ÆGIR 220

ÆGIR 220 Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from ÆGIR 220, Performance & Event Venue, Strandgata 90, Hafnarfjörður.

ÆGIR 220 er hrár & einstakur salur í gömlu frystihúsi við smábátahöfnina í Hafnarfirði til útleigu fyrir veislur og viðburði. ÆGIR er ekki opinn að staðaldri en stendur reglulega fyrir tónleikum og sveitaböllum ☎︎ 552 7872 / ✉︎ [email protected]

Kæru vinir næst á dagskrá á Ægi okkar allra: Laugardaginn 27. júní - Blúsveisla á Ægi, fremstu blúsarar landsins koma fr...
19/06/2026

Kæru vinir næst á dagskrá á Ægi okkar allra:

Laugardaginn 27. júní - Blúsveisla á Ægi, fremstu blúsarar landsins koma fram og kaggar Krúser klúbbsins fylla bílaplanið. Matarvagnar, sól og sumarylur og allur ágóði af miðasölu rennur til Píeta samtakanna, rekstur hjálparsímans og forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Ekki virðist veita af og Ægir hvetur Hafnfirðinga og nærsveitunga til að koma og njóta og styðja í leiðinni verðugt málefni.
Miðar á midix.is
Viðburður: https://fb.me/e/8cGdCh986
__________________________________

Fimmtudagskvöldið 2. júlí verður á Ægi þjóðleg stemning í boði hljómsveitarinnar BREK sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir plötu ársins í þjóðlaga- og heimstónlist árið 2022. Með BREK verður finnska söngvaskáldið Jakob Frankenhaeuser sem tengir saman norræna tónlist við ameríska "roots" tónlist.
Miðar í hurð og viðburður hér: https://fb.me/e/7A3jLBwvT

GÓSS er hljómsveit skipuð þeim Guðmundi Óskari, Sigríði Thorlacius og Sigurði Guðmundssyni bróður Guðmundar Óskars og Si...
16/06/2026

GÓSS er hljómsveit skipuð þeim Guðmundi Óskari, Sigríði Thorlacius og Sigurði Guðmundssyni bróður Guðmundar Óskars og Sigríður er vinkona bræðranna! Þau spila 17. júní í Ægi æðislega og lögin eru héðan og þaðan í þrírödduðum sveitabúningi og miðar fást á tix og við hlökkum geggjað til að sjá ykkur🌼
https://tix.is/event/21615/goss-a-aegi-220
https://www.facebook.com/events/1589007459314481

07/06/2026

Takk fyrir okkur kæru Hjálmar & vinir Ægis sem komuð um helgina! Geggjuð Hjálmahelgi að baki. Það verður opið í dag, á Sjómannadaginn, milli 13 & 17. Næst í opinni dagskrá GÓSS á 17. júní og miðar á tix.is

Næst í Ægi, dagskrá ætluð Hafnfirðingum og nærsveitungum hvaðanæva af landinu🤘 Opið á Sjómannadaginn 7. júní milli klukk...
31/05/2026

Næst í Ægi, dagskrá ætluð Hafnfirðingum og nærsveitungum hvaðanæva af landinu🤘
Opið á Sjómannadaginn 7. júní milli klukkan 13 & 17⚓
5. & 6. júní okkar eigin Hjálmar, miðasala á tix https://tix.is/event/21363/hjalmar-a-aegi-220
17. júní. Undursamlega GÓSS í fyrsta skipti á Ægi, miðar á tix
https://tix.is/event/21615/goss-a-aegi-220
27. júní. Blús við höfnina, hátíð fyrir alla til styrktar Píeta samtökunum, miðasala á midix
https://www.midix.is/index.php/is/blus-vid-hofnina-27-jun-2026/eid/1093
Ægir minnir á miðasölu á KK 18. september sem er í fullum gangi á tix
https://tix.is/en/event/21140/kk-70-ara
Sjáumst við höfnina🛟

Vinalega söngvaskáldahátíðin Melodica Festival verður haldin á laugardaginn, 30. maí. Tónlistarfólk frá Hafnarfirði og n...
29/05/2026

Vinalega söngvaskáldahátíðin Melodica Festival verður haldin á laugardaginn, 30. maí. Tónlistarfólk frá Hafnarfirði og nágrenni stígur á stokk og byrja klukkan þrjú en sungið verður langt fram eftir kvöldi, alls koma sautján listamenn fram. Aðgangur er að venju ókeypis. Angie og fjölskylda verða með venesúelska matarvagninn Chevere Food Truck Islandia á svæðinu og Hoppaðu uppí húsbílinn á þér er kominn á krana enda komið sumar!
Verið hjartanlega velkomin á Melodica.

Það verður spilaður alls kyns blús hjá okkur við fallegu smábátahöfnina laugardaginn 27. júní og ráð að taka daginn stra...
18/05/2026

Það verður spilaður alls kyns blús hjá okkur við fallegu smábátahöfnina laugardaginn 27. júní og ráð að taka daginn strax frá. Fullt af böndum, matarvagnar, fornbílar og sólin.
Viðburður væntanlegur á allra næstu dögum. Vagg & blús🤘🤘

Blús við höfnina 27. júní kl. 15-00. Ægir 220 Hafnarfirði. Taktu daginn frá!

Address

Strandgata 90
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when ÆGIR 220 posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share