Helga Lind Snyrtifræðimeistari

Helga Lind Snyrtifræðimeistari Öll almen snyrting

06/10/2017

Jæja kæru viðskiptavinir…
Þá eru heldur betur breytingar hjá mér í næsta mánuði.

Ég ákvað að sækja um starf þjónustufulltrúa hjá ISS.

Viti menn… ég fékk starfið! Og byrja að vinna á nýjum vettvangi í nóvember.

Ég verð á snyrtistofunni Tulip út mánuðinn, svo er ég hætt…
Það er óhætt að segja að það séu blendnar tilfinningar að berjast um í mér þessa dagana. Bæði er ég ótrúlega spennt fyrir nýja starfinu, og hlakka til að byrja, en ég er líka ótrúlega leið yfir því að þurfa að kveðja vinkonur sem hafa átt við mig viðskipti í fjöldamörg ár.

Ég á líka eftir að sakna samstarfskvenna minna, bæði á snyrtistofunni Tulip og á hárgreiðslustofunni Space.

Ég vil hvetja viðskiptavini mína að halda áfram að gera sig huggulegar, fínar og sætar, og panta sér tíma hjá stelpunum á Snyrtistofunni Tulip. Möggu Freyju, eða Margréti Jóns. (Sími: 566-6100)

Ef einhver á gjafabréf hjá mér, þá vil ég hvetja viðkomandi til þess að nota gjafabréfið í þessum mánuði. Endilega hafið samband tímanlega til þess að fá tíma. Það er orðið heldur þétt
setið síðustu dagana í mánuðinum, en eitthvað er enn laust.

Ég veit ekki hvernig ég á að koma fram þakklæti til ykkar sem hafa komið til mín reglulega eða óreglulega í allt að 10 ár. Takk fyrir traustið, takk fyrir að hafa bent vinkonum til mín, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við höfum átt í góðu spjalli í litla herberginu á snyrtistofunni. Það er ómetanlegt að eiga svona góða og skemmtilega viðskiptavini!

TAKK fyrir viðskiptin síðastliðin 10 ár elsku dúllurnar mínar!

06/09/2017

Langaði að minnast á að timabókanir i gegnum www.timatal.is/panta/tulip eru eins og staðan er aðeins i boði hjá mér. Stelpurnar á stofunni munu líklegast taka þetta í notkun fljótlega, og því ekki hægt að bóka tíma hja þeim, þó svo að kerfið bjóði uppá það...❤
https://www.timatal.is/panta/tulip

Kæru viðskiptavinir!  Ég búin að skipta um bókunarkerfi og ætla að gera okkur lífið auðveldara. Núna bókar þú tímann þin...
05/09/2017

Kæru viðskiptavinir! Ég búin að skipta um bókunarkerfi og ætla að gera okkur lífið auðveldara. Núna bókar þú tímann þinn í snyrtimeðferðir hjá mér á netinu. Ef þú þarft að afpanta tímann þinn, sendu mér þá skilaboð hér á facebook, hringdu á stofuna eða sendu mér sms. Ég afbóka þá tímann, og þú finnur þér nýjan tíma í gegnum bókunarkerfið á netinu. Ef eitthvað er óljóst hafið þá samband við Snyrtistofuna Tulip í síma 566-6100, eða í skilaboðum hér á facebook.
Til þess að bóka tíma hjá mér ferð þú inná https://www.timatal.is/panta/tulip.

Góðar stundir

Notendavænt tímabókunarkerfi fyrir skynsama fyrirtækjaeigendur.

01/08/2017

Kæru vinir. Ég ætla að vera í fríi í nokkra daga núna. Næstu lausu tímar eru 14. ágúst. Svara skilaboðum þann dag. En ykkur er velkomið að hringja á stofuna og panta tíma í síma 566-6100

15/05/2017

Tveir lausir tímar í kvöld kl 18:30 og 19:00. Ef einhver vill nýta sér það sendið mér þá línu:)

09/04/2017

Nú ætla ég að fara í smá frí, og svara engum skilaboðum fyrr en 24. apríl. Gleðilega páska, og hafið þið það nú ljómandi gott!

Microblading- hairstroke "tattoo"
22/02/2017

Microblading- hairstroke "tattoo"

Elska Green Peel. Þvílíkur munur!
22/02/2017

Elska Green Peel. Þvílíkur munur!

21/02/2017

Á einn lausan tíma í dag 15:30... og á morgun eru örfáir tímar lausir seinnipartinn :)

16/02/2017

Febrúar tilboð á Tulip.
Home care kit fylgir frítt með GREEN PEEL :)

Hvað er GREEN PEEL: Grunnurinn að GREEN PEEL meðferðinni er blanda af átta mismunandi jurtum: Ensím, steinefni og vítamín m.a. spírulína sem nuddað eru inn í húðina.
Meðferðin gengur þannig fyrir sig að eftir að búið er að þrífa húðina vel þá er jurtablöndunni nuddað rólega inn í hana. Þar sem blandan er fremur gróf er tilfinningin svolítið eins og verið sé að nudda sandkornum á hana og misjafnt hvernig fólk þolir við. Þannig er flögnunarferli húðarinnar virkjað. Loks er jurtablöndunni strokið af og maski og ampúla ef við á, þá er meðferð þá lokið í bili.

Áhrif þessarar meðferðar koma í ljós á 2-5 dögum eftir húðgerð hvers og eins. Á þeim tíma er mikilvægt að fylgja þeim ráðum sem snyrtifræðingur gefur og nota.

Tilboð í janúar.. Litun og plokkun fylgir frítt með öllum andlitsmeðferðum... fyrir ykkur....
12/01/2017

Tilboð í janúar.. Litun og plokkun fylgir frítt með öllum andlitsmeðferðum... fyrir ykkur....

Address

Hæðasmári 6
Kópavogur
201

Opening Hours

Monday 09:30 - 18:00
Tuesday 09:30 - 18:00
Wednesday 09:30 - 18:00
Thursday 09:30 - 18:00
Friday 09:30 - 18:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Helga Lind Snyrtifræðimeistari posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share