12/06/2026
Mér fannst gaman að skrifa þessa senu í IKEA, við eigum öll okkar upplifun þar frá öllum árstíðum, þess vegna var skemmtilegt að láta Jesús fara þangað og borða kjötbollur (vegan). Fljótlega mun ég birta brot úr næstu bók sem gerist í sama heimi sem heitir einfaldlega Guðir og annað fólk II. Hún kemur út síðar á þessu ári ef guð lofar:
(ATH: það er aldrei ætlun mín að hæðast að trú eða trúarbrögðum, það er meira verið að taka trúarlegar hugmyndir og skapa súrrealíska karaktera og aðstæður).
Jesús gekk öruggum skrefum í átt að rúllustiga. Öryggis¬vörðurinn var tómlegur á svipinn.
Það stafaði óræðum bjarma af honum þarna í stiganum og fólk nálægt honum brosti dreymandi. Hann gekk áfram inn á veitingastað Ikea, fór í röðina og greip bakka og glas. Þegar kom að honum spurði afgreiðslu-kona þreytulega: „Hvað get ég gert fyrir þig?“ Jesús leit á hana brosandi. „Takk, barnið mitt, þú mátt láta mig fá tíu vegan-kjötbollur og týtuberjasultu, mikið af týtuberja¬sultu!“ Hann settist við borð með veitingarnar ásamt vatnsglasi og byrjaði að borða af áfergju, hann var svangur.
Eiríkur rauði, maður um fimmtugt í dökkbláum flau-els¬buxum, ósmekklegum bátaskóm, primaloftúlpu og með ferköntuð gleraugu horfði kaldur á svip á afgreiðslu¬manninn sem sagði: „Hvað get ég gert fyrir þig?“
„Reyktan lambaskanka og mikið af hvítri sósu.“ Honum lá lágt rómur en það var samt eitthvað ógnvekj-andi við þessa rödd og það var líka eitthvað ógnandi við normaliserað primaloft-útlit þessa manns.
Eiríkur rauði leit út fyrir að vera leiðinlegasta týpa í heimi, hann var alltaf með frosinn svip, gekk í köflóttum skyrtum, með ferköntuð gleraugu í málmumgjörðum og ef hann var ekki í primaloftúlpu var hann í barbourjakka. Flestir lásu hann rangt því hann var í raun hættulegasti launmorðingi veraldar með þúsundir morða á samvisk¬unni.
Hann settist við borð fyrir aftan Jesús, sem virtist ekki taka eftir honum, enn að borða veganbollurnar. Barn í TripTrap-stól gaf Jesúsi illt auga, hann hrökk aðeins við, þetta gæti verið slæmur fyrirboði og hann var hjátrúar-fullur.
Um leið byrjaði náunginn í primaloftúlpunni að tala. „Herra Jesús, þetta eru skilaboð frá Tromp, hann bað mig um að þú fengir þau persónulega án allra milliliða, svo hér er ég.“ Hann stakk upp í sig góðum bita af hangikjöti og skóflaði svo upp í sig kartöflum og rauðkáli og tuggði.
„Rómverskur riddari, réðst inn í Rómarborg, rændi og ruplaði rabarbara og rófum. Hvað eru mörg r í því? Ha, ha, ha!“
Primaloft-maðurinn hafði fengið hláturskast svo að hangikjöt og baunir frussuðust í allar áttir.
Jesús brosti pirraður og stakk upp í sig veganbollu. Hann hallaði sér aftur með því að láta stólinn vega salt þannig að hann talaði þétt upp við eyra Primalofts. „Eirík¬ur minn, þú heldur greinilega að þetta sé brandari, þessi gamli íslenski tungubrjótur, en þetta voru dulkóðuð skilaboð sem þú ert allt of lágt settur til að hafa aðgang að.“ Hann brosti og hélt áfram að borða.
Trip Trap-barnið gaf honum enn illt auga en Jesús brosti og eins og skálaði til þess út í loftið með vegan-bollu. Eiríkur rauði stóð upp og gekk út af veitinga-staðnum, bláar flauelsbuxurnar og ósmekklegir báta-skórnir gáfu honum enn mjög þunglyndislegt yfirbragð. Hann hélt á gömlum Nokia-síma og sneri sér snöggt við og tók mynd af Jesús og veitingastaðnum.