Landsmót hestamanna

Landsmót hestamanna We welcome you to Landsmót at Hólar in Hjaltadalur, Skagafjörður 5.-11. júlí 2026. Landsmót hestamanna has been held since 1950. July 2026

The first 50 years it was held every four years, but since 1998 is has been held every two years. It´s the festival of the icelandic horse, and it´s one of a kind! Welcome to next Landsmót hestamanna in Hólar, 5.-12.

Við hlökkum mikið til að taka á móti gestum og hrossum heim að Hólum!Sjá skemmtilegt viðtal við Áskel framkvæmdastjóra:
13/06/2026

Við hlökkum mikið til að taka á móti gestum og hrossum heim að Hólum!

Sjá skemmtilegt viðtal við Áskel framkvæmdastjóra:

Landsmót hestamanna fer fram á Hólum í Hjaltadal 5. til 11. júlí í sumar. Reiknað er með s*x til átta þúsund gestum á mótið og að keppnishrossin verði um 900. Miðasala hefur gengið vel.

Framkvæmdir við landsmótssvæðið á Hólum eru nú á lokametrunum og Kári Heiðar, starfsmaður Hólaskóla smellti þessari mynd...
13/06/2026

Framkvæmdir við landsmótssvæðið á Hólum eru nú á lokametrunum og Kári Heiðar, starfsmaður Hólaskóla smellti þessari mynd yfir svæðið nýveri👌🏼

Minnum á að dag- og helgarpassar eru til sölu á landsmot.is

Fyrir þau sem ætla að koma á Landsmót og búa þar í nokkra daga skiptir fjölbreytt framboð á mat miklu máli. Fyrir utan s...
11/06/2026

Fyrir þau sem ætla að koma á Landsmót og búa þar í nokkra daga skiptir fjölbreytt framboð á mat miklu máli. Fyrir utan stóreldhúsið sem verður í Þráarhöllinni verðum við líka með landsliðið í götubitum á svæðinu. Þar verða fremstir í flokki hinn margverðlaunaði Sillikokkur.is með sína mögnuðu borgara og Issi Fish & Chips sem flestir eru sammála um að framreiði fisk og franskar betur en aðrir.

Heiðar framkvæmdastjóri kvittaði á samninga við við þessa heiðurmenn á dögunum og þar voru þessar myndir teknar✍️

Ef þú átt eftir að næla þér í miða bendum við á vefinn okkar landsmot.is

Við viljum enn og aftur vekja athygli ykkar á því að óprúttnir aðilar hafa sett upp svindl síður á samfélagsmiðlum og þá...
09/06/2026

Við viljum enn og aftur vekja athygli ykkar á því að óprúttnir aðilar hafa sett upp svindl síður á samfélagsmiðlum og þá aðallega Facebook. Góð vinnuregla er að síður sem senda vinabeiðnir eða búa til hópa er ekki rétt síða.

👉 Rétta facebook síða mótsins er Landsmót hestamanna (með engu ártali), síðan er "like-síða" með um 17þús fylgjendum og við sendum ENGAR vinabeiðnir til fólks.

__________

We would again, like to draw your attention to the fact that unscrupulous parties have set up scam pages on social media, mainly Facebook.

👉 The correct page for the tournament is Landsmót hestamanna (without year), the correct page is a "like-page" with about 17 thousand followers and we do NOT send friend requests to people.

Hesthúsapláss á Landsmóti hestamanna 2026Hesthúsapláss á Hólum:Landsmót hefur nú sent öllum formönnum hestamannafélagann...
06/06/2026

Hesthúsapláss á Landsmóti hestamanna 2026

Hesthúsapláss á Hólum:

Landsmót hefur nú sent öllum formönnum hestamannafélaganna bréf varðandi skipulag hesthúsamála á mótssvæðinu á Hólum. Í bréfinu kemur fram að dagplássum í hesthúsinu Brúnastöðum verði úthlutað til hestamannafélaganna eftir fjölda félagsmanna sem hvert félag hefur rétt á að senda á landsmót. Sjá nánari upplýsingar undir flipanum knapar - hesthús á heimasíðu landsmóts, landsmot.is. Þar birtast allar helstu upplýsingar um mótið og skipulag þess.

Það verður á ábyrgð hvers hestamannafélags að hagræða sínum stíum, eins og það telur best, sem það fær úthlutað.

Reikna má með að þetta fyrirkomulag verði á meðan forkeppnin á sér stað en eftir hana má vænta annars skipulags þar sem rýmkar töluvert í hesthúsunum eftir forkeppni, sú útfærsla verður kynnt formönnum félaganna þegar nær dregur.

Hesthúsapláss utan mótssvæðis:

Lagt er til að allir hestar séu með hesthúsapláss utan mótssvæðis. Skipuleggjendur Landsmóts hafa tekið saman lista yfir þau hesthúsapláss í Skagafirði sem skagfirskir hestamenn hyggjast bjóða keppendum án endurgjalds.

Margir eru nú þegar búnir að finna sér pláss en ef einhver er í vandræðum má senda okkur tölvupóst á [email protected] og reynt verður eftir bestu getu að aðstoða.

Með kærri kveðju,
Hesthúsanefnd

Landsmót hestamanna verður ekki haldið án góðra samstarfsaðila og Ölgerðin er eitt þeirra fyrirtækja sem um árabil hefur...
02/06/2026

Landsmót hestamanna verður ekki haldið án góðra samstarfsaðila og Ölgerðin er eitt þeirra fyrirtækja sem um árabil hefur staðið þétt við bakið á hestamönnum í mótahaldi.

Við getum nú glatt mótsgesti Landsmóts með þeim fréttum að Boli léttöl frá Ölgerðinni verður meðal þess sem gestir geta notið á Hólum í sumar. Landsmót og Boli munu í sameiningu umbreyta Skólahöllinni í skemmtilegt samkomurými með kúrekaþema þar sem Bolabarinn verður í aðalhlutverki.

Í Skólahöllinni verður notalegt að setjast niður, spjalla og njóta góðrar stemningar. Þar verður einnig svið og risaskjár, auk fjölbreyttrar dagskrár með kántrýtónleikum, trúbadorum, fótbolta á skjá, fræðsluerindum og fleiru sem kynnt verður nánar á næstunni.

Á myndinni má sjá Áskel Heiðar, framkvæmdastjóra Landsmóts 2026, ásamt Bergsveini Guðmundssyni frá Ölgerðinni.

Framboð af gistingu í Skagafirði meðan á Landsmóti hestamanna stendur!Nú þegar rúmlega mánuður er í Landsmót er framboð ...
30/05/2026

Framboð af gistingu í Skagafirði meðan á Landsmóti hestamanna stendur!

Nú þegar rúmlega mánuður er í Landsmót er framboð af gistirými í Skagafirði töluvert og stöðugt berast boð um fleiri valkosti fyrir gesti Landsmóts sem sumir eru enn að leita að hentugu gistiplássi fyrir sig og sína.

Um nokkurra mánaða skeið hefur starfsfólk Landsmóts boðið væntanlegum gestum mótsins aðstoð við leit að hentugu húsnæði til að leigja í landsmótsvikunni ásamt því að þeir sem vilja leigja frá sér heimili, sumarhús, ferðavagna eða annað, hafa verið hvattir til að hafa samband. Öll slík aðstoð fer fram í gegnum netfangið [email protected]

Til að flýta fyrir því að allir fái húsnæði við hæfi, hefur Landsmót hefur ákveðið að birta á heimasíðu sinni lista yfir þá aðila sem hafa boðið fram gistingu til landsmótsgesta - sjá nánar hér https://www.landsmot.is/is/news/stada-mala-vardandi-gistingu-i-skagafirdi-i-kringum-landsmot-hestamanna

Við hvetjum gesti til að gera verðsamanburð og leita þar til að hentug lausn finnst og eins hvetjum við eigendur fasteigna til að leita sanngjarnra lausna varðandi verð. Við höfum þegar sent þeim sem vilja leigja frá sér rými tillögu að viðmiðunarverði pr. mann pr. nótt, en auðvitað er öllum frjálst að semja um það verð sem þau vilja semja um. Landsmót tekur enga ábyrgð á leiguviðskiptum, við erum eingöngu að liðka fyrir með upplýsingamiðlun.

Við hvetjum svo þau sem eru með fasteign eða annað skráð til leigu á listanum að láta vita í [email protected] ef viðkomandi eign er bókuð til að hægt sé að taka hana af listanum.

Eins hvetjum við enn þau sem hyggjast leigja frá sér fasteign til að láta vita í sama netfang og við bætum viðkomandi á listann.

Fráteknir reitir með rafmagnstengli eru nú uppseldir á mótssvæðinu á Hólum, en að sjálfsögðu stendur öllum miðaeigendum á Landsmóti til boða að tjalda á mótssvæðinu án aukagjalds, en þá án rafmagns og án frátekins svæðis.

Nú þegar rúmlega mánuður er í Landsmót er framboð af gistirými í Skagafirði töluvert og stöðugt berast boð um fleiri valkosti fyrir gesti Landsmóts sem sum

500 rafmagnsstæði seld á Landsmóti hestamanna – síðustu rafmagnsstæðin komin í sölu!Mikill áhugi er fyrir rafmagnsstæðum...
23/05/2026

500 rafmagnsstæði seld á Landsmóti hestamanna – síðustu rafmagnsstæðin komin í sölu!

Mikill áhugi er fyrir rafmagnsstæðum á Landsmóti hestamanna og hafa nú þegar selst rúmlega 500 rafmagnsstæði.
Vegna mikillar eftirspurnar hafa 43 ný rafmagnsstæði verið sett í sölu, en mikilvægt er að taka fram að ekki verða fleiri rafmagnsstæði sett í sölu eftir þetta. Þeir sem vilja tryggja sér rafmagnsstæði eru því hvattir til að ganga frá kaupum sem fyrst. Allar upplýsingar er að finna á landsmot.is og tix.is.
Af gefnu tilefni viljum við minna á að með hverjum seldum miða á Landsmót hestamanna fylgir frítt tjaldstæði án rafmagns. Almenn tjaldstæði þarf ekki að panta sérstaklega. Sjá má skýringarmynd sem sýnir hvar almenn tjaldsvæði verða staðsett á mótssvæðinu.
Landsmót hestamanna er einn stærsti viðburður hestamennskunnar á Íslandi og ljóst er að mikil eftirvænting ríkir fyrir mótinu.

Nánari upplýsingar og miðasala eru á landsmot.is.

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

500 electric hook-up camping spots sold for Landsmót hestamanna – the final electric hook-up spots are now on sale!

There has been great interest in electric hook-up camping spots at Landsmót hestamanna, with over 500 spots already sold.
Due to high demand, 43 additional electric hook-up spots have now been released for sale. It is important to note that no further electric hook-up spots will be made available after this. Those who wish to secure an electric hook-up spot are therefore encouraged to complete their purchase as soon as possible.
All information can be found at landsmot.is and tix.is.
We would also like to remind everyone that each ticket purchased for Landsmót hestamanna includes a free camping spot without electricity. General camping spots do not need to be booked separately. A map is available showing where the general camping areas will be located within the event grounds.
Landsmót hestamanna is one of the largest equestrian events in Iceland, and it is clear that excitement is building ahead of the event.

Further information and ticket sales are available at landsmot.is.

19/05/2026

Landsliðsknapar í Skagafirði og þjálfari fengu nokkrar hraðaspurningar á sig 😎

Sjáumst á Landsmóti ✨

10/05/2026

Við tókum púlsinn á hestamönnum í Skagafirði 🤠
Það er komin alvöru Landsmótsstemning í loftið 🐎🔥

Bjarni Jónasson
Hafsteinsstaðir Hrossaræktarbú
Narfastaðir Bergur Gunnarsson
Guðmundur Sveinsson

Address

Hólar
551

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Landsmót hestamanna posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Landsmót hestamanna:

Share