Viður á viku

Viður á viku 52 vikur, 52 rennd verkefni, 52 viðartegundir. Myndir í hverri viku, allt árið 2023.

Verð á staðnum til kl.18 í dag, fimmtudag.
11/04/2024

Verð á staðnum til kl.18 í dag, fimmtudag.

Verð á staðnum á morgun, laugardaginn 6. apríl, frá kl. 14-17.Sjáumst! Opnunartímar eftir morgundaginn eru:•Sunnudagur 7...
05/04/2024

Verð á staðnum á morgun, laugardaginn 6. apríl, frá kl. 14-17.
Sjáumst!

Opnunartímar eftir morgundaginn eru:

•Sunnudagur 7. apríl - lokað
•Mánudagur 8. apríl kl. 10-15
•Þriðjudagur 9. apríl kl. 10-12.20 og 15- 19
Andri á staðnum kl.15-19
•Miðvikudagur 10.apríl kl. 10-15
•Fimmtudagur 11. apríl kl. 10-18
Andri á staðnum kl.15-18
•Föstudagur 12. apríl kl. 10 - 15
•Laugardagur 13. apríl kl. 12-18
•Sunnudagur 14. apríl - lokað
•Mánudagur 15. apríl kl. 12-18
Andri á staðnum kl.16-18
•Þriðjudagur 16. apríl kl . 12-18
Andri á staðnum kl.16-18
•Miðvikudagur FINISSHAGE 17. apríl kl 12-18
Andri á staðnum kl.15-18

Fimmtudaginn 04.04.24 opnar sýningin Viður á viku, opið frá kl.17-19.Þar verða verkefnin 52 til sýnis (og flest til sölu...
02/04/2024

Fimmtudaginn 04.04.24 opnar sýningin Viður á viku, opið frá kl.17-19.
Þar verða verkefnin 52 til sýnis (og flest til sölu) ásamt fróðleiksmolum og lyktarprufum af völdum viðartegundum.
Endilega kíkið við 😁
Opnunartímar frá 05.04-17.04 kynntir fljótlega.

Vika 52Hjartalind (Tilia cordata)Knöll - þvermál: 4,5cm, lengd: 28,5cm.Þá er þessu ársverkefni lokið!Takk fyrir að fylgj...
31/12/2023

Vika 52
Hjartalind (Tilia cordata)
Knöll - þvermál: 4,5cm, lengd: 28,5cm.

Þá er þessu ársverkefni lokið!
Takk fyrir að fylgjast með og gleðilegt nýtt ár 🥳

Vika 51Hengibjörk / Masúrbirki* (Betula pendula)Vasi - þvermál: 9cm, hæð: 10,5cm.*Masúrbirki er mjög skrautlegt, arfgeng...
25/12/2023

Vika 51
Hengibjörk / Masúrbirki* (Betula pendula)
Vasi - þvermál: 9cm, hæð: 10,5cm.

*Masúrbirki er mjög skrautlegt, arfgengt afbrigði af B. pendula, sem vex á ákveðnum stöðum í N-Evrópu (Karelía). Stykkið sem ég notaði kom frá Eistlandi.

Vika 50Perúsk hnota (Juglans ssp. (neotropica/australis/olanchana)Vasi - þvermál: 15,5cm, hæð: 15cm.
17/12/2023

Vika 50
Perúsk hnota (Juglans ssp. (neotropica/australis/olanchana)
Vasi - þvermál: 15,5cm, hæð: 15cm.

Vika 49Blóðheggur (Prunus padus var. rubra)Vasi - þvermál: 13cm, hæð: 17cm.
10/12/2023

Vika 49
Blóðheggur (Prunus padus var. rubra)
Vasi - þvermál: 13cm, hæð: 17cm.

Vika 48Íbenholt / Gabon Ebony (Diospyros crassiflora)Box með skopparakringluloki - þvermál: 5cm, hæð: 10,5cmAukahlutverk...
03/12/2023

Vika 48
Íbenholt / Gabon Ebony (Diospyros crassiflora)
Box með skopparakringluloki - þvermál: 5cm, hæð: 10,5cm
Aukahlutverk: (Masúr)Hengibjörk (Betula pendula) notað í toppinn á lokinu/skopparakringlunni.

Vika 47Púkkenholt / Viður lífsins / Genuine Lignum Vitae (Guaiacum officinale)SkrúfblýanturEinn harðasti og þyngsti viðu...
26/11/2023

Vika 47
Púkkenholt / Viður lífsins / Genuine Lignum Vitae (Guaiacum officinale)
Skrúfblýantur

Einn harðasti og þyngsti viður í heimi, með mjög sérstaka eiginleika. Var m.a. notaður í legur utan um skrúfuás á kjarnorkukafbátum og túrbínur í vatnsaflsvirkjunum án þess að þurfa neina smurningu, því viðurinn er svo olíuríkur.
Ein fyrsta viðartegundin til að vera skráð á lista CITES yfir tegundir í útrýmingarhættu (1975) og því mjög sjaldgæf.

Vika 46Kúbu mahogany* (Swietenia mahogani)Pizzaskeri - heildarlengd: 28,5cm, lengd á handfangi: 15cm, þvermál hnífs: 10c...
19/11/2023

Vika 46
Kúbu mahogany* (Swietenia mahogani)
Pizzaskeri - heildarlengd: 28,5cm, lengd á handfangi: 15cm, þvermál hnífs: 10cm.

*hið upprunalega mahogany, sem hefur verið bannað að flytja frá Kúbu síðan 1946 og illfáanlegt frá öðrum löndum.
Ekta mahogany er enn fáanlegt (Swietenia macrophylla) en yfirleitt er sá viður sem er seldur sem mahogany, óskyldur en líkur í útliti.

Vika 45Ilmreynir (Sorbus aucuparia)Skálasett - stærsta: þvermál 22cm, hæð: 9cm og minni tvær: þvermál 13cm, hæð 8,5cm.
12/11/2023

Vika 45
Ilmreynir (Sorbus aucuparia)
Skálasett - stærsta: þvermál 22cm, hæð: 9cm og minni tvær: þvermál 13cm, hæð 8,5cm.

Address

Reykjavík
108

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Viður á viku posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Featured

Share

Category