18/03/2025
Dagana 27. – 31. Mars er verið að taka upp stuttmyndina Snjóþungi í Neskaupstað og Norðfjarðarsveit og vantar aukaleikara.
Hlutverkin:
1. Björgunarsveitarmaður (45+): Fer með aðalpersónunni, Þormari (Þorvaldur Davíð), í Egilsbúð til að athuga hvort fjölskylda hans hafi verið rýmd þangað. Hlutverkið er nokkuð stórt og krefst góðrar leikrænnar tjáningar. Kyn leikarans skiptir ekki máli.
2. Barn (um 5 ára): Leikur son aðalpersónunnar í tveimur senum. Barnið þarf að vera afslappað fyrir framan myndavél og geta farið með nokkrar línur, að mestu líkamlegur leikur.
3. Fjölskylda (barn, faðir og móðir): Atriði þar sem fjölskylda sameinast í Egilsbúð. Engar línur en mikilvægt að þau geti leikið, sérstaklega faðirinn.
Auk þess vantar okkur marga statista til að endurskapa andrúmsloft raunverulegrar rýmingar í Egilsbúð.
Þar sem þetta er skólaverkefni er ekki um greitt hlutverk að ræða, en boðið verður upp á kræsingar og góða stemningu. Starfsfólk er meðvitað um að snjóflóð og það að endurskapa ákveðið ástand í Egilsbúð gæti verið viðkvæmt fyrir suma og virða það fyllilega.
Áhugasamir geta skráð sig í þetta skjal eða haft samband við okkur.
Suttmyndin Snjóþungi er útskriftarverkefni af Kvikmyndabraut í LHÍ. Tekin upp dagana 28 - 31.mars 2025 á Neskaupstað. Við erum að leita af fólki á svæðinu sem er til í að koma inn sem statistar og fylla Egilsbúð sem er fjöldarhjálparstöð í stuttmyndinni. Verkefnið er ógreytt ...