01/12/2024
Nokkur skot frá fyrstu tónleikum laugardagsins í Hannesarholti kl. 11:00. Þrír nemendur úr Listaháskólanum, Yuichi Yoshimoto, Oliver Rähni og Styrmir Þeyr Traustason fluttu verk eftir Snorra Sigfús Birgisson, Árna Björnsson og Jórunni Viðar.
Erna Vala talaði um Jórunni Viðar og píanótónlistina hennar, og lék verk hennar Sortnar þú ský.
Þá komu fram Dr. Nína Margrét Grímsdóttir, Edda Erlendsdóttir og Dr. Kristín Jónína Taylor píanóleikarar en Snorri Sigfús Birgisson lokaði tónleikunum á verki sínu “Í stundarheimi”, sem var samið í minningu Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur píanóleikara.
erlendsdottir