Svavarssafn

Svavarssafn Listasafn Svavars Guðnasonar
Hafnarbraut 27
Höfn í Hornafirði Svavarssafn er staðsett í Ráðhúsinu á Höfn.

(EN below)
Listasafn Svavars Guðnasonar, oftast kallað Svavarssafn, er samtímalistasafn á Höfn í Hornafirði nefnt eftir einum mikilvægasta listmálara Íslendinga á 20. öldinni. Svavar Guðnason fæddist á Höfn 1909 og var brautryðjandi abstraktmálverksins á Íslandi og heimsþekktur sem hluti af COBRA-listahópnum. Kjarni safneignar listasafnsins samanstendur af verkum Svavars Guðnasonar, auk ýmissa Hor

nfirðinga og listafólks sem hefur unnið list í eða tengda Austurskaftafellssýslu. Opið virka daga á veturnar á milli 9:00-17:00 en á sumrin bætist við laugardagar og sunnudagar milli 13:00-17:00.

----
The art museum of Svavar Guðnason, is a contemporary art museum in Höfn in Hornafjordur. It is named after one of the more important Icelandic painters of the 20th century, Svavar Guðnason, who was born in Höfn in 1909, and became the pioneer of abstract painting in Iceland as well as attaining global recognition through the COBRA-movement. The core of the museum collection consists of the works of Svavar, various other people from Hornafjordur and artists who have created their work in the southeastern part of Iceland or been inspired by it. The museum is located in the townhall of Hornafjordur, located in Höfn. It is open on weekdays between 09:00 and 17:00, but during the summertime it is open as well during the weekend from 13:00-17:00

Deilum þessari færslu Listasafns Íslands um verk Svavars okkar 💛
08/05/2026

Deilum þessari færslu Listasafns Íslands um verk Svavars okkar 💛

Heimkynni trölla

Svavar Guðnason er þekktur fyrir kröftug og litrík abstraktmálverk þar sem línur, form og litasamspil er í fyrirrúmi. Sýning hans í Listamannaskálanum árið 1945 vakti mikla athygli, en þar sýndi hann abstraktmálverk sem hann hafði unnið á meðan hann bjó í Danmörku. Sýningin þótti djörf og framúrstefnuleg, í takt við hina nýju abstraktlist sem hafði rutt sér til rúms á meginlandinu á þessum tíma. Í abstraktlist leika myndbygging, litur og meðferð lita aðalhlutverk og hugmyndirnar sóttu listamenn í list barna og einnig í list framandi þjóða, sérstaklega grímur þeirra. Abstraktlistin var táknræn fyrir listþróun í nýjum heimi eftir hörmungar stríðsins. Abstraktlistaverkum var ekki ætlað að líkjast einhverjum fyrirmyndum heldur var lögð áhersla á ímyndunaraflið, óhefta tjáningu og frumkraft.

Sumarið 1944 dvaldi Svavar í Roskildefirði í Danmörku þar sem er mikil náttúrufegurð. Þar málaði hann verkið Tröllaborg sem einkennist af kraftmiklum óreiðukenndum pensilstrokum og gulum, grænum og rauðum litatónum. Myndin er líklegast máluð hratt með breiðum strokum ofan í blautan lit og áferðin er hrjúf. Bogadregnar línur skapa hreyfingu þar sem tjáningarríkar pensilstrokur undirstrika óreiðu myndbyggingarinnar. Krafturinn í málverkum Svavars hefur oft verið tengdur við kraftinn í íslenskri náttúru.

Titillinn Tröllaborg vísar í íslenskt landslag og þjóðsögur. Þrátt fyrir að hvergi sjáist tröll á myndinni vekur titillinn upp hughrif um álfaborgir og tröllakirkjur sem leynast víða í íslenskum hraunbreiðum. Ef til vill táknar myndin heimkynni trölla og kraftinn í náttúrunni eða yfirnáttúrulegt andrúmsloftið sem einkennir sögur af tröllum. Vinstra megin á myndfletinum glittir í gróður eða dökkblátt tré og þar fyrir ofan er vísun í grímuformið sem oft má sjá í danskri abstraktlist.

Verkið er til sýnis í Safnahúsinu við Hverfisgötu.

Svavar Guðnason (1909-1988)
Tröllaborg, 1944
LÍ 4893

Auglýsum laust starf hjá okkur á Svavarssafni á HöfnLangar þig að taka þátt í spennandi uppbyggingu og þróun safnsins? V...
01/05/2026

Auglýsum laust starf hjá okkur á Svavarssafni á Höfn

Langar þig að taka þátt í spennandi uppbyggingu og þróun safnsins? Við leitum að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi í fjölbreytt og krefjandi starf í lifandi menningarumhverfi.

🗓 Umsóknarfrestur er til 18. maí 2026

Má endilega deila áfram 🥳

Lokað er í Svavarssafni um óákveðinn tíma, fram á haustið, vegna byggingaframkvæmda.Starfsemi Svavarssafns verður þó áfr...
20/04/2026

Lokað er í Svavarssafni um óákveðinn tíma, fram á haustið, vegna byggingaframkvæmda.
Starfsemi Svavarssafns verður þó áfram blómleg og margt að gerast á vegum safnsins yfir sumartímann 😊😊🌞🌞😊😊

Á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, opnum við sýningu hér í Gömlubúð á Höfn, sem miðlar handverki og einstakri sögu Margotar Gamm (1931-2007).

Fylgist endilega með starfsemi Svavarssafns í vor og sumar, sem mun eiga sér stað víða á Höfn.

13/04/2026

Lokað er í Svavarssafni um óákveðinn tíma, fram á haustið, vegna byggingaframkvæmda.
Starfsemi Svavarssafns verður þó áfram blómleg og margt að gerast á vegum safnsins yfir sumartímann 😊😊🌞🌞😊😊

Á sumardaginn fyrsta, 23. apríl, opnum við sýningu hér í Gömlubúð á Höfn, sem miðlar handverki og einstakri sögu Margotar Gamm (1931-2007).

Um næstu helgi, laugardag og sunnudag, 18. og 19. apríl, býður Svavarssafn upp á smiðju fyrir börn á öllum aldri, þar sem áhersla verður lögð á að skerpa sýn okkar á skapandi möguleika þess að vinna með hlutina í kringum okkur, það sem fellur til, dótarí sem fleygt er á göturnar, það sem við finnum í fjörunni. Rósa Sigrún Jónsdóttir myndlistarkona leiðir smiðjuna en hún fæst að mestu við textíl og skúlptúr í listsköpun sinni og mun halda einkasýningu í Svavarssafni síðar á árinu 2026.

Fylgist endilega með starfsemi Svavarssafns í vor og sumar, sem mun eiga sér stað víða á Höfn.

OPNUNARTÍMAR SVAVARSSAFNS YFIR HÁTÍÐIROPENING HOURS DURING THE HOLIDAYSEinkasýningu Eyglóar Harðardóttur, þar sem sýnd e...
16/12/2025

OPNUNARTÍMAR SVAVARSSAFNS YFIR HÁTÍÐIR
OPENING HOURS DURING THE HOLIDAYS

Einkasýningu Eyglóar Harðardóttur, þar sem sýnd eru einnig valin verk Svavars Guðnasonar, verður opin til og með 9. janúar 2026.
Verið hjartanlega velkomin.

Solo exhibition of artist Eygló Harðardóttir, featuring selected works by artist Svavar Guðnason, will be open until January 9th 2026.
You are warmly welcome.

Opnunartímar í Svavarssafni yfir hátíðir 2025

Opening Hours at Svavarssafn Art Museum during the holidays 2025

22. desember: 09:00 – 15:00
23. desember: 09:00 – 13:00
24. desember. Aðfangadagur: lokað
25. desember: Jóladagur: lokað
26. desember: Annar í jólum: lokað
27. desember: lokað
28. desember: lokað
29. desember: 09:00 – 13:00
30. desember: 09:00 – 13:00
31. desember: lokað
1. Janúar: lokað
2. Janúar: 09:00 – 13:00
3. Janúar: lokað
4. Janúar: lokað
5. – 8. janúar er opið mán-fim kl. 09:00 – 15:00 og fös: kl. 09:00 – 15:00

Lokadagur sýningar Eyglóar Harðardóttur er föstudaginn 9. Janúar, opið kl.09:00 – 13:00.

Svavarssafn verður lokað 10. - 27. janúar vegna sýningaruppsetningar.

Samsýningin NYTJAR verður opnuð miðvikudaginn 28. janúar klukkan 17:00. Verið hjartanlega velkomin.

Opening Hours at Svavarssafn During the Holidays 2025

December 22: 9am – 3pm
December 23: 9am – 1pm
December 24 – Christmas Eve: closed
December 25 – Christmas Day: closed
December 26 – Second Day of Christmas: closed
December 26: closed
December 27: closed
December 28: closed
December 29: 9am – 1pm
December 30: 9am – 1pm
December 31: closed
January 1: closed
January 2: 9am – 1pm
January 3: closed
January 4: closed
January 5–8: open Monday–Thursday 9 am – 3 pm, and Friday 9 am – 3 pm

The last day of Eygló Harðardóttir´s solo exhibition is Friday, January 9, open 9 am – 1 pm.

Svavarssafn will be closed January 10 – 27 due to installing.

Group exhibition NYTJAR will be opened on Wednesday, January 28 at 5 pm. You are warmly welcome.

Hjartans hamingjuóskir Spessi, Kind útgáfa og Kakkalakki Studio hönnuðir! TÓM, bókverk Spessa er tilnefnd til Íslensku b...
17/11/2025

Hjartans hamingjuóskir Spessi, Kind útgáfa og Kakkalakki Studio hönnuðir!

TÓM, bókverk Spessa er tilnefnd til Íslensku bókahönnunarverðlaunanna.
„Framúrskarandi bókverk þar sem hvert smáatriði er úthugsað. Prentun, pappírsval og myndvinnsla draga myndir bókarinnar fram og svartur saumurinn bindur efnið og bókverkið í órofa heild,“ segir dómnefndin.

28/10/2025

Svavarssafn er opið í snæviþaktri fegurðinni á Höfn 🌫❄️
Verið öll velkomin ❤️

SVAVARSSAFN VERÐUR LOKAÐ Í DAG, FÖSTUDAGINN 24. OKTÓBER, EFTIR KLUKKAN 14:00Í DAG ERU LIÐIN 50 ÁR FRÁ KVENNAFRÍDEGINUM O...
23/10/2025

SVAVARSSAFN VERÐUR LOKAÐ Í DAG, FÖSTUDAGINN 24. OKTÓBER, EFTIR KLUKKAN 14:00

Í DAG ERU LIÐIN 50 ÁR FRÁ KVENNAFRÍDEGINUM OG VIÐ SÝNUM SAMSTÖÐU MEÐ KONUM OG KVÁRUM Á ÞESSUM DEGI

SVAVARSSAFN ART MUSEUM WILL BE CLOSED TODAY, FRIDAY 24TH OCTOBER, AFTER 2 PM

WE SHOW UNITY ON THE 50th ANNIVERSARY OF KVENNAFRÍDAGURINN – WOMEN´S DAY OFF

Opnunartímar stofnana MHH á degi kvennaverkfallsins, föstudaginn 24. október:
📚 Bókasafn: 11:00–14:00
🖼️ Svavarssafn: 09:00–14:00
🏛️ Gamlabúð: 16:00–20:00
Dagskrá á Höfn:
https://fb.me/e/3CGMNUWDI

Við sýnum samstöðu 💜
Opnunartímar stofnana MHH á degi kvennaverkfallsins, 24. október:

📚 Bókasafn: 11:00–14:00
🖼️ Svavarssafn: 09:00–14:00
🏛️ Gamlabúð: 16:00–20:00

Likur á dagskrá á Höfn:
https://fb.me/e/3CGMNUWDI

Áhugaverð og flott umfjöllun um bókverk Spessa, TÓM, í Kiljunni í gær. Sýningu Spessa, TÓM, er nýlokið hér í Svavarssafn...
16/10/2025

Áhugaverð og flott umfjöllun um bókverk Spessa, TÓM, í Kiljunni í gær. Sýningu Spessa, TÓM, er nýlokið hér í Svavarssafni.
Viðtal við Spessa hefst á 11:06mín

Glænýjar bækur eru til umfjöllunar i Kilju vikunnar. Við ræðum um þrjár skáldsögur, Lausaletur eftir Þórdísi Helgadóttur, Sjá dagar koma eftir Einar Kárason og Hyldýpi eftir Kára Valtýsson. Spessi segir okkur frá nýrri ljósmyndabók eftir sig sem nefnist Tóm. Móheiður Hlíf...

SVAVARSSAFN  er lokað vegna sýningaruppsetningar.Föstudaginn 10. október verður einkasýning Eyglóar Harðardóttur, Tilgát...
04/10/2025

SVAVARSSAFN er lokað vegna sýningaruppsetningar.
Föstudaginn 10. október verður einkasýning Eyglóar Harðardóttur, Tilgátur, opnuð kl.17:00.
Verið hjartanlega velkomin ❤️

Address

Hafnarbraut 27
Höfn
780

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 17:00

Telephone

+3544708055

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Svavarssafn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Svavarssafn:

Share

Category