Nábrókin

Nábrókin Hér má sjá helstu upplýsingar vegna Nábrókarinnar, smáhátíðar sem haldin er um Verslunarmannahelgi í Trékyllisvík á Ströndum. Látið ykkur ekki vanta!

Nábrókin í Trékyllisvík - þriggja daga þrælfín skemmtun! Hátíðin hefst eins og endranær á föstudegi á tónleikum Melasystra í fjárhúsunum á Melum 1. Þar verður boðið upp á sannkallað hlaðborð af allskonar tónlist, gleði og ekta sveitastemmingu. Mýrarboltinn er órjúfanleg hefð á Verslunarmannahelgi í Árneshreppi á laugardeginum. Það er fátt meira hressandi og skemmtilegt en að „hlaupa“ um í drullunn

i eltandi rennblautan bolta. Stórkostlegt að horfa á og gaman að spreyta sig! Á laugardagskvöldinu er ekta sveitaball þar sem hljómsveitin Blek og byttur spila fyrir dansi en þá má í raun kalla þá heimamenn í Árneshreppi enda órjúfanlegur hluti af hátíðinni. Hátíðinni er síðan slitið á sunnudagskvöldi með brekkusöng Ragga Torfa í fjöruborðinu í Norðurfirði.

Vá, bara ótrúlegt að lífið geti haldið áfram eftir þessa stórbrotnu verslunarmannahelgi en hingað erum við komin!     Ky...
06/08/2025

Vá, bara ótrúlegt að lífið geti haldið áfram eftir þessa stórbrotnu verslunarmannahelgi en hingað erum við komin!
Kynngimögnuð Nábrók að baki 🤩🤩🎆 og einstaklega vel heppnuð þar sem fjölmargir sveitungar lögðu hönd á plóg og uppskáru svo sannarlega! Gleðin hófst sem endranær í fjárhúsinu á Melum þar sem Melasystur og bandamenn, Siggi, Þorvaldur og Ragnar, áttu stórleik og voru tónleikarnir einstaklega vel sóttir 🥰
Á laugardeginum var Mýrarbolti þar sem 9 lið öttu kappi og yljuðu leikmenn sér milli leikja í Krossnesvatninu, þó veður hafi reyndar verið með besta móti😍 Náðu lið Bergistanga og Mela í úrslit en þar fór Bergistangi með frækinn sigur af hólmi! Lið Víganess var valið smekklegasta liðið 😎🤌 Á laugardagskvöldið var dansleikur í félagsheimilinu Árnesi, sá eini á Vestfjörðum þetta kvöldið. Þar hélt hljómsveitin Blek og byttur uppi feiknagóðu stuði fram á rauða nótt og þessar rauðu nætur eru nú hvergi eins fallegar og í Trékyllisvík 😍😍
Á sunnudaginn hvíldu menn lúin bein en Árnesmenn og Raggi og Guðbrandur Torfa undirbjuggu fjörusöng fyrir kvöldið. Sá lukkaðist svona líka vel þó blési um tíma úr öllum áttum og svo mikið var fjörið að mátti vart vita hvort maður væri á brekkusöng eða leiksýningu! Þarna stigu á svið bæði sjóræningjar og knapar og skemmtu mannskapnum með söng og gleði þar til yfir lauk með stórsýningu Bæjarmanna! 🤩🤩

Bestu og innilegustu þakkir! til allra sem hjálpuðust að við að gera þessa helgi svona dásamlega! Þetta væri ekki hægt án ykkar ❤😘❤ OG auðvitað þakkir til allra sem mættu og göldruðu fram þessa mögnuðu stemningu með okkur🤩💕

Okkur voru að berast mergjaðar myndir úr fjörunni en þar er allt að gerast 😎😍 (þess má til gamans geta að nú flæðir frá ...
03/08/2025

Okkur voru að berast mergjaðar myndir úr fjörunni en þar er allt að gerast 😎😍 (þess má til gamans geta að nú flæðir frá og verða topp aðstæður í kvöld 🤌🔥 )

03/08/2025

Í kvöld verður lokaviðburður Nábrókarinnar, varðeldur og fjörusöngur á sandinum í Norðurfirði kl 21🤩

Við vonumst til að vindinn lægi fyrir kvöldið og hægt að hafa alvöru stemningu að hætti Ragga Torfa.

Við setjum inn tilkynningu hér ef eitthvað breytist 😊

Takk fyrir frábæran mýrarbolta og sveitaball í gær - mikil stemning og falleg orka yfir öllu 🥰 Bergistangi sigraði mótið...
03/08/2025

Takk fyrir frábæran mýrarbolta og sveitaball í gær - mikil stemning og falleg orka yfir öllu 🥰
Bergistangi sigraði mótið með glæsibrag eftir spennandi leik sem endaði í bráðabana 💪

Mótsgjald fyrir liðin skal millifæra á reikning Umf. Leifs heppna 1161-26-000437 kt. 420269-5879. Gjaldið var 10 þúsund krónur.
Gott að setja mýri eða mýrarbolti í skýringu.

Óskilamunir úr mýrinni 😊 einhver sem saknar?
03/08/2025

Óskilamunir úr mýrinni 😊 einhver sem saknar?

03/08/2025

Vegna veðurs ætlar Egill sem ætlaði að að leiða núvitund og öndun hér eftir hádegi að hætta við viðburðinn.

Takk fyrir áhugann og samveruna um helgina 🫶🏻

02/08/2025

Minnum á þrusu ball í kvöld með Blek og Byttum í samkomuhúsinu í Árnesi 💃

18 ára aldurstakmark 🫶🏻

Takk fyrir frábært upphaf á Nábrókinni á tónleikum Melasystra 🥰 Nú er næsti viðburður, Mýrarboltinn kl 13 á morgun 🤩   H...
02/08/2025

Takk fyrir frábært upphaf á Nábrókinni á tónleikum Melasystra 🥰
Nú er næsti viðburður, Mýrarboltinn kl 13 á morgun 🤩
Hér má sjá riðla og leikjaniðurröðun 🤩

Sjáumst í mýrinni 😊

P.s. *Það verður blautt og gott að vera í góðum skóm/stígvélum.
*Það verður sjoppa á staðnum á vegum umf. Leifs heppna og heitt kakó og kleinur 😊

31/07/2025

Nú er sólarhringur til stefnu til að skrá lið til leiks í Mýrarboltanum - Letsgo! ⚽️💩

23/07/2025

Kæru vinir!

Margt spennandi framundan og við skulum líta á tvær niðurtalningar

1️⃣0️⃣ dagar í tónleika Melasystra. Sigurður Ingi snýr til baka á trommurnar, Raggi verður ekki með bronchitis (óstaðfest), Þorvaldur er jafnvel færari og laglegri en áður (ef hægt) og Melasystur eru alltaf bara Melasystur 🫶🏻

1️⃣0️⃣ dagar í loka skráningu fyrir Mýrarboltann, nú þegar hafa lið haft samband og ekki hika við að henda inn skráningu

Byrjum á þessu - allir setja sig í gírinn, týna saman í lið og slá af stressinu með því að skella sér á tónleika í fjárhúsunum á Melum 👌🏻🔥

Langar einnig að benda á hliðarviðburð sem verður sunnudaginn 3.ágúst klukkan 14:00 við samkomuhúsið í Árnesi. Þar mun Egill Tjee leiða yoga-hugleiðslu-öndun sem verður fullkomin leið til að kjarna saman helgina og ná fótunum undir sig. Við hvetjum alla sem hafa áhuga að mæta 🧘‍♀️🧘‍♂️

Sjáumst von bráðar besta fólk 🫶🏻

Address

Trékyllisvík
Norðurfjörður
524

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Nábrókin posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Nábrókin:

Share

Category