Menningarstofa Fjarðabyggðar

Menningarstofa Fjarðabyggðar Menningarstofa Fjarðabyggðar stuðlar að fjölbreyttu menningar- og listalífi í Fjarðabyggð.

Sýningin VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners eftir Helgu Dórótheu Fannon opnaði í Þórsmörk í Neskaupstað síða...
02/09/2026

Sýningin VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners eftir Helgu Dórótheu Fannon opnaði í Þórsmörk í Neskaupstað síðastliðinn laugardag.

Kærar þakkir til allra sem komu á opnunina, tóku þátt í upplifuninni og gáfu sér tíma til að ræða við listakonuna og kynnast verkunum.

Sýningin er afrakstur dvalar Helgu í Þórsmörk listamannasetri og fléttar saman hreyfimyndum, hljóði, skúlptúrum og innsetningum, með innblæstri frá Völvuleiði á Hólmahálsi, austfirsku landslagi, goðafræði og persónulegri reynslu.

Sýningin stendur til 31. október og er opin föstudaga og laugardaga kl. 14:00–17:00.

Austurfrétt fjallar um sýninguna *VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners* eftir Helgu Dórótheu Fannon, sem nú st...
01/09/2026

Austurfrétt fjallar um sýninguna *VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners* eftir Helgu Dórótheu Fannon, sem nú stendur yfir í Þórsmörk í Neskaupstað.

Í greininni segir Helga frá rannsókn sinni á Völvuleiði á Hólmahálsi og hvernig dvöl hennar á Austurlandi þróaðist yfir í sýninguna.

Sýningin stendur til 31. október og er opin föstudaga og laugardaga kl. 14:00–17:00.

Lesið meira í grein Austurfréttar hér fyrir neðan. 👇

Listakonan Helga Dorothea Fannon opnar um helgina sýningu í Neskaupstað sem er afrakstur dvalar hennar þar síðustu vikur sem hún nýtti til að kynna sér völvuleiðið á Hólmahálsi. Á Héraði verður árlegur dansleikur Harmonikkufélags Héraðsbúa og ljóðaupplestur.

Við erum spennt að kynna nýjan listamann í rannsóknardvöl. Lucrezia Costa dvelur í Þórsmörk í september.Lucrezia er ítal...
01/09/2026

Við erum spennt að kynna nýjan listamann í rannsóknardvöl. Lucrezia Costa dvelur í Þórsmörk í september.

Lucrezia er ítalskur myndlistarkona búsettur í Reykjavík. Verk hennar kanna tengslin milli manna, landslags og annarra lífvera. Hún vinnur með fjölbreytta miðla – þar á meðal keramik, málm, ljósmyndun, höggmyndalist og innsetningar – og tekur fyrir viðfangsefni á borð við tap á náttúruarfi, menningarlegt minni og samband okkar við umhverfið.

Á meðan á dvölinni stendur mun Lucrezia kynnast landslagi og samfélagi Fjarðabyggðar og skapa ný verk sem sækja innblástur í sögur og umhverfi svæðisins. Hún mun einnig taka þátt í BRAS og stýra vinnusmiðju í gifssteypu þar sem notast verður við fundna hluti og neikvætt rými.

Í lok dvalarinnar mun Lucrezia bjóða íbúum svæðisins á opið hús til að sýna þau verk og þær rannsóknir sem urðu til á mánuðinum í Fjarðabyggð.

Velkomin Lucrezia!

Join an online introduction to the HOME project, a community arts initiative exploring migration, belonging, identity, a...
31/08/2026

Join an online introduction to the HOME project, a community arts initiative exploring migration, belonging, identity, and what it means to create a sense of home in a new place.

HOME continues the migrant women’s story circles first developed through the Sæhjarta project in 2025, using storytelling and artistic methods to create spaces for connection and shared experiences.

The online meeting will introduce the project and upcoming autumn activities at the Fish Factory Creative Centre in Stöðvarfjörður and Sláturhús Art Center in Egilsstaðir, including the installation What Is Home for Migrant Beings? and the children’s workshop Wonder Houses.

More information and registration:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSe0FqRAe87vAX-6aoCgZf7npdjwZAaqqsrH-Rlp0E32HHN7nQ/viewform

26/08/2026

Allir ættu að merkja dagatölin sín því nú í október verður Pólsk Kvikmyndahátíð í Fjarðabyggð haldin í sjötta sinn.

Þann 29. ágúst opnar sýningin *VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners* eftir listakonuna Helgu Dorotheu Fannon í...
25/08/2026

Þann 29. ágúst opnar sýningin *VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners* eftir listakonuna Helgu Dorotheu Fannon í Þórsmörk. Helga hefur dvalið í Þórsmörk listamannasetri og unnið að nýjum verkum þar sem hún fléttar saman hreyfimyndum, hljóði, skúlptúrum og innsetningum.

Verkefnið á rætur sínar að rekja til rannsókna Helgu á Völvuleiði fyrir ofan Reyðarfjörð og Eskifjörð, en þaðan hefur vinnan undið upp á sig og orðið að stærri vefnaði sem samanstendur af minningum, dulspeki, goðafræði, landslagi og persónulegri reynslu.

Í verkunum verður völvan að þræði í gegnum þessa ólíku heima. Myndefni, fundnir hlutir, náttúrugripir og hljóð sem Helga hefur safnað í og í kringum Neskaupstað og á ferðum sínum um Austurland fléttast saman við rannsóknir hennar og handverk. Hún særir fram augnablik þar sem hið hversdagslega verður framandi, töfrum hlaðið eða órætt.

Helga Dóróthea Fannon er íslensk-sænsk-bresk kvikmyndagerðarkona og myndlistarkona sem býr og starfar milli London og Gautaborgar. Hún vinnur með hreyfimyndir, hljóð, skrif og gjörninga og notar fyrirbærafræði, goðafræði, náttúru og forfeðursögur til að kanna minningar, drauma, játningar og breytingar á mörkum fundinna og ímyndaðra frásagna.

Einkasýning Helgu VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners er í sýningarstjórn Þórhildar Tinnu Sigurðardóttur. Sýningaropnun verður laugardaginn 29. ágúst kl. 14:00 í Þórsmörk, Neskaupstað. Hún stendur opin til 31. október.

Þann 29. ágúst opnar sýningin VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners eftir listakonuna Helgu Dorotheu Fannon í Þ...
18/08/2026

Þann 29. ágúst opnar sýningin VÖLVUMYRKVI: she who helps us see past corners eftir listakonuna Helgu Dorotheu Fannon í Þórsmörk. Helga hefur dvalið í Þórsmörk listamannasetri og unnið að nýjum verkum þar sem hún fléttar saman hreyfimyndum, hljóði, skúlptúrum og innsetningum.
Í vikunni fór Þórhildur Tinna Sigurðardóttir í vinnustofuheimsókn til Helgu þar sem undirbúningur sýningarinnar hefur veruð í fullum gangi. Helga hefur varið ágúst mánuði í Þórsmörk listamannadvöl. Verkefnið á rætur sínar að rekja til rannsókna Helgu á Völvuleiði fyrir ofan Reyðarfjörð og Eskifjörð, en þaðan hefur vinnan undið upp á sig og orðið að stærri vefnaði sem samanstendur af minningum, dulspeki, goðafræði, landslagi og persónulegri reynslu.
Í verkunum verður völvan að þræði í gegnum þessa ólíku heima. Myndefni, fundnir hlutir, náttúrugripir og hljóð sem Helga hefur safnað í og í kringum Neskaupstað og á ferðum sínum um Austurland fléttast saman við rannsóknir hennar og handverk. Hún særir fram augnablik þar sem hið hversdagslega verður framandi, töfrum hlaðið eða órætt.
Einkasýning Helgu VÖLVUMYRKVI – she who helps us see past corners er í sýningarstjórn Þórhildar Tinnu Sigurðardóttur.
Sýningaropnun verður laugardaginn 29. ágúst kl. 14:00 í Þórsmörk, Neskaupstað.
Svipmyndirnar tók Þórhildur Tinna Sigurðardóttir í vinnustofuheimsókninni.

On Saturday, August 8th, 16 women from across East Iceland came together at Stríðsárasafnið for a Migrant Women’s Circle...
17/08/2026

On Saturday, August 8th, 16 women from across East Iceland came together at Stríðsárasafnið for a Migrant Women’s Circle. Participants living in Reyðarfjörður, Fáskrúðsfjörður, Eskifjörður, Seyðisfjörður and Egilsstaðir joined us, with backgrounds spanning Poland, Ukraine, Lithuania, Romania, the Faroe Islands, Belgium, Hungary, Spain, Brazil and Paraguay.

Led by Tess Rivarola and Margaret Johnson, the Migrant Women’s Circles have been taking place since February 2025, creating a welcoming space for women to share experiences, emotions and reflections on migration, belonging and making a home in a new place.

A heartfelt thank you to everyone who participated and contributed to the conversation. We would also like to thank Sesam Brauðhús for providing delicious treats for the gathering and Stríðsárasafnið for welcoming the group into their space.

The next stage of the project begins this September with the HOME Collective Creative Laboratory.

Starting Sunday, 20 September at Sláturhúsið, participants will take part in a series of creative workshops exploring one shared question: What does home mean to a migrant?

Drawing from personal stories and memories, the group will explore ways of transforming words and experiences into objects, structures and visual poetry. The resulting works will come together in a collective exhibition, inviting the wider community to encounter these different experiences of home, migration and belonging.

The HOME Collective exhibition will be presented:
📍 Friday, 25 September – Sláturhúsið Art Center, Egilsstaðir
📍 Saturday, 26 September – Fish Factory, Stöðvarfjörður

The HOME project is supported by Uppbyggingarsjóður Austurlands, Múlaþing, Sláturhúsið Art Center and Menningarstofa Fjarðabyggðar.

10/08/2026

Gleðilega Hinsegin daga frá Menningarstofu Fjarðabyggðar! 💖

Í tilefni Hinsegin daga deilum við myndbandi eftir Emblu Stencel, sem hún vann sem lokaverkefni sitt í Skapandi Sumarstörfum í sumar. Verkið fjallar um að tengjast aftur mennskunni á tímum þar sem heimurinn getur virst renna okkur úr greipum og fagnar um leið fjölskyldu, vináttu og fegurð lífsins.

Skapandi Sumarstörf er sumarstarfsverkefni Menningarstofu fyrir ungt fólk á aldrinum 16–24 ára, þar sem þátttakendur taka þátt í menningarstarfi Fjarðabyggðar samhliða því að þróa sín eigin skapandi verkefni.

Í kvöld kl. 20:00 tekur Menningarstofa einnig þátt í opnum fundi Hinsegin Austurlands í Valaskjálf á Egilsstöðum. Þar flytur Þórhildur Tinna Sigurðardóttir erindið „Menning sem athvarf“ um mikilvægi skapandi rýma, sjálfstjáningar og tilheyringar fyrir börn og ungt fólk.

Gleðilega Hinsegin daga 2026! 🏳️‍🌈

Address

Þórsmörk, Þiljuvöllum 11
Neskaupstaður
740

Opening Hours

Monday 13:00 - 17:00
Tuesday 13:00 - 17:00
Wednesday 13:00 - 17:00
Thursday 13:00 - 17:00
Friday 13:00 - 17:00

Telephone

+3548944321

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menningarstofa Fjarðabyggðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share