Leikfélag Hornafjarðar

Leikfélag Hornafjarðar Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Leikfélag Hornafjarðar, Performing Arts, Fiskhóli 5, Höfn.

Stórvinir okkar hjá Doorway Casting sjá um að casta í þetta spennandi verkefni. Ef þið hafið áhuga á að vera á alvöru kv...
07/04/2026

Stórvinir okkar hjá Doorway Casting sjá um að casta í þetta spennandi verkefni. Ef þið hafið áhuga á að vera á alvöru kvikmyndatökusetti, endilega hafið samband við þau og látið vita.

Leikfélag Hornafjarðar, í samstarfi við Leikfélag Söðlasýslu, þakkar áhorfendum og öllum sem komu að þessari dásamlegu s...
29/03/2026

Leikfélag Hornafjarðar, í samstarfi við Leikfélag Söðlasýslu, þakkar áhorfendum og öllum sem komu að þessari dásamlegu sýningu kærlega fyrir þetta ferðalag.

Þótt margir hafi lagt í ótal stundir síðustu 11 vikur til að láta allt ganga upp, hefði þetta skemmtilega verk ekki verið neitt án þeirra 533 áhorfenda sem komu og lyftu sjálfstrausti þátttakenda um ómælanleg prósentustig með hlátri og gleði.

Hver einasta sýning kom hópnum á óvart á sinn einstaka og ótrúlega máta.

Í dag, Pálmasunnudaginn 29. mars, verður hópurinn niðri í Mánagarði að ganga frá þessari gleði – stafla stólum, taka niður palla, gera upp snúrur, pakka saman leikmunum og leikmynd og þrífa. Eins og gert er eftir hverja einustu sýningatörn – í nafni samverunnar sem gerir þetta starf svo dásamlegt.

28/03/2026

Þá eru 3 klukkustundir og 18 mínútur þar til lokasýningin hefst. Örfá sæti laus.

Þið sem eigið eftir að sjá Gleðilega hátíð, hafið í mesta lagi 3 klukkustundir til að taka ákvörðun – hvort þið drífið ykkur ekki inn í Mánagarð í kvöld og upplifið geggjaða leikhúsupplifun.

Síðasti séns.

Sýning 7 að baki…Hláturinn var ótrúlegur! Við óttuðumst að gestir myndu andast úr hlátri og að leikhópurinn fengi á sig ...
27/03/2026

Sýning 7 að baki…

Hláturinn var ótrúlegur! Við óttuðumst að gestir myndu andast úr hlátri og að leikhópurinn fengi á sig ákæru fyrir manndráp af gáleysi — en þetta slapp nú allt til.

Takk fyrir kvöldið, frábæru áhorfendur! Á morgun er lokasýningin og það eru ennþá sæti laus. Svo drífið ykkur og bókið miða!

Yfir 400 manns eru þegar búnir að mæta og sjá sýninguna okkar Gleðilega hátíð!Aðeins 2 sýningar eftir – í kvöld og annað...
27/03/2026

Yfir 400 manns eru þegar búnir að mæta og sjá sýninguna okkar Gleðilega hátíð!
Aðeins 2 sýningar eftir – í kvöld og annað kvöld kl. 20:00.

Endilega drífið ykkur að panta miða og njótið þessarar gleði sem sýningin býður upp á!

Lokasýningatörnin okkar er að byrja! Það er ekki hægt að bæta við fleiri sýningum þannig þetta er ykkar síðasti séns til þess að sjá sýninguna - jú eða koma aftur eins og nokkrir hafa nú þegar gert!
Áhorfendur eru sammála um að sýningin er drepfyndin og um að gera að leyfa sér aðeins að gleyma sér í leikhúsinu um helgina! Hafiði samband til að bóka miða og sjáumst í Mánagarði!!!

26/03/2026

Takk fyrir kvöldið, allir sem voru í salnum. Leikhópurinn gengur sáttur til náða í kvöld.
Við getum ekki beðið eftir að endurtaka leikinn á morgun og svo aftur á laugardaginn.
Ennþá eru miðar lausir – komið og njótið með okkur!

Lokasýningatörnin okkar er að byrja! Það er ekki hægt að bæta við fleiri sýningum þannig þetta er ykkar síðasti séns til...
26/03/2026

Lokasýningatörnin okkar er að byrja! Það er ekki hægt að bæta við fleiri sýningum þannig þetta er ykkar síðasti séns til þess að sjá sýninguna - jú eða koma aftur eins og nokkrir hafa nú þegar gert!
Áhorfendur eru sammála um að sýningin er drepfyndin og um að gera að leyfa sér aðeins að gleyma sér í leikhúsinu um helgina! Hafiði samband til að bóka miða og sjáumst í Mánagarði!!!

Takk kærlega fyrir frábærar viðtökur, kæru áhorfendur! Það er ótrúlegt að sjá hversu margir hafa komið – nú þegar eru há...
23/03/2026

Takk kærlega fyrir frábærar viðtökur, kæru áhorfendur!
Það er ótrúlegt að sjá hversu margir hafa komið – nú þegar eru hátt í 400 manns búnir að upplifa Gleðilega hátíð með okkur! Við fáum ekkert nema dásamleg viðbrögð og það gleður okkur meira en orð fá lýst að vita að fólk skemmti sér konunglega.

Þessi samsuða af gleði, húmor og hjarta er greinilega að hitta í mark – og það er einfaldlega magnað!

Nú er loka-sýningatörnin fram undan.
Aðeins 3 sýningar eftir: fimmtudag, föstudag og laugardag!

Ekki missa af þessu – tryggið ykkur miða og komið að njóta með okkur 💃🕺
Við lofum góðri stemningu og fullt af gleði!

Address

Fiskhóli 5
Höfn
780

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leikfélag Hornafjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share