Myndlist á Íslandi

Myndlist á Íslandi Myndlist á Íslandi er árlegt tímarit um myndlist sem gefið er út á íslensku og ensku. Annual magazine on Icelandic Art.

Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Austurbæjarbíói í kvöld. Finnbogi Pétursson var valinn ...
24/03/2026

Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Austurbæjarbíói í kvöld. Finnbogi Pétursson var valinn myndlistarmaður ársins og tók við verðlaununum úr hendi Loga Einarssonar ráðherra menningarmála. Verðlaunin hlýtur hann fyrir sýninguna Skjálfta í Listasafni Árnesinga.
Hildur Elísa Jónsdóttir hlaut hvatningarverðlaunin fyrir gjörningin Tacet: Extrinsic á Sequences tvíæringnum.
Þá veitti myndlistarráð listakonunni Rúrí heiðursviðurkenningu fyrir þýðingarmikið ævistarf sitt.

Við óskum listamönnunum innilega til hamingju með viðurkenningarnar!

Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent við fjölmenna athöfn í Austurbæjarbíói 11. mars. Finnbogi Pétursson er myndlis...
24/03/2026

Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent við fjölmenna athöfn í Austurbæjarbíói 11. mars.
Finnbogi Pétursson er myndlistarmaður ársins 2026. Logi Einarsson, menningarráðherra afhenti verðlaunin. Hildur Elísa Jónsdóttir hlaut hvatningarverðlaunin. Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur og prófessor í HÍ afhenti Rúrí heiðursverðlaun fyrir ævistarf sitt í myndlist.
Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur hlutu viðurkenningu fyrir áhugaverðasta endurlitið fyrir sýninguna Steina: Tímaflakk. Aðstandendur Hamraborgar Festival hlutu viðurkenningu fyrir áhugaverðustu samsýninguna og höfundar Mynd&hand: Skólasaga 1939–1999, fengu viðurkenningu fyrir útgáfu ársins.

Auk verðlauna og viðurkenninga var tímaritið Myndlist á Íslandi selt í forsölu, glóðvolgt úr prentsmiðjunni. Það var glatt á hjalla í salnum, listnemar frömdu gjörninga, kynnirinn Ragnar Ísleifur Bragason kitlaði hláturtaugar viðstaddra og hljómveitin Post Performance Bluesband steig á stokk. Einnig var hægt að spreyta sig á pílukasti eftir athöfnina og dansa við tónlist frá skífuþeytinum Ívari Pétri.

Ljósmyndir: Sunday & White Studio

✨
24/03/2026

Það er okkur mikil ánægja að kynna sjötta tölublað af Myndlist á Íslandi en forsala á tímaritinu mun hefjast að lokinni ...
11/03/2026

Það er okkur mikil ánægja að kynna sjötta tölublað af Myndlist á Íslandi en forsala á tímaritinu mun hefjast að lokinni afhendingu Íslensku myndlistarverðlaunanna, sem fara fram í kvöld, miðvikudaginn 11. mars kl. 19:30 í Austurbæjarbíó, þar sem blaðið verður fáanlegt á forsöluverði.

Í ár telur útgáfan 196 síður um myndlist en að þessu sinni skrifa eftirtaldir höfundar greinar í blaðið: Edda Halldórsdóttir, Eiríkur Örn Norðdahl, Daría Sól Andrews, Helena Sólveigar Aðalsteinsbur, Hólmar Hólm, Jonatan Habib Engqvist og Margrét Elísabet Ólafsdóttir. Einnig er birt í blaðinu umfjöllun um tilnefningar og verðlaunahafa Íslensku myndlistarverðlaunanna 2026.

Ritstjórn skipa þau Becky Forsythe, Hólmar Hólm og Eva Lín Vilhjálmsdóttir. Hönnun tímaritsins er í höndum Petter Spilde, . Sem fyrr standa Myndlistarráð, Myndlistarmiðstöð, Samband íslenskra myndlistarmanna, Listaháskóli Íslands og Listfræðafélagið að útgáfunni.

Verk á forsíðu: Ásta Fanney Sigurðardóttir, Hero Form, 2026, ljósmynd eftir Sandijs Ruluks, birt með leyfi listamannsins.

***

We are proud to present the sixth issue of Art in Iceland, which will go on presale following the announcement of the recipients of the Icelandic Art Prize taking place tonight, Wednesday March 11th at 7:30 p.m. at Austurbæjarbíó, where the magazine will be available for purchase at a fair price.

This year’s publication is 196 pages long, featuring articles from the following writers: Edda Halldórsdóttir, Eiríkur Örn Norðdahl, Daría Sól Andrews, Helena Sólveigar Aðalsteinsbur, Hólmar Hólm, Jonatan Habib Engqvist and Margrét Elísabet Ólafsdóttir. Additionally, the issue includes coverage of the nominees and recipients of the Icelandic Art Prize 2026.

The editors are Becky Forsythe, Hólmar Hólm and Eva Lín Vilhjálmsdóttir. The magazine is designed by Petter Spilde, . The publication is made possible through the collaboration of the Visual Arts Council, the Icelandic Art Center, the Association of Icelandic Visual Artists, the Iceland University of the Arts and the Association of Art History and Theory in Iceland.

Cover art: Ásta Fanney Sigurðardóttir, Hero Form, 2026, photograph by Sandijs Ruluks, courtesy of the artist.

Það er allt að verða klárt fyrir afhendingu Íslensku myndlistarverðlaunanna í Austurbæjarbíói á morgun, miðvikdagskvöldi...
11/03/2026

Það er allt að verða klárt fyrir afhendingu Íslensku myndlistarverðlaunanna í Austurbæjarbíói á morgun, miðvikdagskvöldið 11. mars.
Húsið verður opnað kl. 19:30, opinn bar og spennandi dagskrá ⬇️

🎯Listnemar úr ýmsum áttum fremja gjörninga
👑Verðlaunaafhendingin hefst kl. 20:00
🎤 Kynnir er Ragnar Ísleifur Bragason
🧠Hallgerður Hallgrímsdóttir flytur hugvekju
🎸Hljómsveitin Post Performance Blues Band stígur á stokk

🥏Ívar Pétur Kjartansson þeytir skífum
🎨Gestir geta nælt sér í glóðvolgt eintak af tímaritinu Myndlist á Íslandi

Öll velkomin - góða skemmtun!

📸 Ljósmynd af Post Performance Blues Band eftir Sunnu Ben

Áhugaverður viðburður í Norræna húsinu um frelsi listamanna. Á viðburðinum verður meðal annars spjallað við Odee sem í ú...
19/05/2025

Áhugaverður viðburður í Norræna húsinu um frelsi listamanna. Á viðburðinum verður meðal annars spjallað við Odee sem í útskriftarverki sínu úr LHÍ "We're Sorry" gagnrýndi fyrirtækið Samherja á eftirminnilegan hátt. Í nýjasta tölublaði Myndlistar á Íslandi skrifaði Þorvaldur S. Helgason um verkið og hvernig það hefur þróast síðan það birtist fyrst.

"Velkomin á málþing þriðjudaginn, 20. maí kl. 16:30, þar sem Norræna ráðherranefndin og Norræna húsið leiða saman listamenn og sérfræðinga í samtal um listrænt frelsi og hlutverk þess í heilbrigðu lýðræði.
Frekari upplýsingar um málþingið „Art & Democracy: Threats to Artistic Freedom“ má finna á heimasíðu okkar. Viðburðurinn fer fram á ensku.
-
Welcome to a seminar on Tuesday, May 20th at 4.30pm, when the Nordic Council of Ministers and the Nordic house are bringing together a group of artists and experts to discuss the vital role of art in a healthy and functioning democracy.
Find further information about the seminar „Art & Democracy: Threats to Artistic Freedom“ on our website. The event will be in english."

Velkomin á málþing þriðjudaginn, 20. maí kl. 16:30, þar sem Norræna ráðherranefndin og Norræna húsið leiða saman listamenn og sérfræðinga í samtal um listrænt frelsi og hlutverk þess í heilbrigðu lýðræði.

Frekari upplýsingar um málþingið „Art & Democracy: Threats to Artistic Freedom“ má finna á heimasíðu okkar. Viðburðurinn fer fram á ensku.
-

Welcome to a seminar on Tuesday, May 20th at 4.30pm, when the Nordic Council of Ministers and the Nordic house are bringing together a group of artists and experts to discuss the vital role of art in a healthy and functioning democracy.

Find further information about the seminar „Art & Democracy: Threats to Artistic Freedom“ on our website. The event will be in english.
-

Välkommen till ett seminarium tisdagen den 20 maj kl. 16:30, då Nordiska ministerrådet och Nordens hus sammanför en grupp konstnärer och experter för att diskutera konstens viktiga roll i en sund och fungerande demokrati.

Hitta mer information om seminariet “Konst & demokrati: Hot mot den konstnärliga friheten” på vår hemsida. Seminariet kommer att ta plats på engelska.

Það gleður okkur að kynna fimmta tölublað af Myndlist á Íslandi en forsala á tímaritinu mun hefjast að lokinni afhending...
19/03/2025

Það gleður okkur að kynna fimmta tölublað af Myndlist á Íslandi en forsala á tímaritinu mun hefjast að lokinni afhendingu Íslensku myndlistarverðlaunanna, sem fara fram annað kvöld, fimmtudaginn 20. mars kl. 19:30 í Iðnó, þar sem blaðið verður fáanlegt á forsöluverði.

Í ár telur útgáfan 208 síður um myndlist en að þessu sinni skrifa eftirtaldir höfundar fyrir blaðið: Adam Buffington, Daria Testo, Emilia Telese, Pari Stave, Sigrún Inga Hrólfsdóttir, Sölvi Halldórsson, Weronika Balcerak og Þorvaldur Sigurbjörn Helgason. Þá er MáÍs gallerí einnig á sínum stað en sýningarstjórn fyrir þessa útgáfu er í höndum ritstjórnar. Loks er birt í blaðinu umfjöllun um tilnefningar og verðlaunahafa Íslensku myndlistarverðlaunanna 2025.

Ritstjórn skipa þau Hólmar Hólm, Becky Forsythe og Eva Lín Vilhjálmsdóttir. Hönnun tímaritsins er í höndum Petter Spilde, . Sem fyrr standa Myndlistarráð, Myndlistarmiðstöð, Samband íslenskra myndlistarmanna, Listaháskóli Íslands og Listfræðafélagið að útgáfunni.

Verk á forsíðu: Hreinn Friðfinnsson, Klettur, frá samnefndri sýningu í Ásmundarsal, 2024.

***

We are pleased to present the fifth issue of Art in Iceland, which will go on presale following the announcement of the recipients of the Icelandic Art Prize taking place tomorrow, Thursday March 20th at 7:30 p.m. at Iðnó, where the magazine will be available for purchase at a fair price.

This year’s publication is 208 pages long, featuring contributions from the following writers: Adam Buffington, Daria Testo, Emilia Telese, Pari Stave, Sigrún Inga Hrólfsdóttir, Sölvi Halldórsson, Weronika Balcerak and Þorvaldur Sigurbjörn Helgason. The Art in Iceland Gallery can also be found in the magazine, curated by the Editorial Board. Additionally, the issue includes coverage of the nominees and recipients of the Icelandic Art Prize 2025.

The editors are Hólmar Hólm, Becky Forsythe and Eva Lín Vilhjálmsdóttir. The magazine is designed by Petter Spilde, . The publication is made possible through the collaboration of the Visual Arts Council, the Icelandic Art Center, the Association of Icelandic Visual Artists, the Iceland University of the Arts and the Association of Art History and Theory in Iceland.

Cover art: Hreinn Friðfinnsson, Klettur, from the exhibition of the same title at Ásmundarsalur, 2024.

Address

21 Austurmörk
Hveragerði
810

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Myndlist á Íslandi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Myndlist á Íslandi:

Share

Category