Innsævi

Innsævi Innsævi er menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar og er nú haldin í þriðja sinn 2024.

METÞÁTTAKA Á INNSÆVIInnsævi, menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar, lauk þann 27. júlí  og ekki er hægt að segja annað ...
02/08/2024

METÞÁTTAKA Á INNSÆVI

Innsævi, menningar- og listahátíð Fjarðabyggðar, lauk þann 27. júlí og ekki er hægt að segja annað en að hátíðin hafi tekist með miklum ágætum. Innsævi var nú haldin í þriðja sinn og átti sér stað um allt sveitarfélagið og greina mátti mikla ánægju bæði meðal þeirra fjölda gesta sem sóttu viðburði og þess listafólks sem tók þátt í þeim fjölmörgu viðburðum sem áttu sér stað í þann rúma mánuð sem Innsævi stóð yfir.

Aðsókn á viðburði var með besta móti og það er gaman að segja frá því að greina má talsverða aukningu á fjölda gesta en í sumar mættu rúmlega 1300 manns á Innsævi. Þátttakendur sem stóðu að baki Innsævis voru 122 og áttu viðburðirnir 32 sér stað í 21 viðburðarrýmum víða í sveitarfélaginu.

Í ár lagði listrænn stjórnandi og viðburðastjóri Innsævi sérstaka áherslu á að fá listafólk úr Fjarðabyggð og með austfirskar tengingar „heim“ til að koma fram, taka þátt og sýna list sína auk þess að stuðla að inngildingu í samfélaginu. Má í þessu samhengi nefna hljómsveitirnar Dundur og CHÖGMA, listakonurnar Sögu Unn, Sædísi og Svanlaugu Aðalsteinsdóttur, plötusnúðana Nonna Clausen og Tonytjokko, ljósmyndarann og skáldið Dagbjörtu Elvu Sigurðardóttur ásamt hljómsveitinni Völusteinar, gítarleikarann Svan Vilbergsson og Magma, ljóðskáldin Jón Knút Ámundsson og Önnu Karen Marinósdóttur, hljóðinnsetninguna ÓM með þeim Hauki og Kötlu, og listamennina Marc Alexander og Pál Ivan frá Eiðum. Þessi stefna setti mikinn og jákvæðan svip á hátíðina og ekki annað að sjá en að þetta hafi fallið í kramið og haft mjög góð áhrif á aðsókn.

Sýningin Pressuð flóra Íslands sem pólski listamaðurinn Maciej Łobczowski á veg og vanda af ásamt þeim Marc Alexander og Rafal Jan Koczanowicz sem opnaði í Templaranum á Fáskrúðsfirði var svo endapunkturinn á hátíðinni. og var hún virklega vel sótt.

Takk öll þið sem lögðuð leið ykkar á tónleika og sýningar hjá okkur í sumar og áttu þátt í því að gera þetta að ógleymanlegri hátíð. Takk öll þið sem lögðu hönd ykkar á plóginn, fjölluðu um það sem hér var að gerast og hjálpuðu okkur með viðburðahald og annað tilfallandi, og að lokum hjartans þakkir til þessa stóra hóps listafólks sem tók þátt í Innsævi og kom víða að til að lyfta andanum og gefa af sér á svo undursamlegan, óeigingjarnan og mikilvægan hátt!

https://www.fjardabyggd.is/vidburdir-frettir-og-tilkynningar/lesa-frettir-og-vidburdir/innsaevi-menningar-og-listahatid-fjardabyggdar

Dásamlegir tónleikar í gærkvöldi í Frystihúsið Breiðdalsvík þar sem tríó Inga Bjarna fór á kostum!Lokatónleikar Innsævis...
19/07/2024

Dásamlegir tónleikar í gærkvöldi í Frystihúsið Breiðdalsvík þar sem tríó Inga Bjarna fór á kostum!

Lokatónleikar Innsævis eru svo í dag með tríói Inga Bjarna á Eskifirði kl. 17:00. Enginn aðgangseyrir!

Yndislegur djass af bestu gerð í Tónlistarmiðstöðinni með Tríói Inga Bjarna sem er nýbúið að senda frá sér hina frábæru plötu Fragile Magic en tónlistin er undir áhrifum frá ýmsum tónlistarstefnum eins og djassi og Norrænum þjóðlögum.

Með Inga Bjarna leika Magnús Tryggvason Eliassen á trommur og Bárður Reinert Poulsen frá Færeyjum á bassa. Tríóið hefur leikið saman frá árinu 2017, en fyrri plata tríósins kom út árið 2018 og hlaut tríóið viðurkenningu til íslensku tónlistarverðlaunanna sem djassflytjandi ársins.

Fyrir tónleikana í kirkjunni mun tríóið gleðja íbúa Hulduhlíðar með nokkrum lögum 🌱

ÓM í dag í Tónspil. Mögnuð upplifun!
18/07/2024

ÓM í dag í Tónspil. Mögnuð upplifun!

Lokavika Innsævis er hafin! Í vikunni eru fjölbreyttir viðburðir í boði 🥳 Þetta er líka síðasta vikan þar sem sýningin h...
17/07/2024

Lokavika Innsævis er hafin! Í vikunni eru fjölbreyttir viðburðir í boði 🥳 Þetta er líka síðasta vikan þar sem sýningin hans Marc Alexander er opin í Sólbrekku, Mjófirði. Í vikunni verður ÓM - Hljóðinnsetning í Tónspil. Tónleikar með tríói Inga Bjarna í frystihúsinu í Breiðdalsvík. Lokatónleikar Innsævis með tríói Inga Bjarna í Tónlistarmiðstöð Austurlands, Eskifirði. Sýningin Pressuð Flóra Íslands eftir Maciej Łobczowski verður með opnun í Templarinn á Fáskrúðsfirði. 🪻 Frekari upplýsingar á myndinni hér að neðan.

Geggjaður djass af bestu gerð með Tríói Inga Bjarna sem er nýbúið að senda frá sér hina frábæru plötu Fragile Magic en t...
15/07/2024

Geggjaður djass af bestu gerð með Tríói Inga Bjarna sem er nýbúið að senda frá sér hina frábæru plötu Fragile Magic en tónlistin er undir áhrifum frá ýmsum tónlistarstefnum eins og djassi og Norrænum þjóðlögum en uppspretta tónlistarinnar er dularfull.

18. júlí - Tónleikar í Frystihúsinu Breiðdalsvík kl. 20:00. Enginn aðgangseyrir.

19. júlí - Lokatónleikar Innsævi í Tónlistarmiðstöð Austurlands Eskifirði kl. 17:00. Enginn aðgangseyrir.

Með Inga Bjarna leika Magnús Tryggvason Eliassen á trommur og Bárður Reinert Poulsen frá Færeyjum á bassa. Tríóið hefur leikið saman frá árinu 2017, en fyrri plata tríósins kom út árið 2018 og hlaut tríóið viðurkenningu til íslensku tónlistarverðlaunanna sem djassflytjandi ársins.

Dásamlegir tónleikar í gærkvöldi þar sem Dundur kom fram í BRJÁN : Blús, Rokk og Jazz klúbburinn Á Nesi. Þvílík veisla! ...
13/07/2024

Dásamlegir tónleikar í gærkvöldi þar sem Dundur kom fram í BRJÁN : Blús, Rokk og Jazz klúbburinn Á Nesi. Þvílík veisla! Takk kærlega fyrir okkur Guðmundur Höskuldsson og félagar, Guðjón Birgir Jóhannsson fyrir gott hljóð og Kormákur Valdimarsson fyrir magnaða innkomu undir lokin. Við erum heppin með gott tónlistarfólk hérna fyrir Austan og ekki spillir fyrir að eiga staði eins og Tónspil til að njóta hæfileika þeirra 🌱 Takk öll þið sem fjölmenntuð á tónleikana 🙏

12/07/2024

Vel heppnað Jóga í gær og tónlistin róaði huga og sál. Við endurtökum leikinn á Reyðarfirði við Stríðsárasafnið á morgun kl. 15:00. Sjáumst þar 🧘🏼‍♀️

Á morgun verður stuð á Reyðarfirði. Opin leirvinnustofa / Open ceramic gallery hjá Esther Ösp frá kl. 13-15. Jóga og íhu...
12/07/2024

Á morgun verður stuð á Reyðarfirði. Opin leirvinnustofa / Open ceramic gallery hjá Esther Ösp frá kl. 13-15. Jóga og íhugun með lifandi tónlist undir berum himni við Stríðsárasafnið kl. 15:00 og listasýningin Hernám eftir Marc Alexander verður opin í Bragganum frá kl. 13-17.

Sjáumst í góða veðrinu á Reyðarfirði á morgun ☀️

Það spáir bongó blíðu hér fyrir austan og það verður mikið um að vera næstu dagana á Innsævi. Fríða Ísberg segir frá í R...
10/07/2024

Það spáir bongó blíðu hér fyrir austan og það verður mikið um að vera næstu dagana á Innsævi. Fríða Ísberg segir frá í Randulffssjóhúsi á Eskifirði kl. 21:00 á fimmtudaginn. Svo er það Jóga og íhugun með lifandi tónlist undir berum himni og Dundur - Tónleikar í Tónspil. Við minnum einnig á að sýningin Hernám eftir Marc Alexander í Bragganum við Stríðsárasafnið er opin næstu daga og yfir helgi frá 13:00-17:00. ☀️

Á laugardaginn er úr mörgu að velja en á Reyðarfirði verður opin leirvinnustofa hjá listakonunni Esther Ösp & ceramics og Jóga með lifandi tónlist undir berum himni hjá Stríðsárasafninu. Um kvöldið verður hljómsveitin CHÖGMA ásamt Social Su***de með tónleika í Skrúði á Fáskrúðsfirði. 🎸

Njótum góða veðursins og menningarinnar saman 💛

Address

Þórsmörk/Þiljuvellir 11
Neskaupstaður

Telephone

+3544709000

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Innsævi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category