19/05/2025
ÓPERAN HUNDRAÐ ÞÚSUND MEÐ FJÓRAR TILNEFNINGAR TIL GRÍMUVERÐLAUNA
Í dag voru tilnefningar til Grímuverðlauna opinberaðar með viðhöfn í Tjarnarbíói. Við erum óumræðanlega stolt af þeim fjórum tilnefningum sem Óperan hundrað þúsund fékk en þær eru:
Þórunn Gréta Sigurðardóttir: tónlist og hljóðmynd ársins,
Herdís Anna Jónasdóttir: söngur ársins,
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir: leikstjórn ársins,
Guðný Hrund Sigurðardóttir: búningar ársins.
Til hamingju, snillingar!
Óperan hundrað þúsund var sviðsett fyrir rétt um ári síðan, af Svörtum jakka í samstarfi við Þjóðleikhúsið.