07/09/2025
Í haust verða í boði Leikgleðinámskeið fyrir 8-16 ára. Námskeiðin verða kennd tvisvar í viku, á mánudögum og miðvikudögum, hefjast þann 13. október og lýkur með sýningu í Bæjarleikhúsinu þann 12. nóvember.
Á námskeiðunum vinna nemendur með sjálfstraust, framkomu og framsögn, sigrast á feimni og kynnast hinum ýmsu þáttum sem snúast að leikhússtarfi.
Allar nánari upplýsingar og skráning er á www.leikgledi.is 🎭
Leikgleði námskeiðin eru á vegum Leikfélags Mosfellssveitar og hafa verið starfrækt síðan 1996. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-16 ára. Stundum er einnig boðið uppá námskeið fyrir 18 ára og eldri. Öll námskeiðin enda með sýningu í Bæjarleikhúsinu.