Portfolio Gallerí

Portfolio Gallerí Portfolio Gallerí
Listagallerí / Art gallery
Hverfisgata 71
101 Reykjavik

Verið hjartanlega velkominn á lokahóf sýningarinnar "Kveðja" með verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur. Að því tilefni verður...
07/12/2024

Verið hjartanlega velkominn á lokahóf sýningarinnar "Kveðja" með verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur. Að því tilefni verður boðið upp á léttar veitingar laugardaginn 7. desember frá kl 16:00 - 18:00. Galleríið opnar kl 14.00

Í dag er jafnframt síðasti sýningardagur Portfolio gallerís og munum við því einnig skála fyrir viðburðarríkum tíma og þeim frábæru móttökum sem galleríið hefur fengið.

Við þökkum öllum þeim sem hafa fylgst með sýningum gallerísins fyrir samfylgdina, samveruna og öll innihaldsríku samtölin. Við þökkum listamönnum sem sýnt hafa í galleríinu innilega fyrir samstarfið og óskum þeim velgengni í komandi verkefnum.

F.h. Portfolio galleri
Jenny Sigurgeirsdóttir
Sigurjón Sigurgeirsson
Sigthora Odins

7. desember 14:00 - 18:00 (lokadagur)

www.portfolio.is
[email protected]

🔴 Sýningin Kveðja, með verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur, stendur opin til 7. desember ----------Verk Kristínar eru fjölþ...
30/11/2024

🔴 Sýningin Kveðja, með verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur, stendur opin til 7. desember
----------

Verk Kristínar eru fjölþætt í tækni en byggja á klassískri hefð málaralistarinnar. Hún vinnur með teikningu, málun á pappír og striga, eggtemperu á tré með blaðgulli og saumuð verk á striga. Verk Kristínar eru í eigu helstu opinberra safna landsins, ásamt fjölda fyrirtækja og einkaaðila. Kristín hefur einnig verið stundakennari við Myndlistaskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands frá 2016. Hún hefur fengið ýmsar viðurkenningar fyrir list sína og var veitt fálkaorðan árið 2018 fyrir framlag sitt til myndlistar.

Gul doppa
Ull á striga
55x65 cm
2024

Abstraksjón
Ull á striga
80x80 cm
2024

Hringir
Ull á striga
45x50 cm
2024

Verið hjartnlega velkomin, Portfolio galleri Hverfisgötu 71. Opnunartímar gallerísins er fim - sun frá 14.00 - 18.00

www.portfolio.is
[email protected]

🔴 Við þökkum Kristínu Gunnlaugsdóttur og Elísabetu Jökulsdóttur kærlega fyrir listamannaspjallið í gær og við þökkum öll...
24/11/2024

🔴 Við þökkum Kristínu Gunnlaugsdóttur og Elísabetu Jökulsdóttur kærlega fyrir listamannaspjallið í gær og við þökkum öllum þeim sem lögðu leið sína til okkar í Portfolio gallerí fyrir komuna

Sýningin stendur til 7. desember og því enn tækifæri til að sjá sýningu Kristínar, Kveðja, á Hverfisgötu 71

Galleríið er opið fimmtudag - sunnudags milli kl 14.00 - 18:00

Verið innilega velkomin

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.portfolio.is, fyrirspurnir má senda á [email protected]

🔴 Við minnum á listamannaspjall Kristínar Gunnlaugsdóttur og Elísabetar Jökulsdóttur í dag kl 15.00. Verið hjartanlega v...
23/11/2024

🔴 Við minnum á listamannaspjall Kristínar Gunnlaugsdóttur og Elísabetar Jökulsdóttur í dag kl 15.00. Verið hjartanlega velkomin á sýninguna Kveðja sem stendur til 7. desember

Opið í dag og á morgun frá 14-18

www.portfolio.is
[email protected]

Listamannaspjall // Kristín Gunnlaugsdóttir - Elísabet JökulsdóttirVið bjóðum ykkur innilega velkomin á listamannaspjall...
21/11/2024

Listamannaspjall // Kristín Gunnlaugsdóttir - Elísabet Jökulsdóttir

Við bjóðum ykkur innilega velkomin á listamannaspjall nk laugardag kl 15:00. Kristín Gunnlaugsdóttir býður í samtal og segir frá tilurð verka sinna á sýningunni ,,Kveðja" í Portfolio galleri, Hverfisgötu 71. Elísabet Jökulsdóttir leiðir spjallið.

,,Í verkunum á sýningunni skapast innri spenna milli hinna fíngerðu en jafnframt frjálsu línuteikninga og hinna dökku viðarramma sem þær hvíla í. Það stafar ákveðinni dramatík frá þessum dimmu römmum. Gæti þetta hafa verið dregið með töngum úr brennandi rústum? Eru hér komnar leifar af vestrænni menningu sem hefur séð glæsta tíma en einnig hnignun og þrot?

Hugurinn hvarflar rúm 100 ár aftur í tímann, tímann sem snýst eins og hringur um hring og aldirnar sem spinnast um aldirnar í dularfullu samspili endurtekningar og nýjungar. 100 ár aftur í tímann, þegar að myndlistin var komin á þann stað að losna frá hinu þekkjanlega og tók flugið sem eindir sínar; línur, litir og form. Abstraksjón.

Listin endurskapar ekki það sem við sjáum. Hún lætur okkur sjá, er haft eftir myndlistarmanninum Paul Klee sem starfaði í byrjun síðustu aldar."
- Brot úr texta eftir Sigrúnu Hrólfsdóttur fyrir sýninguna Kveðja

Ljósmynd Sigurgeir Sigurjónsson

Raudur koss
Ull á striga
124 cm x 153 cm
2024

Nánari upplýsingar og sýningarskrá er að finna á www.portfolio.is, hægt er að senda fyrirspurnir á [email protected]

Við óskum Kristínu Gunnlaugsdóttur innilega til hamingju með sýninguna Kveðja og við þökkum öllum þeim sem lögðu leið sí...
20/11/2024

Við óskum Kristínu Gunnlaugsdóttur innilega til hamingju með sýninguna Kveðja og við þökkum öllum þeim sem lögðu leið sína á opnun kærlega fyrir komuna í Portfolio gallerí

Sýningin er opin fim - sun frá kl 14.00 til 18.00, verið velkomin á Hverfisgötu 71

www.portfolio.is
[email protected]

🔴 Við bjóðum ykkur innilega velkomin á opnun sýningar Kristínar Gunnlaugsdóttur, Kveðja, laugardaginn næstkomandi kl 16:...
14/11/2024

🔴 Við bjóðum ykkur innilega velkomin á opnun sýningar Kristínar Gunnlaugsdóttur, Kveðja, laugardaginn næstkomandi kl 16:00 í Portfolio galleri

Sýningin mun standa opin frá 16. nóvember til 7. desember

,,Rammarnir eru sumir flúraðir og bera þess merki að hafa búið við aðrar kringumstæður áður en þeir komu í það hlutverk sem þeir gegna nú. Kannski á fínu heimili eða í lítilli höll. Aðrar spýtur hér hafa haldið saman þungri steypu á meðan hún harðnaði og tók sig. Mótatimbur. Þetta eru grófar spýtur, óheflaðar með flísum.

Hin fínlega lína þráðarins er teikningin lifandi komin. Teikningin, grunnur myndlistar í gegnum árþúsundin missir aldrei gildi sitt. Tjáningin sem birtist í hraðri teikningu er nostursamlega endurframkölluð með nál og þræði. Nál er auðvitað eitt mesta galdratæki siðmenningarinnar. Hún getur saumað hluti saman. Og verið verkfæri fegurðarinnar og foringi hinnar þrívíðu línu þráðarins í striganum."
- Sigrún Hrólfsdóttir, brot úr texta fyrir sýninguna Kveðja

Verið innilega velkomin, Portfolio galleri Hverfisgötu 71

Nánari upplýsingar má finna á www.portfolio.is

Fyrirspurnir sendist á tölvupóstfangið [email protected]

Kveðja í grænu og brúnu, Ull á grófan striga, 148 x 188 cm, 2023

🔴 Lokahelgi sýningarinnar Fyglingar (e. Blirdlings) og lokahófÍ tilefni af síðustu helgi á sýningu Ólafar Nordal, bjóðum...
31/10/2024

🔴 Lokahelgi sýningarinnar Fyglingar (e. Blirdlings) og lokahóf

Í tilefni af síðustu helgi á sýningu Ólafar Nordal, bjóðum við ykkur velkomin á lokahóf í Portfolio galleri kl 16:00, laugardaginn 2.nóvember

Galleríið er opið á hefðbundnum tíma, fimmtudag, föstudag og laugardag milli kl 14.00 - 18:00

Verið innilega velkomin á Hverfisgötu 71

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni www.portfolio.is, fyrirspurnir má senda á [email protected]

🔴 Við bjóðum ykkur velkomin á listamannaspjall við Ólöfu Nordal, sem Ragnar Helgi Ólafsson leiðir. Spjallið hefst kl 16....
27/10/2024

🔴 Við bjóðum ykkur velkomin á listamannaspjall við Ólöfu Nordal, sem Ragnar Helgi Ólafsson leiðir. Spjallið hefst kl 16.00

Nebbi
Bronssteypa
45 cm
2024

Galleríið er opið í dag á milli 14.00 - 18.00

Nánari upplýsingar má finna á www.portfolio.is, fyrirspurnir sendist á [email protected]

🔴 Við bjóðum ykkur velkomin á listamannaspjall með Ólöfu Nordal um yfirstandandi sýningu hennar Fyglingar (e. Blirdlings...
25/10/2024

🔴 Við bjóðum ykkur velkomin á listamannaspjall með Ólöfu Nordal um yfirstandandi sýningu hennar Fyglingar (e. Blirdlings) í Portfolio galleri, 27. október kl 16:00. Ragnar Helgi Ólafsson leiðir spjallið.

,,Á móti mér tekur hópur af bronsskúlptúrum sem Ólöf Nordal hefur dreift um gólfið á vinnustofu sinni. Skúlptúrarnir eru misstórir og hafa allir tekið á sig myndir af fígúrum. Við fyrstu sýn virðast fígúrurnar áþekkar, enda allar af sömu tegund bronsskúlptúra, en hafa þegar betur er að gáð hver sín sérkenni. Þegar hverri og einni er veitt nánari athygli koma í ljós einstaklingseinkenni. Fígúrurnar virðast búa yfir persónuleika, eins og sú sem hefur verið staðsett í miðjum hópnum. Hún hallar undir flatt og horfir beint framan í gestinn eins og hún vilji bjóða upp á samtal. Hvað viltu? hugsa ég. Hver ertu og hvað ertu að reyna að segja mér? Vingjarnlegt andlitið kallar ekki aðeins á athygli heldur vekur samkennd."
- brot úr texta Margrétar Elísabetar Ólafsdóttur

Við bendum á að hægt er að nálgast sýningarskrá á vef Portfolio galleri www.portfolio.is. Hægt er að senda fyrirspurnir á tölvupóstfangið [email protected]

Galleríið er opið fimmtudaga til sunnudaga milli kl 14:00 - 18:00 og samkvæmt samkomulagi. Sýningin Fyglingar (e. Blirdlings9 stendur opin til 2. nóvember

Verið velkomin, Portfolio galleri, Hverfisgötu 71

🔴 Ólöf Nordal verður með viðveru í Portfolio gallerí í dag, frá 15:00 - 18:00. Verið innilega velkomin til okkar á Hverf...
20/10/2024

🔴 Ólöf Nordal verður með viðveru í Portfolio gallerí í dag, frá 15:00 - 18:00.

Verið innilega velkomin til okkar á Hverfisgötu 71.

Ljósmynd: Sigga Ella

Address

Hverfisgata 71
Reykjavík
101

Opening Hours

Friday 14:00 - 18:00
Saturday 14:00 - 18:00
Sunday 14:00 - 18:00

Telephone

+3548215212

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Portfolio Gallerí posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Portfolio Gallerí:

Featured

Share

Category