31/12/2024
Kæru listvinir
Eftir viðburðarík nokkur skapandi ár var ákveðið á aðalfundi í vetur að leggja Listvinafélag Grindavíkur niður💛💙
Það þarf ekki að fara í neinar málalengingar með það af hverju þessi ákvörðun er tekin en fjarlægð stjórnar frá hvor annarri og bæjarfélaginu á stóran hlut í máli og gerir sjálfboðastarfið og námskeiðshald flóknara.
Félagið var stofnað um vorið 2022 með þeim tilgangi að auka við listtengda afþreyingu fyrir íbúa Grindavíkur og hafa sem minnstann kostnað fyrir þátttakendur. Félagið hefur starfað í samstarfi við Grindavíkurbæ og Kvikuna og mikið hefur verið brallað á þessum stutta tíma sem við höfum verið til.
Öll vinna hefur verið sjálfboðavinna og viljum við þakka ykkur öllum sem hafið komið að starfinu kærlega fyrir.
Einnig viljum við þakka stofnfélögum sérstaklega fyrir ykkar framlag því án þess hefðum við ekki getað stofnað félagið. Nú á félagið um fjörutíu þúsund krónum og fór peningurinn inná sjóðinn „Samvera fyrir samfélag“ þar mun peningurinn þá nýtast áfram grindvískra barna.
Við óskum ykkur gleðilegs nýs árs, meigi það vera fullt af menningu og listum💫🫶 þökkum frábærar stundir💛💙
Kærleikskveðjur
stjórnin