Hafnarborg

Hafnarborg Menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar
---
The Hafnarfjörður Centre of Culture and Fine Art

Í verkum Helga Þorgils Friðjónssonar má finna ýmsar skepnur sem tengjast hafinu: fiska, fugla og önnur sjávardýr.Þær sví...
07/06/2026

Í verkum Helga Þorgils Friðjónssonar má finna ýmsar skepnur sem tengjast hafinu: fiska, fugla og önnur sjávardýr.

Þær svífa um í draumkenndum myndheimi listamannsins, þar sem maður og náttúra birtast sem órjúfanleg heild.

Þá bjóðum við ykkur innilega velkomin í safnið í tilefni dagsins og óskum ykkur öllum gleðilegs Sjómannadags.

Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.

---

In Helgi Þorgils Friðjónsson’s works, various creatures connected to the sea can be found: fish, birds and other marine animals.

They float through the artist’s dreamlike visual world, where humanity and nature appear as an indivisible whole.

On the occasion of Icelandic Fishermen’s Day, we warmly welcome you to the museum and extend our best wishes to everyone celebrating today.

Free entry – see you at Hafnarborg.

Í dag, laugardaginn 6. júní kl. 14, mun Sveinn Fannar Jóhannsson, myndlistarmaður, taka á móti gestum og ræða um nýopnað...
06/06/2026

Í dag, laugardaginn 6. júní kl. 14, mun Sveinn Fannar Jóhannsson, myndlistarmaður, taka á móti gestum og ræða um nýopnaða einkasýningu sína, May Show Signs of Minor Defects, í Hafnarborg.

Á sýningunni fjallar listamaðurinn meðal annars um það hvernig merking verður til í gegnum umgerð og samhengi, með því að gefa gaum að því hvað fundnar myndir, hlutir og annað efni ber með sér úr fyrra lífi, eftir að hafa fallið utan við upprunalegt samhengi.

Mynd: portrett af listamanninum úr bókinni Portrait by Waiters (2013, Multinational Enterprises).

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

---

Today, Saturday June 6th at 2 p.m., artist Sveinn Fannar Jóhannsson will welcome guests for a talk about his newly opened solo exhibition, May Show Signs of Minor Defects, at Hafnarborg.

Using found photographs, text and other displaced materials, the exhibition explores how meaning emerges through framing and context, as well as how images and objects continue to carry traces of their previous lives.

Image: Portrait of the artist from the book Portraits by Waiters (2013, Multinational Enterprises).

Free entry – everyone welcome.

Verið velkomin í Hafnarborg í dag, fimmtudaginn 4. júní kl. 18, þegar við opnum sýningarnar Stóran heim eftir Helga Þorg...
04/06/2026

Verið velkomin í Hafnarborg í dag, fimmtudaginn 4. júní kl. 18, þegar við opnum sýningarnar Stóran heim eftir Helga Þorgils Friðjónsson, í sýningarstjórn Aldísar Arnardóttur, og May Show Signs of Minor Defects eftir Svein Fannar Jóhannsson, í sýningarstjórn Daríu Sólar Andrews.

Aðgangur ókeypis – sjáumst í Hafnarborg.

---

We invite you to Hafnarborg today, Thursday, June 4 at 6 p.m., for the opening of the exhibitions Great World by Helgi Þorgils Friðjónsson, curated by Aldís Arnardóttir, and May Show Signs of Minor Defects by Sveinn Fannar Jóhannsson, curated by Daría Sól Andrews.

Free entry – see you at Hafnarborg.

Síðasta sýningarhelgi í Hafnarborg: Heiðvirðir einstaklingar eftir Weroniku Balcerak og Lukas Bury og Bergmál eftir Rögn...
23/05/2026

Síðasta sýningarhelgi í Hafnarborg: Heiðvirðir einstaklingar eftir Weroniku Balcerak og Lukas Bury og Bergmál eftir Rögnu Fróða.

Opið í dag og á mánudaginn kl. 12-17.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

---

Final exhibition weekend at Hafnarborg: Some Honest Persons by Weronika Balcerak and Lukas Bury and Echo by Ragna Fróða.

Open today and Monday, 12-5 pm.

Free entry – everyone welcome.

Ástvaldur Lárusson hjá Bændablaðinu ræddi við þau Weroniku Balcerak og Lukas Bury um sýninguna Heiðvirða einstaklinga, s...
21/05/2026

Ástvaldur Lárusson hjá Bændablaðinu ræddi við þau Weroniku Balcerak og Lukas Bury um sýninguna Heiðvirða einstaklinga, sem hverfist um ýmis óvænt tengsl á milli Póllands og Íslands.

„Þau sjónarhorn sem þau nota til að sýna tengsl landanna eru meðal annars innflutningur á Ursus traktorum, Fiat bílum sem framleiddir voru í Póllandi, innflutningur á Prins Polo nammi í staðinn fyrir útflutning á fiski og fólksflutningur til Íslands eftir fall járntjaldsins.“

Sýningin stendur yfir til og með 25. maí.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

Í dag fögnum við Alþjóðlega safnadeginum og leiðum hugann að því hvernig söfn opna glugga út í heim og bjóða upp á ný sj...
18/05/2026

Í dag fögnum við Alþjóðlega safnadeginum og leiðum hugann að því hvernig söfn opna glugga út í heim og bjóða upp á ný sjónarhorn, líkt og sjá má í sýningunum sem nú standa yfir í Hafnarborg.

Annars vegar í Heiðvirðum einstaklingum eftir Weroniku Balcerak og Lukas Bury, sem draga fram tengingar á milli Póllands og Íslands í gegnum persónulegar sögur, viðskiptatengsl og hluti – sem varpa ljósi á samfélag og sjálfsmynd.

Í gegnum sýninguna Bergmál eftir Rögnu Fróða, leggjum við svo í ferðalag um heim þar sem form, mynstur og efni skapa rými fyrir skynjun, íhugun og nýja nálgun, í því skyni að dýpka skilning okkar á okkur sjálfum og líðandi stundu.

Til hamingju með Alþjóðlega safnadaginn!

---

Today, we celebrate International Museum Day and reflect on how museums open windows onto the world and offer new perspectives, as can be seen in the exhibitions currently on view at Hafnarborg.

Some Honest Persons by Weronika Balcerak and Lukas Bury brings together personal stories, histories of trade and objects to illuminate connections between Poland and Iceland – and, in turn, ideas of society and identity.

In Echo, Ragna Fróða invites us into a world where form, pattern and material create space for perception, reflection and new ways of seeing, deepening our understanding of ourselves and the present moment.

Happy International Museum Day!

Í Víðsjá nú í vikunni ræddi grafíski hönnuðurinn Elías Rúni við Höllu Harðardóttur um nýja leturgerð sem kallast Rúna og...
15/05/2026

Í Víðsjá nú í vikunni ræddi grafíski hönnuðurinn Elías Rúni við Höllu Harðardóttur um nýja leturgerð sem kallast Rúna og er hönnuð út frá handskrift listakonunnar Rúnu (Sigrúnar Guðjónsdóttur), sem féll frá 99 ára að aldri í byrjun þessa mánaðar.

Þá stendur nú yfir í Hafnarborg sýning á leturgerðinni og ferlinu við að koma henni á stafrænt form, sem nú er hægt að hlaða niður til eigin nota á heimasíðu safnsins.

Sýningin er opin um þessa og næstu helgi og er hún sett upp í tengslum við HönnunarMars, í minningu listakonunnar.

Þáttinn má finna hér fyrir neðan, á heimasíðu RÚV, og hefst viðtalið um 3:25:

Ljóðskáldið Heiða Vigdís Sigfúsdóttir gaf nýverið út ljóðabókina Í hæfilegu magni hjá Forlaginu. Þar fylgir lesandi konu sem virðist í upphafi falla að öllum helstu viðmiðum samfélagsins, en reynist eftir því sem á líður búa yfir fjölbreyttari karaktereinkennum en þa...

11/05/2026
Á morgun, sunnudaginn 10. maí kl. 13, mun Ragna Fróða, myndlistarmaður, taka á móti gestum og ræða um einkasýningu sína,...
09/05/2026

Á morgun, sunnudaginn 10. maí kl. 13, mun Ragna Fróða, myndlistarmaður, taka á móti gestum og ræða um einkasýningu sína, Bergmál, sem nú stendur yfir í Hafnarborg.

Á sýningunni býður Ragna Fróða okkur inn í töfrandi heim mynstra, lita, forma og áferða en heimur Rögnu er í senn kunnuglegur og framandi, nostalgískur og nýstárlegur.

Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.

---

Tomorrow, Sunday May 10th at 1 p.m., artist Ragna Fróða will welcome guests for a talk of her solo exhibition, Echo, currently on view at Hafnarborg.

In the exhibition, Ragna Fróða invites us into an alluring world of patterns, colours, forms and textures. Her visual language is at once familiar and foreign, nostalgic and new.

Free entry – everyone welcome.

Í dag, fimmtudaginn 7. maí kl. 16-18, bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Rúna:letur í tengslum ...
07/05/2026

Í dag, fimmtudaginn 7. maí kl. 16-18, bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar Rúna:letur í tengslum við HönnunarMars í ár.

Sýningin beinir sjónum að leturgerð listakonunnar Rúnu (Sigrúnar Guðjónsdóttur), sem grafíski hönnuðurinn Elías Rúni hefur endurgert í stafrænu formi undir heitinu Rúna.

Þá dregur sýningin fram þennan þátt í höfundarverki Rúnu og varpar ljósi á hvernig letur getur geymt meira en merkingu, svo sem handbragð og tíðaranda. Samhliða opnun sýningarinnar verður letrið gert aðgengilegt á heimasíðu Hafnarborgar, þar sem hægt verður að hlaða því niður til eigin nota.

Sýningin er tileinkuð minningu Rúnu.

---

Today, Thursday May 7th at 4-6 p.m., we warmly invite you to the opening of the exhibition Rúna:Script, in connection with this year’s DesignMarch.

The exhibition focuses on the typeface of the artist Rúna (Sigrún Guðjónsdóttir), which graphic designer Elías Rúni has recreated in digital form under the name Rúna.

The exhibition highlights this aspect of Rúna’s body of work and sheds light on how letters can hold more than meaning, including the mark of the hand and the spirit of its time. In connection with the opening, the typeface will also be made available on Hafnarborg’s website, where it can be downloaded for free use.

The exhibition is dedicated to the memory of Rúna.

Address

Strandgata 34
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 12:00 - 17:00
Wednesday 12:00 - 17:00
Thursday 12:00 - 17:00
Friday 12:00 - 17:00
Saturday 12:00 - 17:00
Sunday 12:00 - 17:00

Telephone

+3545855790

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hafnarborg posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Hafnarborg:

Share

Category