13/03/2026
Framkvæmdir í félagsaðstöðu AÍFS.
Gaman að segja frá því að AÍFS býr svo vel að eiga sína eigin bækistöð sem er Pitturinn hinn eini og sanni. Við getum seint full þakkað dugnaði, framsýni og áræðni nokkurra félaga okkar sem réðust í þessu húsnæðiskaup fyrir 15 árum síðan félaginu til heilla. Aðstaðan var græjuð eins og efni og aðstæður gáfu til á sínum tíma en lítið hefur verið gert fyrir aðstöðuna síðan þá og öllium ljóst löngu er kominn tími á að taka aðeins til hendinni. Nú höfum við áhuga á að koma á fót framkvæmdahópi til að lappa upp á aðstöðuna okkur og gera hana meira aðlaðandi fyrir félagmenn. Okkur langar að fara mörg verkefni en gerum þau ekki öll í einu nema með góðri aðstoð félagsmanna og leitum því til áhugasamra, handlögnum, iðnaðarmönnum, wanabees og styrktaraðilum til að aðstoð okkur við framkvæmdir.
Það er af nægu að taka en til ða nefna eitthvað þá eru hér örfá atiriði sem hægt er að ganga beint í:
1. Smíða og gluggavinna
2. Rífa milliveggi
3. Smíða milliveggi
4. Laga kerfisloft
5. Laga glugga að utan þ.e. þéttilistar og mála
6. Smíða glugga og koma í g*t á austur hlið húsinu
7. Pípulagnir - Ofnalagnir
8. Múrbrot - Brjóta aðeins upp úr gólfi til að komast í skolplögn
9. Tilfærsla á salerni
10. Flísar og flísalagnir
11. Raflagnir í nýtt salerni og geymslu
12. Ganga frá lýsingu í lofti
13. Lýsing á plani – koma upp nýrri lýsingu að utan
14. Málningar og sparslvinna í sal og félagsaðstöðu
15. Mála suðurgaflinn á húsinu
16. Blikkvinna - Koma fyrir loftræstikerfi sem við eigum til
17. Vatnsþétting milli gólfs og milliveggja í sal
18. Og svo fellur alltaf eitthvað annað til þegar menn hittast og fara yfir málin saman
Samhliða þessum breytingum á aðstöðunni langar okkur að fríska aðeins upp á húsgögnin í aðstöðunni. Það væri gott ef félagsmenn hefðu augun opin fyrir sófum, borðstofuborði, stólum, eldhús og baðinnréttingu helst með tækjum, ísskáp (ekki verra ef hann er með glerhurð), skolvask og einhverju öðru sem nýst gæti í góðri félagsaðstöðu.
Félagsmönnum er frjálst að styrkta verkefnið sem gæti t.d. nýst í bókhaldi með m.a.
• Málningarkaupum
• Flísakaupum
• Smíðaefniskaupum
• Raflagnaefni
• Lampakaupum
Allir sem áhuga hafa á að taka þátt í skemmtilegu verkefni við að viðhalda fasteingar félagsins ættu að geta fengið verkefni.
Allir sem koma að verkefninu á einn eða annan hátt fá nafnið sitt á Pittsins Wall Of Fame.
Þeir sem vilja tala þátt setji sig í samband við formann húsnefndar Hjörvar Örn Brynjólfsson á messenger. Hlökkum til að heyra frá ykkur.