Vetrarsól á Ströndum

Vetrarsól á Ströndum Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Vetrarsól á Ströndum, Festival, Höfðagata 3, Hólmavík.

Það er komin mánudagur og Vetrarsólarhátíðin á Ströndum að baki, bara eftir smá tiltekt, snúningar og uppgjör. Já og að ...
31/01/2022

Það er komin mánudagur og Vetrarsólarhátíðin á Ströndum að baki, bara eftir smá tiltekt, snúningar og uppgjör. Já og að þakka fyrir góða skemmtun! Hátíðahöldin byggja auðvitað á þátttöku einstaklinga, fyrirtækja og félaga á Ströndum og syðra annars vegar og hins vegar ykkur öllum sem nýtið ykkur það sem í boði er, takið þátt, mætið og njótið! Öll fáið þið allra bestu þakkir fyrir, þetta var gaman!

Sérstakar stuð og saknaðarkveðjur fá Svavar Knutur og Kristín Lárusdóttir sem komu hingað og héldu fyrstu hátíðina 2019 og mættu enn á ný og skemmtu á þessari, en nú var hátíðin í fjórða skipti.

Heima fyrir fær stjórnarfólkið í Arnkatla - lista- og menningarfélag sem sá um hátíðina að þessu sinni, langbestu kveðjur fyrir dugnaðinn. Líka menningarstofnanir og fyrirtæki sem tóku þátt - Galdrasýning á Ströndum, Sauðfjársetur á Ströndum, Café Riis, Náttúrubarnaskólinn, Rannsóknasetur HÍ á Ströndum - Þjóðfræðistofa og Steinhúsið.

Það var líka fullt af einstaklingum sem tóku þátt í undirbúningi og skemmtunum. Það er hættulegt að lista liðið upp, það gæti einhver gleymst sem á það ekki skilið. Viðburðir sem voru í streymi eru enn aðgengilegir hér neðar á síðunni hjá Vetrarsól - tónleikar með Svavari Knúti og Kvöldvaka á Sauðfjársetrinu.

Uppbyggingarsjóður Vestfjarða styrkti hátíðahöldin að þessu sinni og fær allrabestu þakkir fyrir. Sjáumst svo fljótlega - Hörmungardagar verða haldnir 25.-27. febrúar næstkomandi! Þá vonumst við til að viðburðir verði á staðnum! Verið velkomin á Strandir!

Myndaleikurinn sem Augnablikið - Ljósmyndaklúbbur Arnkötlu stóð fyrir um helgina er klassísk snilld og er hann hér með framlengdur til Hörmungardaga. Megi fylla vefinn og líf ykkar líka!

Vetrarsólin skín á bak við skýin á Ströndum í dag, það gengur á með éljum og skafrenningi. Á dagskránni í dag er göngufe...
30/01/2022

Vetrarsólin skín á bak við skýin á Ströndum í dag, það gengur á með éljum og skafrenningi. Á dagskránni í dag er gönguferð (á vegum Gunnu fótalausu sem frestar aldrei göngu, hvernig sem viðrar), opið og tilboð á veitingastöðum, Galdra, Riis og nýtt kaffihús í Steinhúsi, sýningar í Hnyðju, handboltaleikir, ljósmyndaleikur Augnabliksins og útibingó (fyrir þá alhörðustu).

Viðbót á dagskránni hjá Vetrarsól: Opið verður í Steinhúsinu laugardag og sunnudag kl. 15-19, eftir breytingar! Verið öl...
29/01/2022

Viðbót á dagskránni hjá Vetrarsól: Opið verður í Steinhúsinu laugardag og sunnudag kl. 15-19, eftir breytingar! Verið öll velkomin að kíkja í heimsókn.

Ljósmyndaleikur sem Augnablikið - Ljósmyndaklúbbur Arnkötlu stendur fyrir í tilefni af Vetrarsól á Ströndum 😉 Takið mynd...
27/01/2022

Ljósmyndaleikur sem Augnablikið - Ljósmyndaklúbbur Arnkötlu stendur fyrir í tilefni af Vetrarsól á Ströndum 😉 Takið mynd hvar sem er í veröldinni með þemanu Lífsgleði og skellið henni á fésbókina um helgina 😉 Njótum lífsins og skemmtum okkur vel!

Um helgina er hæglætishátíðin Vetrarsól á Ströndum, þá eru allskonar skemmtilegir viðburðir á dagskrá, margir í streymi ...
27/01/2022

Um helgina er hæglætishátíðin Vetrarsól á Ströndum, þá eru allskonar skemmtilegir viðburðir á dagskrá, margir í streymi og aðrir í raunheimum ☀️❄️ Í tilefni hátíðarinnar hefur Náttúrubarnaskólinn og Rannsóknasetur HÍ á Ströndum útbúið smávegis útibingó fyrir fjölskylduna, sem er tilvalið að prenta út eða teikna upp og skella sér svo út að leita og leika 👀 Takið eftir að eitt spjaldið er erfiðara en hin og er merkt þannig. Góða skemmtun og gangi ykkur vel! 😄 Þið megið láta vita ef þið fáið bingó í kommentum hér fyrir neðan og fáið hamingjuóskir í staðinn!

Tilboð og dagskrá á Café Riis um helgina ;)
27/01/2022

Tilboð og dagskrá á Café Riis um helgina ;)

🎉VETRARSÓL Á STRÖNDUM🎉

Café Riis verður með skemmtilega dagskrá um helgina í tilefni hátíðarinnar Vetrasól á Ströndum 😊

Við verðum með opið alla helgina í pizzur og svo sýnum við auðvitað restina af EM í Handbolta 🇮🇸

Á laugardaginn bjóðum við upp á gómsætar smjörsteiktar gellur og klassískt Lambafille🤤
Hlökkum til að sjá ykkur🎉

Vetrarsól á Ströndum

DAGSKRÁIN Á VETRARSÓL Á STRÖNDUM 2022Nú eru dimmustu vikur vetrarins að baki og við erum farin að sjá sólina rísa og fin...
25/01/2022

DAGSKRÁIN Á VETRARSÓL Á STRÖNDUM 2022

Nú eru dimmustu vikur vetrarins að baki og við erum farin að sjá sólina rísa og finnum vel fyrir því hversu gott birtan gerir okkur. Og þrátt fyrir kófið sem enn herjar á heimsbyggðina, ætlum við að gera okkar besta og fagna rísandi sólu og vaxandi ljósi með söng, kveðskap, sögum, spjalli og almennu æðruleysi helgina 28.-30. janúar.

Sólargengið er búið að setja saman dagskrá fyrir hæglætishátíðina Vetrarsól á Ströndum. Linkar fyrir streymi og viðburði sem margir verða í netheimum koma inn síðar.

Hátíðin er haldin af Arnkötlu – lista- og menningafélagi með styrk frá Uppbyggingarsjóði Vestfjarða, sem við þökkum kærlega fyrir

SPORT, LEIKIR og ÚTIVIST:

Sundlaugin á Hólmavík er opin 9-16 á föstudag og 14-18 laugardag og sunnudag.

Útibingó fyrir alla fjölskylduna verður í gangi um Vetrarsólarhelgina. Bingóspjald verður sett á vefinn og þau sem vilja taka þátt prenta það sjálf út. Síðan er ráð að rölta um þorpið með börnunum, spila bingóið og finna allt sem er á spjaldinu. Náttúrubarnaskólinn og Þjóðfræðistofa útbúa leikinn.

Augnablikið – ljósmyndaklúbbur Arnkötlu stendur fyrir skemmtilegum ljósmyndaleik um Vetrarsólarhelgina. Öll sem vilja taka þátt reyna að ná mynd sem fellur undir þemað LÍFSGLEÐI og deila henni á fésbókarsíðu Augnabliksins með myllumerkin og .

VEITINGAR og TILBOÐ:

Galdrasýning á Ströndum er opin kl. 12-18 föstudag og kl. 13-18 laugardag og sunnudag. Tilboð á Tikkamasala á Kaffi Galdri í tilefni af Vetrarsólinni.

Café Riis verður opið um helgina í tilefni af Vetrarsólinni, 12-22 föstudag, 17-22 laugardag og 14-22 sunnudag. Pizzur og kaldur á krana alla helgina, tilboð á Vetrarsólarpizzunni, handboltaleikir sýndir í pakkhúsinu og gellukvöld á laugardaginn (gellur og lambafille).

Sauðfjársetrið verður opið 14-17 á laugardeginum og boðið upp á vöfflur og kaffi.

Grillið í Krambúðinni er opið föstudag og sunnudag.

FIMMTUDAGUR 27. JAN.

Kl. 17-21
Hólmavíkurmyndir. Ljósmyndasýning, úr myndasafni Karls E. Loftssonar og fleiri. Útisýning, í glugganum á Hnyðju, Þróunarsetrinu á Hólmavík. Á vegum Þjóðfræðistofu og Sauðfjársetursins.

FÖSTUDAGURINN 28. JAN.

Kl. 12-18
Opið á Galdrasýningunni og Kaffi Galdri, tilboð á Tikkamasala.

Kl. 12-22
Opið á Café Riis, pizzur og kaldur, tilboð á Vetrarsólarpizzu, handbolti í pakkhúsinu.

Kl. 13-17
Sýningin Örninn flýgur fugla hæst í Hnyðju, Þróunarsetrinu á Hólmavík. Samstarfsverkefni Össuseturs í Króksfjarðarnesi, Þjóðfræðistofu og Sauðfjárseturs. Opið hús, passið fjöldatakmarkanir og sóttvarnareglur.

Kl. 13-21
Hólmavíkurmyndir. Ljósmyndasýning, úr myndasafni Karls E. Loftssonar og fleiri. Útisýning, í glugganum á Hnyðju, Þróunarsetrinu á Hólmavík. Á vegum Þjóðfræðistofu og Sauðfjársetursins.

Kl. 14:30, 17 og 19:30
Handbolti á EM í Búdapest og pakkhúsinu á Café Riis. Fyrst leikið um 5. sætið ÍSLAND-NOREGUR og svo koma undanúrslitaleikirnir tveir.

Kl. 21
Svavar Knútur mætir á Strandir og verður með tónleika í streymi.

LAUGARDAGURINN 29. JAN.

Kl. 13-18
Opið á Galdrasýningunni og Kaffi Galdri, tilboð á Tikkamasala.

Kl. 13.
Námskeið um streymi og útsendingu viðburða. Haldið í Hnyðju, Svavar Knútur kennir heimamönnum kúnstirnar. Þau sem vilja taka þátt eru beðin að skrá sig hjá Jóni Jónssyni.

Kl. 13-21
Gamlar myndir frá Hólmavík. Úr myndasafni Karls E. Loftssonar og fleiri. Útisýning, í glugganum á Hnyðju, Þróunarsetrinu á Hólmavík. Á vegum Þjóðfræðistofu og Sauðfjársetursins.

Kl. 14-17
Vöfflur og kaffi á Sauðfjársetrinu í Sævangi. Síðasta tækifæri til að sjá sýninguna Svipmyndir úr sveitinni: Úr myndaalbúmi Rósu Jónídu á Kirkjubóli, áður en henni verður skipt út fyrir aðra ljósmyndasýningu. Bent er á að gaman er að rölta frá Sævangi og skoða útisýninguna og listaverkin við göngustíginn Sjávarslóð (t.d. ef gæta þarf að fjöldatakmörkum).

Kl. 15-19
Opið hús á Steinhúsinu á Hólmavík, eftir breytingar. Opið á milli 15-19 laugardag og sunnudag!

Kl. 17-22
Gellukvöld á Café Riis (gellur og lambafille á matseðlinum, einnig pizzur).

Kl. 20
Kvöldvaka á Sauðfjársetrinu í Sævangi. Miðlað í streymi (ekki gert ráð fyrir gestum).

Kl. 22
Fjarsvar, spurningakeppni á Zoom. Forritið Kahoot er notað fyrir svarmöguleikana. Gott er að hafa eitt tæki til að fylgjast með keppninni (t.d. tölvu) og annað (t.d. síma) til að svara. Galdrasýning á Ströndum stendur fyrir keppninni, um spurningarnar sjá vinningshafar frá síðasta kvissi á hátíðinni Bókavík.


SUNNUDAGURINN 30. JAN.

Kl. 12
Sögurölt um Hólmavík, gengið frá Þróunarsetrinu. Gönguklúbburinn Gunna fótalausa stendur fyrir röltinu.

Kl. 13-17
Sýningin Örninn flýgur fugla hæst í Hnyðju, Þróunarsetrinu á Hólmavík. Samstarfsverkefni Össuseturs í Króksfjarðarnesi, Þjóðfræðistofu og Sauðfjárseturs. Opið hús, passið fjöldatakmarkanir og sóttvarnareglur.

Kl. 13-18
Opið á Galdrasýningunni og Kaffi Galdri, tilboð á Tikkamasala.

Kl. 13-21
Gamlar myndir frá Hólmavík. Úr myndasafni Karls E. Loftssonar og fleiri. Útisýning, í glugganum á Hnyðju, Þróunarsetrinu á Hólmavík. Á vegum Sauðfjárseturs og Þjóðfræðistofu.

Kl. 14-22
Opið á Café Riis, pizzur og kaldur, tilboð á Vetrarsólarpizzu, handbolti í pakkhúsinu.

Kl. 14:30
Leikið um 3. sætið á HM í handbolta í Búdapest og í pakkhúsinu á Café Riis.

Kl. 15-19
Opið kaffihús á Steinhúsinu á Hólmavík, eftir breytingar. Opið á milli 15-19 laugardag og sunnudag!

Kl. 17
Leikið til úrslita á EM í handbolta í Búdapest og í pakkhúsinu á Café Riis.

Fleira verður ekki á dagskránni. Verbúðarstemmning á sunnudagskvöldið og bridgekvöld hjá Bridgefélagi Hólmavíkur, allt í takt við sóttvarnareglur. Vetrarsólargengið þakkar fyrir sig!

Við minnum á að hæglætishátíðin Vetrarsól á Ströndum verður haldin um næstu helgi, 28.-30. janúar, að teknu tilliti til ...
23/01/2022

Við minnum á að hæglætishátíðin Vetrarsól á Ströndum verður haldin um næstu helgi, 28.-30. janúar, að teknu tilliti til mikilvægra handboltaleikja og kófsins. Verið er að stilla upp dagskránni og hún verður birt eftir helgi.

Öll sem hafa áhuga á að bjóða upp á viðburði, streymi eða tilboð í tengslum við hátíðina eru hvött til að hafa samband! Best er þá að hafa samband við stjórnarfólk í Arnkötlu - lista- og menningarfélagi sem stendur fyrir hátíðinu. Þau eru Dagrún Ósk Jónsdóttir, Guðlaug G.I. Bergsveinsdóttir, Dagrún Magnúsdóttir, Esther Ösp Valdimarsdóttir og Jón Jónsson.

Address

Höfðagata 3
Hólmavík
510

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Vetrarsól á Ströndum posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Vetrarsól á Ströndum:

Share

Category