BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ

BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ er haldin í lok apríl ár hvert 🫘✨💛

Hér mun birtast efni tengt BAUN, Barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ og dagskrá eftir því sem hún tekur á sig mynd. Hátíðin hefur verið haldin í ýmsu formi frá árinu 2006 þegar einn leikskóli í bænum bauð foreldrum til lítillar Listahátíðar í Duus Safnahúsum. Síðan hefur hátíðin stækkað og dafnað og nú taka þátt í henni allir 10 leikskólar bæjarins, allir 6 grunnskólarnir, Fjölbrautaskóli Suðurn

esja, Tónlistarskóli Reykjanesbæjar, Danskompaní og Bryn Ballett Akademían í samstarfi við Listasafn Reykjanesbæjar sem heldur utan um hátíðina. Hátíðin samanstendur af glæsilegum listsýningum frá öllum skólastigum í Duus Safnahúsum, Hæfileikahátið grunnskólanna í Stapa og fjölskyldudagskrá þar sem boðið er upp á fjölbreytta dagskrá og viðfangsefni fyrir börn og fjölskyldur þeim að kostnaðarlausu. Við hvetjum bæjarbúa, félög og fyrirtæki til að taka virkan þátt í hátíðinni með okkur og efla barnamenningu af öllu tagi samfélaginu öllu til heilla.

Sjáumst í skapandi útismiðju með Memmm og Fjörheimum um helgina 💛✨🎨Einn af okkar uppáhalds viðburðum á BAUN, Skessuskokk...
08/05/2026

Sjáumst í skapandi útismiðju með Memmm og Fjörheimum um helgina 💛✨🎨

Einn af okkar uppáhalds viðburðum á BAUN, Skessuskokkið 🦶🏼, verður einnig á sínum stað ásamt nýjum og frábærum viðburði sólmyrkvasmiðjunni 🪐 í Duus sem sló í gegn síðustu helgi og svo endum við hátíðina á Danspartýi 💃 í Hljómahöll þar sem að ofurhetjurnar Sólon, Dimma dúskur mæta á svæðið ásamt DJ Röggu Holm og Bjössa brunabangsa 🧸🚒

Fjölskyldufjör í IceMar höllinni á BAUN 🫘✨⛹️‍♀️Fullt hús af gleði og góðri stemningu. Takk kærlega fyrir komuna og samve...
07/05/2026

Fjölskyldufjör í IceMar höllinni á BAUN 🫘✨⛹️‍♀️

Fullt hús af gleði og góðri stemningu. Takk kærlega fyrir komuna og samveruna 💛

Ekki missa af stútfullri dagskrá út vikuna á BAUN 👉 www.baun.is

Listahátíð barna var sett við hátíðlega athöfn í dag!🎨 Allir leikskólar bæjarins tóku þátt í því að skapa glæsileg lista...
30/04/2026

Listahátíð barna var sett við hátíðlega athöfn í dag!🎨

Allir leikskólar bæjarins tóku þátt í því að skapa glæsileg listaverk fyrir sýninguna sem er innblásin af náttúrunni á Reykjanesinu og stendur hún yfir í Listasafni Reykjanesbæjar 30. apríl.–10. maí. Börnin sem lögðu sitt af mörkum voru boðin velkomin á setninguna í dag og var þar svo sannarlega líf og fjör! Þetta eru einfaldlega algjörir snillingar ✨

Listahátíðin er hluti af BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ og við hvetjum alla til að kíkja við og njóta listarinnar sem litlu listamennirnir okkar hafa skapað 💛

Dagskráin er stútfull af frábærum viðburðum á www.baun.is 🫘

🌟 Hæfileikahátíð grunnskólanna á BAUN 🌟Allir 6. bekkingar úr grunnskólum Reykjanesbæjar komu saman, sýndu og nutu frábær...
30/04/2026

🌟 Hæfileikahátíð grunnskólanna á BAUN 🌟

Allir 6. bekkingar úr grunnskólum Reykjanesbæjar komu saman, sýndu og nutu frábærra atriða, á meðan aðrir árgangar fylgdust með í beinni útsendingu 💃🕺🪩

Á sviðið stigu hugrakkir og hæfileikaríkir krakkar sem skemmtu áhorfendum með söng, dansi og leiklist. Hátíðin sýndi vel þann kraft sem býr í börnunum okkar! Til hamingju öll 💛

BAUN hefst á fimmtudag! ✨🎨🌿BAUN, barna- og ungmennahátíð Reykjanesbæjar, fer fram dagana 30. apríl – 10. maí. Á BAUN eru...
28/04/2026

BAUN hefst á fimmtudag! ✨🎨🌿

BAUN, barna- og ungmennahátíð Reykjanesbæjar, fer fram dagana 30. apríl – 10. maí. Á BAUN eru börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra sett í forgang og boðið upp á fjölbreytta og aðgengilega dagskrá fyrir alla aldurshópa.

Nú í vikunni fá öll leikskólabörn og nemendur í 1.–7. bekk afhent BAUNabréf. Tilgangur þess er að hvetja börn og fjölskyldur til að fara á kreik, taka þátt í fjölbreyttum verkefnum og safna stimplum eða leysa þrautir 💌

Kíktu á www.baun.is til að sjá heildardagskrána 🫘
Góða skemmtun á BAUN! 🍭🌞💛

28/04/2026

Það er alveg að koma að þessu!! ✨

Hátíðin stendur yfir dagana 30. apríl–10. maí og fram undan er fjölbreytt og skemmtileg dagskrá! Kíktu á www.baun.is til að sjá heildardagskrána 🫘

Góða skemmtun á BAUN! 🍭🌞💛

Address

Reykjanesbær
Keflavík
230

Telephone

+3544216700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to BAUN, barna- og ungmennahátíð í Reykjanesbæ:

Share

Category