Leikfélag Keflavíkur

Leikfélag Keflavíkur Frumleikhúsið &
Stjórn Leikfélagsins

Stjórn Leikfélags Keflavíkur 2022-2023

Formaður: Sigurður Smári Hansson
Vara-formaður: Arnar Helgason
Gjaldkeri: Brynja Ýr Júlíusdóttir
Ritari: Lísa Einarsdóttir
Meðstjórnandi: Ingvar Elíasson
Varamenn: Birgitta Ösp Smáradóttir og Tara Sól Sveinbjörnsdóttir

Stjórn Unglingadeildar L.K. 2022-2023

Sandra Dís Arnarsdóttir
Helga Rut Guðjónsdóttir
Kamilla Rós Hjaltadóttir
Margrét Arna Ágústsdóttir
Þórhildur Erna Arnardóttir

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Reykjanesbæ um helgina. Bandalagið fagnar 75 ára afmæli í ár ...
30/04/2026

Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður haldinn í Reykjanesbæ um helgina. Bandalagið fagnar 75 ára afmæli í ár og af því tilefni verður haldin stuttverkahátíð í Frumleikhúsinu, Vesturbraut 17, föstudaginn 1. maí kl. 18:00.

Áhugaleikfélög víðs vegar af landinu munu sækja fundinn og þar af eru sjö leikfélög sem setja á svið stuttverk.

Bæjarbúar, og aðrir góðir gestir, eru hjartanlega velkomnir að koma og njóta þessarar skemmtilegu hátíðar með okkur. Það er frítt inn en við bendum á að fjöldi sæta er takmarkaður og því gott að mæta tímanlega. Húsið opnar kl.17:30.

Við hlökkum til að sjá ykkur í Frumleikhúsinu 🎭

LOKASÝNINGAR Á WE WILL ROCK YOU 🤘Lokasýningar á söngleiknum We Will Rock You eru komnar í sölu. Áhorfendur eru allir á s...
08/04/2026

LOKASÝNINGAR Á WE WILL ROCK YOU 🤘

Lokasýningar á söngleiknum We Will Rock You eru komnar í sölu. Áhorfendur eru allir á sama máli - Þetta er sýning sem þú mátt ekki missa af 🎸

Miðasala á https://tix.is/event/21080/we-will-rock-you

19/03/2026

Söngleikurinn We Will Rock You var frumsýndur hjá Leikfélagi Keflavíkur föstudagskvöldið 6. mars við kröftugar undirtektir hjá fullu húsi áhorfenda. Sýningin þykir bera vott um óvenju mikinn metnað og samheldni en sérstaka athygli vekur hversu djarflega og skemmtilega verkið hefur...

Ertu ekki alveg örugglega búin að íhuga það að tryggja þér miða á þessa sýningu? Það er allt að fyllast.
18/03/2026

Ertu ekki alveg örugglega búin að íhuga það að tryggja þér miða á þessa sýningu? Það er allt að fyllast.

Að ná að setja upp svona vandaða og stóra sýningu er afrek sem leikfélagsfólkið og bæjarbúar mega vera stoltir af.�Að sö...
11/03/2026

Að ná að setja upp svona vandaða og stóra sýningu er afrek sem leikfélagsfólkið og bæjarbúar mega vera stoltir af.�
Að sögn aðstandenda er sýningin “bilað magn af talenti” og hvatning til Suðurnesjamanna og annarra landsmanna er skýr: Ekki missa af þessari sýningu- þú átt eftir að sjá eftir því.
-Hilmar Bragi, Víkurfréttir

Frumsýningin gekk frábærlega og við erum ótrúlega þakklát fyrir viðtökurnar! 💛Önnur sýning í kvöld og því miður er uppse...
08/03/2026

Frumsýningin gekk frábærlega og við erum ótrúlega þakklát fyrir viðtökurnar! 💛

Önnur sýning í kvöld og því miður er uppselt á hana

Fyrir ykkur sem viljið tryggja ykkur miða á næstu sýningar mælum við með að vera snögg – miðasalan er í fullum gangi á tix.is 🎟️

LEIKHÓPURINN Í WE WILL ROCK YOUGuðjón Smári - Galíleó---Hvað færðu þér í morgunmat? Ég fæ mér oftast 2 ostaslaufur í  mo...
06/03/2026

LEIKHÓPURINN Í WE WILL ROCK YOU

Guðjón Smári - Galíleó

---

Hvað færðu þér í morgunmat? Ég fæ mér oftast 2 ostaslaufur í morgunmat. Annars ekki neitt. Fæ mér samt alltaf einn orkudrykk til að byrja daginn.

Hvað er uppáhalds Queen lagið þitt? Ég get ekki valið milli Who wants to live forever, Somebody to Love & Love of my life.

Ef þú mættir skipta um hlutverk í sýningunni - hvaða hlutverk myndirðu velja? Ef ég ætti að skipta um hlutverk myndi ég skipta í Khasoggi!

Besta móment í ferlinu hingað til? Besta mómentið í ferlinu er alltaf Arnar sem Brit… Þvílíkur leiksigur.

LEIKHÓPURINN Í WE WILL ROCK YOUMargrét Arna - Scaramouche---Hvað færðu þér í morgunmat? Fæ mér nær aldrei morgunmat 🫣Hva...
06/03/2026

LEIKHÓPURINN Í WE WILL ROCK YOU

Margrét Arna - Scaramouche

---

Hvað færðu þér í morgunmat? Fæ mér nær aldrei morgunmat 🫣

Hvað er uppáhalds Queen lagið þitt? Uppáhalds Queen lagið mitt er ábyggilega Bicycle Race 🚴

Ef þú mættir skipta um hlutverk í sýningunni - hvaða hlutverk myndirðu velja?
Ef ég væri ekki Scaramouche væri ég til í að vera Killer Queen, hún er með svo skemmtileg lög!

Besta móment í ferlinu hingað til? Besta mómentin eru alltaf í hlátri! Þegar Kristín fékk hláturskast, þegar mótleikari minn var með hor (iykyk) og þegar var verið að kenna mér lyftur (iykyk)

Víkurfréttir kíktu á æfingu til okkar í vikunni 🤩FRUMSÝNING Í KVÖLD ❤️‍🔥🎸
06/03/2026

Víkurfréttir kíktu á æfingu til okkar í vikunni 🤩

FRUMSÝNING Í KVÖLD ❤️‍🔥🎸

LEIKHÓPURINN Í WE WILL ROCK YOUBirgitta Ösp - Killer Queen---Hvað færðu þér í morgunmat? Vatnsglas... mjög mikilvægt og ...
05/03/2026

LEIKHÓPURINN Í WE WILL ROCK YOU

Birgitta Ösp - Killer Queen

---

Hvað færðu þér í morgunmat? Vatnsglas... mjög mikilvægt og svo bara einn rjúkandi heitur kaffibolli

Hvað er uppáhalds Queen lagið þitt? Uppáhalds lagið mitt er Bohemian Rhapsody á rúntinum og eins gott að allir taka þátt. Í sýningunni er það samt Who wants to live forever

Ef þú mættir skipta um hlutverk í sýningunni - hvaða hlutverk myndirðu velja? Pop en bara útaf því Arnar er búinn að gera hann svo skemmtilegan

Besta móment í ferlinu hingað til? Veit ekki hvort þetta sé eitthvað svaka moment en þegar ég mætti í fyrsta danstíman og fékk staðfestingu að ég þurfti ekki að læra einhvern svaka dans... MJÖG ánægð með það

Address

Vesturbraut 17
Keflavík
230

Telephone

+3544212540

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leikfélag Keflavíkur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Leikfélag Keflavíkur:

Share