Bæjarbíó

Bæjarbíó Bæjarbíó var stofnað 1945 og er elsta starfandi kvikmyndahús landsins.

Komdu með okkur í einstakt tónleikakvöld til styrktar uppbyggingu Þorláksskóla. Tónleikarnir bera heitið Bíltúr með Jóni...
05/08/2026

Komdu með okkur í einstakt tónleikakvöld til styrktar uppbyggingu Þorláksskóla.

Tónleikarnir bera heitið Bíltúr með Jóni því listamenn kvöldsins eru í sérstöku uppáhaldi hjá Jóni og tónlist þeirra fylgir honum gjarnan í bíltúrum.

Jón Kristján verður einn af fyrstu nemendum Þorláksskóla og er aðalástæðan fyrir því að skólinn er settur á fót.

Um Þorláksskóla
Þorláksskóli er nýr sérhæfður grunnskóli fyrir einhverf börn sem tekur til starfa í Garðabæ haustið 2026. Skólinn varð til vegna skýrrar þarfar fyrir námsumhverfi sem mætir ólíkum þörfum barna með einhverfu af virðingu, skilningi og sérþekkingu.

Allur ágóði af styrktartónleikunum rennur til uppbyggingar Þorláksskóla og mun nýtast til að skapa sem besta aðstöðu og umhverfi fyrir nemendur skólans.

Bjartmar og Bergrisarnir snúa loksins aftur í Bæjarbíó eftir allt of langa bið.Það er alltaf einstök stemning þegar Bjar...
04/08/2026

Bjartmar og Bergrisarnir snúa loksins aftur í Bæjarbíó eftir allt of langa bið.

Það er alltaf einstök stemning þegar Bjartmar Guðlaugsson og Bergrisarnir stíga á svið og nú gefst loksins tækifæri til að upplifa þá aftur í Bæjarbíói.

Á tónleikunum verður farið yfir glæsilegan feril Bjartmars og flutt mörg af hans vinsælustu lögum sem hafa fylgt landsmönnum í gegnum árin.

Með Bjartmari á sviðinu eru:

Júlíus Freyr Guðmundsson á bassa og söng
Birkir Rafn Gíslason á gítar og söng
Daði Birgisson á hljómborð og söng
Arnar Gíslason á trommur
Þetta verða tónleikar þar sem húmor, gleði og sígild lög fara saman í kvöldstund sem enginn aðdáandi Bjartmars vill missa af.

Mömmur sem beygla alltaf munninn og kótilettukarlar eru að sjálfsögðu sérstaklega velkomin. Haltu kjafti!

Í tilefni af 80 ára afmæli Rúnars Júlíussonar í fyrra buðu synir hans upp á eftirminnilega  tónleikaröð til heiðurs Herr...
28/07/2026

Í tilefni af 80 ára afmæli Rúnars Júlíussonar í fyrra buðu synir hans upp á eftirminnilega tónleikaröð til heiðurs Herra Rokk.

Nú verður leikurinn endurtekinn í þetta eina skipti og getur fólk átt von á ógleymanlegri kvöldstund þar sem ferill rokk skáldsins verður rakinn með tónlist og fleygum sögum af Rúnari og samferðarmönnum hans.

Ekkert verður dregið undan í frásögnum og flutningi þar sem hinar ýmsu hliðar eins mesta töffara íslenskrar rokksögu verða kynntar á einlægan og hreinskiptinn hátt.

Bræðrunum Baldri og Júlíusi til fulltingis verður öflug hljómsveit skipuð Arnari Gíslasyni, Guðna Finnssyni og Birki Rafni Gíslasyni. Þetta verður gríðarleg keyrsla sem getur ekki klikkað frekar en fyrri daginn.

Sunnudagurinn 13. september verður Bæjarbíó fyllt af tónlist, samveru og skýrum tilgangi þegar styrktarkvöldið Brú til B...
26/07/2026

Sunnudagurinn 13. september verður Bæjarbíó fyllt af tónlist, samveru og skýrum tilgangi þegar styrktarkvöldið Brú til Bata fer fram til stuðnings Alanó klúbbnum og 12 Sporahúsinu.

Allur ágóði rennur til reksturs og uppbyggingar Alanó klúbbsins og 12 Sporahússins.

Sigmar Vilhjálmsson, sem flestir þekkja sem Simma Vill, stýrir kvöldinu og heiðursgestur verður Ragnar Þór Ingólfsson, ráðherra félagsmála og húsnæðismála.

Framkoma:

Brynja Rán
Alaska1867
Flóni
Beggi Sóldögg

Alanó klúbburinn er líknarfélag sem rekur 12 Sporahúsið, húsnæði með fundaaðstöðu fyrir 12 spora samtök ásamt félagsmiðstöð. Í húsinu fer fram fjölbreytt 12 spora starf og þar hefur byggst upp mikilvægt rými fyrir fundi, tengsl og daglega nærveru.

Starfið er að stórum hluta borið uppi af sjálfboðaliðum og húsið gegnir mikilvægu hlutverki fyrir ólík 12 spora samtök, fólk í bata og aðstandendur.

Brú til Bata er kvöld fyrir húsið, starfið og samfélagið sem hefur byggst upp í kringum það.

Stebbi JAK gefur nú út sína aðra sólóplötu og blæs til glæsilegra útgáfutónleika í Bæjarbíó þann 4. september.Platan “Lí...
21/07/2026

Stebbi JAK gefur nú út sína aðra sólóplötu og blæs til glæsilegra útgáfutónleika í Bæjarbíó þann 4. september.

Platan “Líttu í kringum þig” inniheldur 10 lög þar sem Stebbi sýnir á sér áður óþekktar hliðar í laga- og texta smíðum.

Stebbi JAK hefur verið áberandi í tónlistarlífinu undanfarin ár. Hann hefur komið fram í hinum ýmsu heiðurssýningum, Í skúrnum hjá Stebba JAK, söngvakeppni sjónvarpsins og með hljómsveitinni DIMMA og svo má lengi telja.

Stebbi JAK stígur nú fram með plötuna “Líttu í kringum þig” sem er hans önnur sólóplata. Áður gaf hann út plötuna “JAK” árið 2018

Á tónleikunum verður platan flutt í heild sinni fyrir hlé.

Eftir hlé verða flutt lög af fjölbreyttum ferli Stebba.

Það stefnir í eftirminnilegt kvöld

Hljómsveit Stebba JAK er skipuð þeim:

Gunnar illugi sigurðsson – Trommur

Birkir Rafn Gíslason – Gítar

Hálfdán Árnason – Bassi

Birgir Þórisson – Hljómborð

Hlökkum til að fagna með ykkur.

13/07/2026

Örfáir miðar eftir á Jón Jónsson & GDRN inni í Bæjarbíó fimmtudaginn n.k 16.júlí kl 19:00! ⭐️ Tilvalið að kíkja við á útisvæðinu í Hjarta Hafnarfjarðar fyrir og eftir tónleika.

06/07/2026

Örfáir miðar eftir á Emmsjé Gauta inni í Bæjarbíó föstudaginn n.k 10.apríl kl 19:00! ⭐️ Tilvalið að kíkja við á útisvæðinu í Hjarta Hafnarfjarðar fyrir og eftir tónleika.

29/06/2026

Jón Jónsson & GDRN í Bæjarbíó 16.júlí! ❤

10/06/2026

Address

Strandgata 6
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bæjarbíó posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Bæjarbíó:

Shortcuts

Share