HEIMA tónlistarhátíð

HEIMA tónlistarhátíð HEIMA tónlistarhátíð í Hafnarfirði býður upp á nánd flytjenda og gesta sem og fjölbreytta tónlist.

🎈HEIMA heppnaðist frábærlega. Enn og aftur lék veðrið við okkur – tónlistarfólkið frábært – gestirnir glaðir og sumir ei...
24/04/2026

🎈HEIMA heppnaðist frábærlega. Enn og aftur lék veðrið við okkur – tónlistarfólkið frábært – gestirnir glaðir og sumir eignuðust nýtt uppáhalds.

🙏Við HEIMA-fólk þökkum ykkur öllum fyrir komuna – samstarfsaðilum og húsráðendum fyrir allt gert.
Myndir segja meira en mörg orð. Sjáumst á HEIMA síðasta vetrardag 2027.

Vinsamlegast lesið þennan texta ef þið ætlið að koma á HEIMA í kvöld.Við afhendum armbönd - merki og prentaða dagskrá í ...
22/04/2026

Vinsamlegast lesið þennan texta ef þið ætlið að koma á HEIMA í kvöld.
Við afhendum armbönd - merki og prentaða dagskrá í ÆGI 220 frá 14-18 í dag. Ekki koma of seint :)
Gleðilega hátíð.

Tríó Bjössa Thor spilaði á fyrstu HEIMA-hátíðinni 2014.Tríóið snýr aftur á morgun - spila fyrst hjá Hebu og Ægi á Austur...
21/04/2026

Tríó Bjössa Thor spilaði á fyrstu HEIMA-hátíðinni 2014.
Tríóið snýr aftur á morgun - spila fyrst hjá Hebu og Ægi á Austurgötu 43 og svo enda þeir hjá Önnu í Ægi kl. 23 og spila þar til Andrea Jóns tekur fram galdraplötuspilarana!
Stína Ágústsdóttir verður sérstakur gestur með Bjössa og co í Ægi.
SJÁUMST Á MORGUN Á HEIMA!

Pétur Ben er ekki að að koma fram á HEIMA í fyrsta skipti - enda einn af okkar bestu tónlistarmönnum undanfarin 20 ár.Pé...
21/04/2026

Pétur Ben er ekki að að koma fram á HEIMA í fyrsta skipti - enda einn af okkar bestu tónlistarmönnum undanfarin 20 ár.
Pétur gaf út frábæra plötu síðasta haust sem heitir Painted blue.
Pétur spilar fyrst í garðinum Anthony og Ýr (Suðurgata 9) og svo er hann síðastur í kirkjunni.
SJÁUMST Á HEIMA Á MORGUN - við afhendur armbönd og dagskrá milli 14 og 18 í ÆGI 220 - takið ykkur tíma - barinn verður opinn.

📻Hér er dagskráin klár!🕑 Það eru tveir dagar í HEIMA og við verðum hjá Önnu í ÆGI 220 með armböndin og prentaða dagskrá ...
20/04/2026

📻Hér er dagskráin klár!

🕑 Það eru tveir dagar í HEIMA og við verðum hjá Önnu í ÆGI 220 með armböndin og prentaða dagskrá frá 14.00 - 18.00. Ath! Passið ykkur að koma fyrir klukkan 18 í síðasta lagi að sækja armbönd.

🍺 Við hvetjum fólk til að gefa sér tíma til að heimsækja ÆGI í rólegheitum - barinn verður opinn!

Sváfnir Sigurðarson er einn þeirra sem spilar á HEIMA í ár. Sváfnir er söngvaskáld eins og þau gerast best - spilar á gí...
20/04/2026

Sváfnir Sigurðarson er einn þeirra sem spilar á HEIMA í ár. Sváfnir er söngvaskáld eins og þau gerast best - spilar á gítar og syngur um lífð og tilveruna.

Sváfnir hefur sent frá sér þrjár sólóplötur. Sú fyrsta kom út fyrir áratug en sú nýjasta (Aska og gull) kom út 2023.

Sváfnir hefur líka samið talsvert af tónlist fyrir leikhús og kvikmyndir.
Hann er ekki að spila á HEIMA í fyrsta skipti vegna þess að hann spilaði með Bjartmari fyrir nokkrum árum.

Sváfnir byrjar í Fjörukránni kl. 20.00 og spilar svo seinna um kvöldið á Austurgötu 22 hjá Ernu Sóley.

Við ætlum að birta heildar dagskrána núna í hádeginu!!!

HEIMA á marga góða vini en sumir eru bestir!🏘 Hafnarfjarðarbær hefur frá upphafi stutt við HEIMA og verið með í liðinu á...
19/04/2026

HEIMA á marga góða vini en sumir eru bestir!

🏘 Hafnarfjarðarbær hefur frá upphafi stutt við HEIMA og verið með í liðinu á margan hátt.

🎭 Bæjarbíó hefur frá upphafi verið einskonar miðstið HEIMA. Þar afhentum við armbönd öll árin þar til í fyrra og þar hefur HEIMA alltaf endað með „lokahófi“.

🍻 Ægir 220 hefur bruggað sérstakana HEIMA-bjór fyrir okkur undanfarin ár sem við höfum gefið hátíðargestum auk þess sem armbönd eru afhent þar í ár eins og í fyrra. Þar verða líka tónleikar í fyrsta skipti á HEIMA í ár og Andrea Jóns ætlar svo að spila músík fram á nótt og það má dansa ef maður vill.

📻 Rás 2 hefur tekið upp tónleika á HEIMA og útvarpað þeim síðar og stundum beint.

⚔ Fjörukráin/Víkingahótelið er nýr samstarfsaðili. Þar verða tónleikar í fyrsta sinn á HEIMA auk þess sem Jói og co bjóða upp á tilboð á mat og gistingu.

🔊 Hljóð-X er nýr HEIMA-vinur sem ætlar að hjálpa okkur með tæknimálin. Hljóð-X er rótgróið Hafnfirskt fyrirtæki og smellpassar inn í HEIMA-liðið.

🍇Fjarðarkaup er líka nýr samstarfsaðili en þau bjóða upp á léttar veitingar sem verða í boði í HEIMA-húsunum.

SJÁUMST Á HEIMA Á MIÐVIKUDAG OG KVEÐJUM VETURINN

Mugison er einn þeirra sem spilar á HEIMA í ár. Hann byrjar Kl. 20.00 á Austurgötunni HEIMA hjá Karolínu sem er búin að ...
18/04/2026

Mugison er einn þeirra sem spilar á HEIMA í ár. Hann byrjar Kl. 20.00 á Austurgötunni HEIMA hjá Karolínu sem er búin að vera með okkur á HEIMA allt frá upphafi. HEIMA þakkar Karolínu og öllum hinum sem opna heimili sín og hús fyrir okkur öllum. Án þeirra væri þetta auðvitað ekki hægt.

SJÁUMST Á HEIMA Á MIÐVIKUDAGINN!

ÞAU á HEIMA!Hver eru ÞAU?ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk og gítar- og trommuleikarinn Gaddi.Á HEIMA í ár koma ÞAU...
17/04/2026

ÞAU á HEIMA!

Hver eru ÞAU?
ÞAU eru söng- og leikkonan Rakel Björk og gítar- og trommuleikarinn Gaddi.

Á HEIMA í ár koma ÞAU fram á Austurgötu 21 og 22. Tær rödd Rakelar mætir grófum gítarleik Gadda í frumsamdri tónlist við íslensk ljóð, þar sem áhrif úr rokki, indí, jazzi og poppi fléttast saman.

ÞAU hafa sent frá sér plöturnar ÞAU taka Vestfirði og ÞAU taka Norðurland, sem hafa hlotið góðar viðtökur, og fylgt þeim eftir með tónleikum víða um land, meðal annars í Bæjarbíói og Hofi.

Samhliða reka ÞAU eigið hljóðver í Hafnarfirði, ÞAU stúdíó, og vinna nú að þriðju plötunni, ÞAU taka Suðurland.

Tónleikarnir á HEIMA marka upphaf tónleikaraðarinnar „ÞAU spila í sumar“, þar sem sveitin leggur land undir fót.

Hljómsveitin OYAMA hefur aldrei spilað á HEIMA - en Oyama hefur spilað á ýmsum tónlistarhátíðum öðrum og nokkrum í útlön...
16/04/2026

Hljómsveitin OYAMA hefur aldrei spilað á HEIMA - en Oyama hefur spilað á ýmsum tónlistarhátíðum öðrum og nokkrum í útlöndum.
Oyama sendi frá sér plötuna Everyone left haustið 2024 sem er frábær plata. Oyama er rokkhljómsveit sem minnir á margt gott úr popp/rokksögunni. Í fyrsta kommenti er hlekkur á Spotify-lista HEIMA 2026 þar sem hægt er að kynna sér allt fólkið sem spilar í ár. Við vitum að þið þekkið það ekki allt en þá er bara að hlusta!

Address

Hafnarfjörður

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when HEIMA tónlistarhátíð posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category