Menningar og listafélag Hafnarfjarðar

Menningar og listafélag Hafnarfjarðar Menningar- og listafélag Hafnarfjarðar var stofnað 2014. Markmið félagsins er að sjá Hafnarfjarðarbæ lifna við. www.mlh.is Stjórn félagsins skipa þau Erla S.

Menningar- og listafélag Hafnarfjarðar var stofnað núna í vetur. Ragnarsdóttir, kennari í Flensborg, einn eigenda gaflari.is og Dúkkulísa, Ingvar Björn Þorsteinsson, myndlistarmaður, Kristinn Sæmundsson, athafnaskáld og fyrrum kaupmaður í Hljómalind og tónleikahaldari, og Fjallabræðurnir Ólafur Páll Gunnarsson, tónlistarstjóri á Rás 2 og Tómas Axel Ragnarsson, rafvirki og tónlistarmaður. Öll eiga

þau það sameiginlegt að vilja sjá Hafnarfjarðarbæ lifna við og dafna í takt við öflugt og lifandi menningarlíf. Félagið ætlar sér að halda viðburði á eigin vegum, en einnig verða vettvangur upplýsinga og ráðgjafar til að auðvelda listamönnum að koma með viðburði til bæjarins. Félagið vill í nánustu framtíð virkja sem flest hús og mannvirki í bænum sem henta til menningarviðburða og býður fram krafta sína til skipulagningar á viðburðum á vegum bæjarins og sjálfstæðra aðila sem hyggjast vera með viðburði í bæjarfélaginu. Markmið félagsins er að sem flestir viðburðir verði sjálfbærir og þurfi ekki beinna fjárstyrkja við. Félagið er óháð og ekki tengt neinum pólitískum samtökum á neinn hátt. Til að byrja með lítur félagið svo á að miðbær Hafnarfjarðar sé hjartað og vill félagið því styrkja hann sem best svo lífið fái streymt um æðar hans. Öllum líður jú vel með gott hjarta, svo ekki sé talað um hjartalag.

Ýmislegt er á döfinni hjá félaginu. Auk tónleikanna með Eivöru nú á sunnudaginn hyggst MLH blása til vestnorrænnar listahátíðar með fjölþjóðlegu ívafi í bænum í sumar og um páskana verður haldin “Heima”, tónlistarhátíð að færeyskri fyrirmynd og hugmyndinni að Austurgötuhátíðinni blandað saman við. Heima er að forminu til tónleikar sem fara fram í nokkrum heimahúsum í bænum. Því til viðbótar er von á fjölda færeyskra listamanna af öllum stærðum og gerðum til landsins á komandi mánuðum og er það von okkar í MLH að sem flestir þeirra muni getað stoppað í Hafnarfirði og leyft okkur að njóta með sér lista og lífsins lystisemda. Kristinn Sæmundsson, Kiddi, mun sjá um kynningar og upplýsingagjöf, sími 8600631 - 5512709 - [email protected].

Address

Hafnarfjörður

Telephone

(+354) 860-0631

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Menningar og listafélag Hafnarfjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Menningar og listafélag Hafnarfjarðar:

Share