Hljómahöll

Hljómahöll Tónlistar-, menningar- og ráðstefnuhús. Music-, cultural- and conference center.
📍Hjallavegur 2, 260 Reykjanesbæ. Hljómahöll opnaði formlega þann 5. apríl 2014.

Fylgstu með okkur á samfélagsmiðlum á Tiktok og Instagram! Skráðu þig á póstlista Hljómahallar hér:
http://eepurl.com/dx9k1D Hlutverk Hljómahallar tónlistar- og menningarhúss er að vera mikilvægur vettvangur fjölskrúðugs mannlífs, ráðstefnuhalds, funda- og menningarviðburða í Reykjanesbæ. Áhersla er lögð á mikla og góða samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, listamenn, frjáls fél

agasamtök o.fl. Stapi er hluti af Hljómahöll og þjónar áfram sínu hlutverki sem félagsheimili auk þess sem Rokksafn Íslands verður hluti af menningarmiðstöðinni og er ætlað að verða aðdráttarafl fyrir innlenda og erlenda ferðamenn sem vilja kynnast og upplifa rokksögu Íslands. Með tilkomu Hljómahallar er lagður grunnur að auknum tækifærum í sköpunar- og afþreyingariðnaði á Reykjanesi.

Í Hljómahöll er hægt að leigja sali sem henta undir tónleika, dansleiki, fundi, afmæli brúðkaup o.s.frv. Salirnir eru Stapi, minni salur inn af Stapasalnum, kammersalur, Rokksafn Íslands og bíósalur. Allar fyrirspurnir skulu sendast á [email protected].

01/06/2026

BRÍET Á TRÚNÓ 30. MAÍ • Brot frá kvöldinu

Bríet kom fram á trúnó síðastliðið laugardagskvöld ásamt þeim Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni hljómborðsleikara og Bergi Einari Dagbjartssyni trommuleikara. Stemning, nánd og skemmtilegar sögur einkenndi þetta frábæra kvöld ✨

Bríet kom fram á trúnó í kvöld ásamt Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni hljómborðsleikara og Bergi Einari Dagbjartssyni trommul...
30/05/2026

Bríet kom fram á trúnó í kvöld ásamt Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni hljómborðsleikara og Bergi Einari Dagbjartssyni trommuleikara þar sem stemningin og nándin réði ríkjum. Ógleymanleg upplifun ✨

Takk fyrir komuna í kvöld kæru gestir 🫶🏻

SÍÐASTI SÉNS ‼️BRÍET Á TRÚNÓ Í KVÖLDNú er komið að því að Bríet snúi aftur í Hljómahöll. Í þetta skiptið stígur hún á sv...
30/05/2026

SÍÐASTI SÉNS ‼️
BRÍET Á TRÚNÓ Í KVÖLD

Nú er komið að því að Bríet snúi aftur í Hljómahöll. Í þetta skiptið stígur hún á svið ásamt Magnúsi Jóhanni Ragnarssyni hljómborðsleikara og Bergi Einari Dagbjartssyni trommuleikara. Á tónleikunum í Hljómahöll mun hún flytja mörg af sínum þekktustu lögum ásamt nýju efni í nánd við áhorfendur. Gestir mega búast við kvöldi fullu af tilfinningum, fallegum tónum og þeirri einlægu tengingu sem Bríet er þekkt fyrir að skapa með tónlist sinni.

Þetta verður kvöld þar sem tónlist, stemning og nánd við listamanninn sameinast í ógleymanlegri upplifun. Ekki láta þig vanta 30.maí!

🎟️ Síðustu miðarnir hér: https://www.hljomaholl.is/vidburdur/briet-2026

29/05/2026

GÓSS Á TRÚNÓ 28. MAÍ • Brot frá kvöldinu

GÓSS sungu inn sumarið í Hljómahöll í gærkvöldi ☀️

👉 Næst á dagskrá í Hljómahöll er Bríet á trúnó annað kvöld, örfáir miðar eftir á hljomaholl.is

GÓSS sungu inn sumarið með hugljúfri tónlist og einstaklega góðri stemningu á trúnó í kvöld ☀️Takk fyrir komuna kæru ges...
28/05/2026

GÓSS sungu inn sumarið með hugljúfri tónlist og einstaklega góðri stemningu á trúnó í kvöld ☀️

Takk fyrir komuna kæru gestir!

👉 Næst á dagskrá í Hljómahöll er Bríet á trúnó þann 30. maí, miðasala á hljomaholl.is

GÓSS á trúnó í kvöld ✨Tónleikarnir fara fram í Bergi og eru sætin ónúmeruð.Örfáir miðar eru eftir á tónleikana - tryggðu...
28/05/2026

GÓSS á trúnó í kvöld ✨

Tónleikarnir fara fram í Bergi og eru sætin ónúmeruð.

Örfáir miðar eru eftir á tónleikana - tryggðu þér miða!

🎟️ Hlekkur á miðasölu:
https://www.hljomaholl.is/vidburdur/goss-a-truno

Það er nóg um að vera hjá okkur næstu daga og þrír einstakir viðburðir eru framundan í Hljómahöll ✨28. maí – Góss á trún...
27/05/2026

Það er nóg um að vera hjá okkur næstu daga og þrír einstakir viðburðir eru framundan í Hljómahöll ✨

28. maí – Góss á trúnó
Tríóið Góss mætir í Berg þar sem frumsamin lög, tökulög, íslensk ættjarðarlög og erlend dægurlög renna saman í hlýlega tónleikaupplifun.
👉 Örfáir miðar eftir

30. maí – Bríet á trúnó
Bríet snýr aftur í Hljómahöll og flytur mörg af sínum þekktustu lögum ásamt nýju efni í nánd við áhorfendur. Kvöld fullt af tilfinningum, fallegum tónum og einlægri tengingu.
👉 Örfáir miðar eftir

31. maí – Heroes, Villains & Vagabonds
Dramatísk og heillandi klassísk kvöldstund þar sem hetjur, skúrkar, flakkarar og utangarðsmenn lifna við í ljóðasöng og óperuperlum.

Tryggðu þér miða á hljomaholl.is eða tix.is 🎟️

Feita Hjartað - uppistand með Dóra DNA | 1. október í BergiFeita hjartað er glæný gamansýning frá einum ástsælasta ástme...
26/05/2026

Feita Hjartað - uppistand með Dóra DNA | 1. október í Bergi

Feita hjartað er glæný gamansýning frá einum ástsælasta ástmegi þjóðarinnar og sú fyrsta síðan sýningin Engar takmarkanir gekk fyrir fullu húsi um allt land árið 2023.

Sýningin hefur jafnframt verið sýnd fyrir fullu húsi í vetur. Maðurinn sem einnig hefur verið nefndur Gene Hackman sinnar kynslóðar, maðurinn sem er bæði barnabarn og nafni nóbelsskáldsins, sjónvarpsmaðurinn, hinn íslenski Colonel Sanders, rapparinn, leikarinn, skáldið, höfundurinn og nautnaseggurinn hefur fyrir löngu sigrað þjóðina og gerir fátt betur en að koma fólki til að hlæja.

Í sýningunni Feita hjartað kafar Dóri ofan í kviku tilverunnar og skoðar sjálfan sig að innan. Þar er margt að finna sem gaman er að segja frá og enn meira gaman að hlusta á.

Sýningin er stranglega bönnuð innan 16 ára.

Upphitun verður í höndum hinnar óviðjafnanlegu Margrétar Björnsdóttur.

🎟️ Miðasala hefst 1. júní kl. 12:00 á hljomaholl.is og tix.is

Hvað er framundan í Hljómahöll?👀Hér getur þú hlustað á lög frá listafólkinu sem kemur fram hjá okkur á næstunni 🥳🎶
22/05/2026

Hvað er framundan í Hljómahöll?👀
Hér getur þú hlustað á lög frá listafólkinu sem kemur fram hjá okkur á næstunni 🥳🎶

Playlist · Hljómahöll · 33 items

AC/DC ROKKMESSA | 16. október í  BergiAC/DC, hinni goðsagnakenndu hljómsveit, sem á mest seldu rokkplötu allra tíma, Bac...
22/05/2026

AC/DC ROKKMESSA | 16. október í Bergi

AC/DC, hinni goðsagnakenndu hljómsveit, sem á mest seldu rokkplötu allra tíma, Back In Black, og hátt í 200 milljón plötur seldar um heim allan verður gert hátt undir á Rokkmessu í Hljómahöll þann 16. október 2026.

Á rokkmessunni fá aðdáendur sveitarinnar að heyra lög eins og Back in black, Thunderstruck, You shook me all night long, Highway to hell, Hells bells, Let there be rock og fleiri stórsmelli. Það er valinn maður í hverju rúmi í þessari mögnuðu messu en hljómsveitina skipa þaulvanir og þéttir íslenskir rokkarar sem hafa gert garðinn frægan í ekki ómerkari sveitum eins og HAM, DIMMA, VINTAGE CARAVAN og ENSÍMI.

ROKKMESSU SVEITIN:
Söngur: Stebbi Jak
Söngur: Dagur Sig
Gítar / bakrödd: Óskar Logi Ágústsson
Gítar / bakrödd: Franz Gunnarsson
Bassi / bakrödd: Flosi Þorgeirsson
Trommur / bakrödd: Stefán Ari Stefánsson

🎟️ Miðasala hefst þann 25. maí kl. 12:00 á hljomaholl.is / tix.is
🔗 https://www.hljomaholl.is/vidburdur/35/acdc-rokkmessa

Address

Hjallavegur 2
Njarðvík
260

Opening Hours

Monday 11:00 - 18:00
Tuesday 11:00 - 18:00
Wednesday 11:00 - 18:00
Thursday 11:00 - 18:00
Friday 11:00 - 18:00
Saturday 11:00 - 18:00
Sunday 11:00 - 18:00

Telephone

+354 420 1030

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hljómahöll posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Hljómahöll:

Share