Í holtunum heima

Í holtunum heima Tónleikarnir verða á opnu svæði milli Háholts og Lyngholts í Keflavík og er inngangur inn á svæðið frá Háholti, um göngustíg milli Háholts 15 og Háholts 17.

Kæru tónleikagestirVið eigum vart orð til að lýsa þakklæti okkar fyrir gærkvöldið. Tónlistin, veðrið, stemmingin, hlýjan...
06/09/2025

Kæru tónleikagestir
Við eigum vart orð til að lýsa þakklæti okkar fyrir gærkvöldið.
Tónlistin, veðrið, stemmingin, hlýjan og gleðin sem fyllti Holtin var ólýsanleg 💫
Takk kærlega fyrir komuna og gleðilega Ljósanótt ❤️

Undirbúningur búinn að standa yfir í allan dag og gengið vel. Getum ekki beðið eftir að taka á móti ykkur á morgun 😀
04/09/2025

Undirbúningur búinn að standa yfir í allan dag og gengið vel. Getum ekki beðið eftir að taka á móti ykkur á morgun 😀

03/09/2025

Þeir sem ekki náðu að sækja armbönd í gær/dag geta sótt þau á morgun á skrifstofu Keflavíkur í íþróttahúsinu við Sunnubraut milli kl 10-14.
Ath. það flýtir mjög fyrir afgreiðslu á föstudagskvöld ef sem flestir eru búnir að ná í armbönd.
Hlökkum til að sjá ykkur í Holtunum á föstudag 🙂

Kæri tónleikagestur Nú styttist í tónleikana „Í holtunum heima“ og við hlökkum mjög mikið til að sjá þig 🎉Hér eru nokkur...
31/08/2025

Kæri tónleikagestur

Nú styttist í tónleikana „Í holtunum heima“ og við hlökkum mjög mikið til að sjá þig 🎉
Hér eru nokkur praktísk atriði sem gott er að hafa í huga.

Afhending armbanda
Við hvetjum alla tónleikagesti til þess að ná í armbönd sem virka sem aðgangsmiði inn á tónleikasvæðið. Afhending armbanda fer fram á skrifstofu Keflavíkur (íþróttafélags) í íþróttahúsinu við Sunnubraut, 2.og 3.sept. milli kl. 10:00 -14:00 báða dagana. Sýna þarf kvittun frá TIX fyrir miðakaupunum til að fá armböndin afhent. ATHUGIÐ að ekki er nauðsynlegt að ná í armband en það flýtir mjög fyrir afgreiðslu á tónleikastað. Mikil örtröð getur myndast við innganginn á tónleikana en þeir sem eru með armbönd geta gengið inn á svæðið án þess að þurfa að bíða í langri biðröð.
Uppselt er á tónleikana og verða tæplega 800 manns á svæðinu og því mikilvægt að afgreiðsla gangi hratt og vel fyrir sig.

Sala veitinga
Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 21.00 en svæðið opnar kl. 19:30. Plötusnúður mun spila góða tónlist á milli 20-21. Knattspyrnudeild Keflavíkur sér um sölu drykkja á svæðinu þar sem m.a. verður hægt að kaupa bjór, Bara, léttvín og gos. Tveir matarvagnar verða á svæðinu. Silli kokkur verður með sinn frábæra matarvagn á staðnum og auk þess verður vagn frá Bæjarins bestu pulsum þannig að við hvetjum fólk til að mæta tímanlega og fá sér léttar veitingar áður en tónleikarnir hefjast.

Dagskráin og tímasetningar
19.30 Svæðið opnar
20:00 Ragga Holm sér um að koma liðinu í gang
21:00 Tónleikar hefjast – Friðrik Ómar, Stefán Hilmars, Sigga Beinteins og Matti Matt.
23.30 Dagskrá lýkur

Bílastæði og aðgengi :
Við hvetjum ykkur öll til að koma gangandi á svæðið og takmarka umferð um nærliggjandi íbúðagötur. Næg bílastæði eru við Fjölbrautaskólann, við Sundlaugina og við Holtaskóla. (sbr.meðfylgjandi mynd)
Inngangur inn á svæðið er um göngustíg milli Háholts 15 og Háholts 17. Ekki er mögulegt að koma inn á svæðið annars staðar frá þar sem það er afgirt frá öðrum stöðum. Í lok tónleika verður einnig opnað fyrir aðgengi niður á Lyngholt og verður þá hægt að yfirgefa svæðið bæði til vesturs og austurs.

Góða skemmtun og gleðilega Ljósanótt 🫶🏻

Kæru tónleikagestirVið þökkum fyrir frábærar viðtökur. Nú eru aðeins um 20 miðar óseldir og ljóst að uppselt verður á vi...
25/07/2025

Kæru tónleikagestir
Við þökkum fyrir frábærar viðtökur. Nú eru aðeins um 20 miðar óseldir og ljóst að uppselt verður á viðburðinn. Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur 5.sept. nk.

Kæru tónleikagestir !Við þökkum fyrir frábærar viðtökur. Nú eru aðeins um 20 miðar óseldir og ljóst að uppselt verður á ...
25/07/2025

Kæru tónleikagestir !
Við þökkum fyrir frábærar viðtökur. Nú eru aðeins um 20 miðar óseldir og ljóst að uppselt verður á Holtin heima þetta árið !
Við hlökkum mikið til að taka á móti ykkur 5.sept. n.k.

Minnum á miðasöluna á tix kl 12 á morgun föstudag 🕺🕺
24/07/2025

Minnum á miðasöluna á tix kl 12 á morgun föstudag 🕺🕺

Miðasala hefst á tix nk föstudag kl 12. Nú er bara að setja sig í startholurnar, stilla klukkuna og panta miða 🕺🥳 Hlökku...
22/07/2025

Miðasala hefst á tix nk föstudag kl 12. Nú er bara að setja sig í startholurnar, stilla klukkuna og panta miða 🕺🥳 Hlökkum til að taka á móti ykkur á Ljósanótt

https://tix.is/event/19948/i-holtunum-heima

21/07/2025

Kæru vinir, við vorum að frétta af því að verið er að deila leiknum sem var í gangi á síðunni fyrir 2 árum. Við erum ekki með neinn leik i gangi eins og er svo það er til lítils að deila 😎

18/07/2025

Þið getið byrjað að láta ykkur hlakka til. 🥳Upplýsingar um miðasölu mun birtast eftir helgi.❤️💙

Address

Háholt 15-17
Keflavík
230

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Í holtunum heima posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share