Föndra er ein helsta og stærsta föndurbúð landsins og er opin alla virka daga 11:00-17:00 í verslun okkar að Dalvegi 18 í Kópavogi, en alltaf er opið í netverslun okkar www.fondra.is. Vöruúrval okkar er mjög fjölbreytt en hjá okkur er að finna allt í saumaskapinn, og glæsilegasta úrval landsins af barnaefnum. Við erum með garn frá spænska vörumerkinu Katia sem hefur vakið mikla lukku hjá viðskipta
vinum okkar, en einnig er að finna prjóna, heklunálar, prjónabækur og smávöru. Föndurdeildin okkar er ótrúlega fjölbreytt - þar geymum við alls kyns föndur fyrir krakka t.d. Painting By Numbers, tilbúna föndurpakka o.fl., allt fyrir veisluundirbúninginn en þar má helst nefna gestabækur, kerti, servíettur, styttur og skraut. Ekki má gleyma málningadeildinni okkar en Folk Art er stærsta vörumerki okkar og seljum við akríl- og kalkmálningu, pensla og áhöld og allskyns aukaefnum t.d. Mod Podge, krítartöflumálningu, Glow in the dark málningu, allskyns lökk og smávöru. netfang: fondra -hjá- fondra.is