Skriða

Skriða Bókaútgáfa • Prentverkstæði • Vinnustofa • Eyrargata, Patreksfirði.

Það er alltaf góður tími fyrir kaffi, sérstaklega úr gömlum og góðum kaffibrúsa.Nýtt þriggja lita Riso-prent komið í vef...
11/06/2026

Það er alltaf góður tími fyrir kaffi, sérstaklega úr gömlum og góðum kaffibrúsa.

Nýtt þriggja lita Riso-prent komið í vefverslun Skriðu. Tvær litatýpur.

www.skridabokautgafa.is

Prentað fyrir hina stórkostlegu Bókmenntahátíð FlateyrarRisoprent og eldgamlir stafastimplar, sem mótvægi við allri gerv...
08/06/2026

Prentað fyrir hina stórkostlegu Bókmenntahátíð Flateyrar

Risoprent og eldgamlir stafastimplar, sem mótvægi við allri gervigreindarhönnuninni sem tröllríður heiminum.

Skriða mælir innilega með Bókmenntahátíð Flateyrar sem fram fer um næstu helgi. Metnaðarfull og flott dagskrá sem Helen ...
28/05/2026

Skriða mælir innilega með Bókmenntahátíð Flateyrar sem fram fer um næstu helgi. Metnaðarfull og flott dagskrá sem Helen Hafgnýr Cova hjá Karíba útgáfu skipuleggur af miklum kærleika.

Styðjum við bakið á smáforlögum og kaupum bækur beint frá býli.

Endurljóðblöndun Skriðu og Skjaldborgar 2026 🥚Gestum Skjaldborgar bauðst að taka þátt í sameiginlegri endurljóðblöndun, ...
26/05/2026

Endurljóðblöndun Skriðu og Skjaldborgar 2026 🥚

Gestum Skjaldborgar bauðst að taka þátt í sameiginlegri endurljóðblöndun, þar sem búið var að klippa orð úr gömlum, ónýtum bókum og misprentum af prentverkstæðinu sem þátttakendur límdu síðan niður á blað og úr varð þetta skemmtilega ljóð. Ljóðið var síðan prentað ásamt myndverki af langvíueggjum úr Látrabjargi og dreift á hátíðinni.
Hjartans þakkir til allra sem tóku þátt!

Prentað og ort á eggtíð í Skriðu, Patreksfirði, 2026.

Frábærlega skemmtilegur þáttur um Miðbæjarrottuna okkar hana Rannveigu!Miðbæjarrottan: rottan sem þekkir Reykjavík eins ...
15/05/2026

Frábærlega skemmtilegur þáttur um Miðbæjarrottuna okkar hana Rannveigu!

Miðbæjarrottan: rottan sem þekkir Reykjavík eins og handarbakið á sér!
Vissir þú að rottur búa á víð og dreif um Reykjavík og þekkja borgina jafnvel betur en mannfólkið?

Auður Þórhallsdóttir segir frá bókaflokknum Miðbæjarrottan þar sem Rannveig miðbæjarrotta skoðar ýmsa króka og kima Reykjavíkur. Hún kynnir sér styttur, byggingar, bókmenntir og lagnir.

Bókaormurinn Amalía Eik segir frá bókum úr bókaflokknum og tekur þátt í leiknum Hitt eða þetta þar sem hún velur hvaða sögupersónur hún myndi vilja hitta.

Slóð á þáttinn í fyrstu athugasemd.

Frábær sumargjöf! ☀️Rotturnar Rannveig og Karlotta eru í vandræðum með að velja sér bækur á bókasafninu en fá þá kort fr...
21/04/2026

Frábær sumargjöf! ☀️

Rotturnar Rannveig og Karlotta eru í vandræðum með að velja sér bækur á bókasafninu en fá þá kort frá Bárði bókasafnsrottu sem leiðir þær af stað í gönguferð um miðbæinn þar sem þær læra ýmislegt um bækur og íslenska sagnaheiminn. Þær komast þó í hann krappan þegar á vegi þeirra verða bókhneigðir kettir -en rottur hafa ráð undir rifi hverju og láta ekkert stoppa sig!

Í bókinni er síðan kort svo að ungir lesendur og fjölskyldur þeirra geta þrætt sig um miðbæinn og skoðað þá staði sem Rannveig og Karlotta heimsækja.
Bókin fæst á íslensku, ensku og pólsku.

www.skridabokautgafa.is

Eitt af nokkrum góðum vetrarljóðum úr heimkynnum eftir Þórð Sævar Jónsson. Þessi frábæra bók fæst enn í vefverslun Skrið...
19/03/2026

Eitt af nokkrum góðum vetrarljóðum úr heimkynnum eftir Þórð Sævar Jónsson.

Þessi frábæra bók fæst enn í vefverslun Skriðu og í völdum bókabúðum, s.s. Kanínuholunni, Bókumbók og Skáldu og er að sjálfsögðu prentuð og handsaumuð í Skriðu.

„Það er ástæða til að óska Móheiði Hlíf Geirlaugsdóttur til hamingju með það þrekvirki að þýða þessi mögnuðu ljóð Sylviu...
17/03/2026

„Það er ástæða til að óska Móheiði Hlíf Geirlaugsdóttur til hamingju með það þrekvirki að þýða þessi mögnuðu ljóð Sylviu Plath á íslensku. Vonandi heldur hún áfram að færa íslenskum lesendum mikilvæg erlend bókmenntaverk í þýðingum, það er mikilvægt starf fyrir íslenska menningu og tungumál. Ég hvet alla ljóðaunnendur til að næla sér í eintak af þessari vönduðu útgáfu frá bókaútgáfunni Skriðu.“

Einstaklega ítarleg og vönduð umfjöllun Soffíu Auðar Birgisdóttur um Ariel eftir Sylviu Plath á hinum frábæra vef Skáld.is. (Sjá hlekk í athugasemd).

Það er nýbúið að prenta og sauma fleiri eintök af bókinni en þau fást í vefverslun Skriðu á www.skridabokautgafa.is, í Kanínuholan - The Rabbithole, Skálda bókabúð, Bókumbók og í Bókabúð Forlagsins.

Og til hamingju Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir með stórafmælið!

🩵🩵🩵

Skriða minnir á Útgáfuhóf: Miðbæjarrottan í bókmenntaborg  sem verður haldið á Borgarbókasafninu sunnudaginn 15. mars kl...
14/03/2026

Skriða minnir á Útgáfuhóf: Miðbæjarrottan í bókmenntaborg sem verður haldið á Borgarbókasafninu sunnudaginn 15. mars kl. 14.
Bókin verður til sölu á góðu verði en að auki verður bókapakkinn með öllum fjórum rottubókunum á svakalegu tilboði og gjafapokar fylgja fyrir börnin.

Í þessari fjórðu og síðustu bók fá rotturnar Rannveig og Karlotta kort á bókasafninu sem leiðir þær af stað í gönguferð um miðbæinn. Þær komast í hann krappan þegar á vegi þeirra verða bókhneigðir kettir en rottur hafa ráð undir rifi hverju og láta ekkert stoppa sig. Með aðstoð ömmu Bardúsu og lagnarottanna geta þær frænkur klárað gönguna sem kennir þeim ýmislegt um bækur og íslenska sagnaheiminn.
Bókin kemur út á íslensku, ensku og pólsku.

Öll hjartanlega velkomin!

Address

Eyrargata
Patreksfjörður
450

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skriða posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Skriða:

Shortcuts

Share

Category