23/05/2026
Sumarið heldur áfram með STÆL!!!
LOWISH X KK bjóða öllum bílaáhugamönnum á alvöru kvöld uppi á kvartmílubraut þar sem verður bæði bílahittingur og hægt að spyrna! 🚗💨
Við ætlum að fylla pittinn af flottum bílum, góðri stemningu og fólki sem hefur alvöru áhuga á bílamenningu. Hvort sem þú ætlar að mæta á projecti, daily, spyrnubíl eða bara koma að skoða og njóta þá eru ALLIR velkomnir!
📍 Hver sem er getur lagt fyrir utan svæðið og komið niður í pitt að skoða bílana,
Starfsmaður hleypir bílum inn á svæðið eða vísar í stæði.
🌭 Grillaðar pylsur í boði meðan birgðir endast!
⏰ TÍMI
17:00 – 22:00 ca.
🏎️ BRAUTIN OPNAR
17:50 Öryggisfundur
18:00 – 20:00 ca.
Til þess að keyra þarf að:
VERA MEÐ HJÁLM
VERA MEÐ ÖKUSKÍRTEINI
BÍLLINN ÞARF AÐ VERA MEÐ SKOÐUN
BÚINN AÐ FARA Á ÖRYGISFUND OG FÁ LÍMMIÐA Í RÚÐU.
(Tímarnir eru sveigjanlegir ef mæting og stemning er góð 🔥)
(Veðurfar stýrir opnun brautarinar. ef að rignir verður ekki hægt að spyrna vegna gripleysis)
💥 FRÍTT INN 💥
💥 FRÍTT AÐ KEYRA 💥
HORFA – EN EKKI SNERTA
Við hvetjum alla til að sýna virðingu — bæði fyrir fólki og ökutækjum.
Gættu þess að hegða þér af kurteisi og mæta með rétta viðhorfið. Virðing byrjar á smáatriðunum.
HÖLDUM STEMNINGUNNI GÓÐRI!
Samkomurnar okkar byggjast á góðri og afslappaðri stemningu þar sem allir geta verið þeir sjálfir.
Öruggt rými fyrir vini, vandamenn og nýliða — það er það sem við viljum skapa.
Verum í góðu skapi og gefum frá okkur jákvæða orku! 🔥
VIÐ HÖFUM SKÝR MÖRK:
• Enginn hraðakstur eða glannaskapur utan brautar
• Engar sýningar eða spól í pitt eða bílaplani
• Ekkert vímuefna- eða áfengisbrölt á svæðinu
• Farið eftir leiðbeiningum starfsmanna og skipuleggjenda
Ef þú getur ekki virt þessar einföldu reglur, þá er þetta einfaldlega ekki rétti staðurinn fyrir þig.
Við byggjum þetta saman á virðingu, ástríðu og alvöru bílamenningu.
Hlökkum til að sjá ykkur öll! 🏁🔥
Kvartmíluklúbburinn