Seigla

Seigla Tónlistarhátíð í Hörpu.
7.-9. ágúst 2026.

Takk fyrir frábæra helgi, við hlökkum til að deila fleiri myndum og augnablikum frá hátíðinni á næstu dögum! Okkur þætti...
11/08/2026

Takk fyrir frábæra helgi, við hlökkum til að deila fleiri myndum og augnablikum frá hátíðinni á næstu dögum!

Okkur þætti mjög vænt um ef þau sem sóttu hátíðina gætu fyllt inn stutta könnun um Seiglu - þar sem hátíðin er partur af doktorsrannsókninni minni (Ernu Völu). Hún er nafnlaus og tekur stutta stund: https://forms.gle/YuisvLo7Pr8AfGpa9 (hlekkur líka í bio)

Takk innilega fyrir 🙏

09/08/2026

Æft fyrir seinni tónleika Elju kammersveitar, lokatónleika hátíðarinnar í ár. Einsöngvarar kvöldsins eru Harpa Ósk Björnsdóttir og Kristín Einarsdóttir Mäntylä. Hjörtur Páll Eggertsson stjórnar.

Prógrammið í kvöld er æðislegt og við getum ekki beðið.

Hér kemur dagskrá dagsins í dag. Við hlökkum til að sjá ykkur - nóg um að vera!
09/08/2026

Hér kemur dagskrá dagsins í dag. Við hlökkum til að sjá ykkur - nóg um að vera!

Æfing fyrir tónleikana Tími í rými kl. 21:00 í kvöld. Nina og Kristin er æðislegar og við getum ekki beðið eftir þessum ...
08/08/2026

Æfing fyrir tónleikana Tími í rými kl. 21:00 í kvöld. Nina og Kristin er æðislegar og við getum ekki beðið eftir þessum tónleikum. ❤️ Nina Vanhoenacker kristinou

Suð í Hörpuhorni! Komið að suða. Byrjar kl. 12 ☺️
08/08/2026

Suð í Hörpuhorni! Komið að suða. Byrjar kl. 12 ☺️

Takk fyrir frábæran gærdag og gleðilegan laugardag! Í dag byrjum við á Suði á Litlu Seiglu kl. 12:00, svo fáum við að he...
08/08/2026

Takk fyrir frábæran gærdag og gleðilegan laugardag! Í dag byrjum við á Suði á Litlu Seiglu kl. 12:00, svo fáum við að heyra Det Unge VokalEnsemble á tónleikunum Milli orða og anda undir stjórn Pouls Emborg.

Við hverjum alla gesti Seiglu til að taka þátt í Gleðigöngunni eftir tónleika, og koma síðan aftur á Krókaleið um Julius Eastman kl. 18 😍 Þar verður frumflutt verkið Krókaleið eftir Pétur Eggertsson af hinni frábæru sveit Elju, og við fáum að heyra tvö verk eftir Julius Eastman, en tónlist hans hefur aldrei áður hljómað á Íslandi! Kórinn mun líka taka þátt í Julius Eastman. Stjórnandi er Hjörtur Páll Eggertsson.

Því næst spjöllum við með flytjendum í Hnossi milli fyrri og síðari tónleika kvöldsins sem lýkur á tónleikunum Tími í rými með Ninu Vanhoenacker og Kristinu Sofroniou. 🤩🤩

Seigla byrjar í dag! 😍Þetta er dagskráin á eftir. Við byrjum á hátíðaropnun kl. 17, þar segjum við frá ýmislegu varðandi...
07/08/2026

Seigla byrjar í dag! 😍

Þetta er dagskráin á eftir. Við byrjum á hátíðaropnun kl. 17, þar segjum við frá ýmislegu varðandi helgina of fáum að heyra tónlist frá Elju kammersveit. Elja

Svo kemur að opnunartónleikunum Vættir og óvættir. Þar stíga fimm magnaðar konur á svið: Harpa Ósk Björnsdóttir, Kristín Einarsdóttir Mäntylä, Hildigunnur Einarsdóttir, Elísabet Waage og Matthildur Anna Gísladóttir.

Að lokum fáum við að hitta þær í Hörpuhorni eftir tónleikana yfir spjalli og spurningum.

Sjáumst á Seiglu í dag! 🌧️

Bjóðum velkomna belgíska sellóleikarann Ninu Vanhoenacker sem í verkum sínum leggur mest áherslu á samtíma- og tilraunat...
06/08/2026

Bjóðum velkomna belgíska sellóleikarann Ninu Vanhoenacker sem í verkum sínum leggur mest áherslu á samtíma- og tilraunatónlist. Hún er meðlimur í Extended Music Collective (Britten Pears Young Artist 2025-26) og hljómsveitinni Inland Ocean. Árið 2024 var hún valin í hóp De Twintigers hjá belgísku útvarpsstöðinni Klara sem ein af efnilegu ungu tónlistarfólki Belgíu. Nina hefur unnið meGyörgy Kurtág, Arvo Pärta og hefur sérstakan áhuga á þverfaglegu samstarfi. Fyrsta sólóplata hennar, An unbalanced piece of wood, kemur út 2026.

Nina kemur fram ásamt píanóleikaranum Kristin Sofroniou á laugardagskvöld kl. 21:00 á tónleikum sem bjóða áheyrendum upp á hlustunarupplifun þar sem tíminn virðist ýmist teygjast, dragast saman eða leysast upp - en þær flytja verk eftir Olivier Messiaen, György Kurtág, Arvo Pärt og Morton Feldman, tónskáld sem á sinn hátt umbreyttu skilningi okkar á því hvernig maður upplifir tíma í gegnum tónlist. 

Miðar og upplýsingar á seiglafestival.com! Ekki láta ykkur vanta. 👋

Nokkrar myndir úr útgáfuhófinu í gær. Á morgun hefst Seigla formlega með hátíðaropnun í Hörpuhorni! Sjáumst þar ☀️
06/08/2026

Nokkrar myndir úr útgáfuhófinu í gær. Á morgun hefst Seigla formlega með hátíðaropnun í Hörpuhorni! Sjáumst þar ☀️

Address

Austurbakki 2
Reykjavík
105

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Seigla posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Seigla:

Shortcuts

Featured

Share

Category