
Sástu pabba minn í sjónvarpinu um helgina? ,,Vík burt! Hið illa er enn að verki í veröldinni“ sagði hann og átti við allar þessar geðveiku konur, djöflana í mannsmyndum, úthrópandi yfir hið heilaga embætti hans. Ég vil að konurnar þagni og hætti að tala um pabba minn, af hverju eru þær að rifja upp eitthvað sem gerðist fyrir svo löngu síðan? Hvaða máli skiptir það í dag? Guð fyrirgefðu, viltu Appelsín?