Tónsalir

Tónsalir Tónsalir er rytmískur tónlistarskóli þar sem gleðin ræður ferðinni í spilamennskunni.

Tónsalir er einkarekinn rytmískur tónlistarskóli sem stofnaður var árið 2005. Í skólanum er kennt eftir rytmískri námskrá, en rytmísk tónlist er safnheiti yfir djass, rokk, blús og aðrar tónlistartegundir sem teljast ekki til klassískrar tónlistar.

Í skólanum er boðið upp á einstaklingsbundið nám á gítar, píanó, rafbassa, trommur og söng sem rúmar mismunandi óskir og áherslur nemenda hverju sinni

. Þar að auki eru kennd bókleg fög á borð við tónfræði, tónheyrn og hljómfræði. Lögð er áhersla á listræna tónlistarfærni þar sem nemendur leggja ekki eingöngu áherslu á nótnalestur heldur einnig að spinna, útsetja, leika eftir eyra, koma fram og jafnvel semja. Með því öðlast nemandinn betri skilning á tónlist, það eflir frumkvæði hans, sköpunargáfu og sjálfstraust nemandans auk þess sem hann fær að njóta sín. Hlutverk tónlistarkennslu er ekki einungis bundið við að kenna nemendum tónlistarfærni sem þeir geta notað í nútíðinni því einnig þarf að kenna nemendum hvernig þeir geta haldið áfram að þroska tónlistarhæfileika sína. Markmið skólans er að það sé eftirsóknarvert fyrir nemendur að stunda nám í honum og að skólinn verði einnig eftirsóttur vinnustaður fyrir kennara. Skólinn leggur áherslu á að tónlistarnámið eigi að vera fjölbreytt og skemmtilegt.

Jón Geir trommari Skálmaldar gladdi ungan aðdáanda og trommunemanda Tónsala, með óvæntri heimsókn í trommutíma til hans....
24/04/2026

Jón Geir trommari Skálmaldar gladdi ungan aðdáanda og trommunemanda Tónsala, með óvæntri heimsókn í trommutíma til hans.
Nemandinn heitir Kjartan og stundar trommunám af fullum krafti hjá Þorvaldi trommukennara Tónsala 🙂🥁

27/03/2026

Í dag, föstudag 27.mars, er síðasti kennsludagur fyrir páskafrí. Minnum á að kennsla hefst svo aftur þriðjudaginn 7.apríl. Hafðið þið það sem allra best í páskafríinu.

Fengum til okkar frábæra gesti á starfsdegi kennara 📚Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir sagði okkur frá vegferð sinni um menn...
03/03/2026

Fengum til okkar frábæra gesti á starfsdegi kennara 📚
Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir sagði okkur frá vegferð sinni um menntakerfið og fræddi okkur um taugafjölbreytileika, aðgengi og inngildandi umhverfi. Hún stofnaði fyrirtækið Harts www.harts.is
Einnig kom til okkar Baldvin Logi Einarsson. Baldvin er sálfræðingur og starfar hjá Litlu kvíðameðferðarstöðinni. Hann fræddi okkur um kvíða í víðum skilningi.
Virkilega fróðlegt og gagnlegt fyrir tónlistarkennara.

Miðvikudaginn 18. Febrúar, var starfsdagur hjá kennurum í Tónsölum. Þá fengum við í heimsókn til okkar tvo fyrirlesara. ...
23/02/2026

Miðvikudaginn 18. Febrúar, var starfsdagur hjá kennurum í Tónsölum. Þá fengum við í heimsókn til okkar tvo fyrirlesara. Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir sagði okkur frá sinni vegferð um menntakerfið og fræddi okkur um taugafjölbreytileika, aðgengi og inngildandi umhverfi. Hún stofnaði fyrirtækið Harts (www.harts.is) og má með sanni segja að það var sérlega áhrifaríkt að heyra hennar sögu og veitti okkur kennurum innblástur. Einnig kom til okkar Baldvin Logi Einarsson. Baldvin er sálfræðingur og starfar hjá Litlu kvíðameðferðarstöðinni. Hann fræddi okkur um kvíða í víðum skilningi. Svo sannarlega gagnlegt fyrir tónlistarkennara að fræðast um kvíða nemanda. Frábær starfsdagur hjá okkur í Tónsölum þar sem við góð ráð og ný verkfæri til að vinna með okkar nemendum.

17/02/2026

Heil og sæl,
Mig langar að minna á að á morgun, öskudag, miðvikudaginn 18. febrúar, er starfsdagur kennara í Tónsölum og því engin kennsla þann dag.
Fimmtudaginn 19. febrúar og föstudaginn 20. febrúar er vetrarfrí í skólanum. Við fylgjum þar skipulagi grunnskólanna í Kópavogi, sem eru með vetrarfrí á sama tíma.
Næsti kennsludagur er því mánudagurinn 23. febrúar.
Við vonum að allir njóti samverunnar og komandi daga.
Með vinsemd og virðingu,

Gleðileg jól 🎄Hér má sjá nokkrar myndir af nemendum og gestum sem lögðu leið sína à jólatónleika Tónsala fyrr í desember...
27/12/2025

Gleðileg jól 🎄
Hér má sjá nokkrar myndir af nemendum og gestum sem lögðu leið sína à jólatónleika Tónsala fyrr í desember 🌟

Birna píanókennari var á dögunum að gefa út þessa flottu æfingadagbók!Hægt er að nàlgast eintak af bókinni á skrifstofu ...
06/12/2025

Birna píanókennari var á dögunum að gefa út þessa flottu æfingadagbók!
Hægt er að nàlgast eintak af bókinni á skrifstofu Tónsala. Swipe fyrir myndband þar sem Birna sýnir hvernig hægt er nota bókina 👩‍🏫 📚


Jólatónleikar nemanda í Tónsölum fara fram þessa dagana
05/12/2025

Jólatónleikar nemanda í Tónsölum fara fram þessa dagana

04/12/2025

Nú eru jólin á næsta leiti og byrja fyrstu jólatónleikar nemenda okkar í dag 🎄
Við hlökkum til að taka à móti ykkur!

Snorri Skúlason hefur bæst í kennarahópinn okkar.Sem barn og unglingur lærði hann á trompet og rafbassa. Hann fékk ungur...
26/09/2025

Snorri Skúlason hefur bæst í kennarahópinn okkar.
Sem barn og unglingur lærði hann á trompet og rafbassa. Hann fékk ungur áhuga á djasstónlist sem hafa verið hans ær og kýr síðan. Snorri lauk burtfararprófi frá MÍT og bakkalár gráðu frá Konunglega Tónlistarháskólanum Í Haag á kontrabassa.

Bjóðum Snorra innilega velkominn til starfa!

02/09/2025

🎶 Nú fer hver að verða síðastur!

Skráning er í fullum gangi í tónlistarnám hjá Tónsölum skólaárið 2025–2026. Við leggjum áherslu á sköpun, gleði 😃 og að hver nemandi finni sinn eigin hljóm ✨

Kynntu þér málið á tonsalir.is 🤩

Address

Ögurhvarfi 4a
Kópavogur
203

Opening Hours

Monday 13:00 - 16:00
Tuesday 13:00 - 16:00
Wednesday 13:00 - 16:00
Thursday 13:00 - 16:00
Friday 13:00 - 16:00

Telephone

534-3700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tónsalir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Tónsalir:

Share