Kvennakór Garðabæjar

Kvennakór Garðabæjar Metnaðarfullur kvennakór sem starfar af krafti undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur. Píanó

09/06/2021

(English below)
Kvennakór Garðabæjar var formlega lagður niður þann 1. júní síðastliðinn eftir tuttugu ára öflugt starf. Sem stofnandi og stjórnandi kórsins tók ég þá ákvörðun fyrr í vor að kveðja kórinn minn og geng nú sátt frá borði, að loknu góðu og gefandi verki.

Margs er að minnast og margt ber að þakka eftir tuttugu ára starf sem alla tíð hefur einkennst af miklum metnaði, sterkri félagslegri heild og dýrmætum vinskap. Sá fjöldi kvenna sem sungið hefur með kórnum um lengri eða skemmri tíma hefur sýnt og sannað, í söng og starfi, hve máttur þeirra er mikill. Öllum þessum konum þakka ég af alhug og óska þeim velfarnaðar.

Kórinn hefur frá stofnun staðið fyrir ýmsum menningarviðburðum, m.a. sungið fjölda tónleika, tekið þátt í kóramótum, farið í söngferðir innan lands og utan og hvarvetna vakið aðdáun. Árið 2015 vann kórinn bæði gull- og silfurverðlaun í alþjóðlegri kórakeppni á Spáni.

Samstarfssamningur við Garðabæ hefur svo sannarlega verið mikil lyftistöng og hvatning. Kórinn, sem einn af máttarstólpum menningarlífs bæjarins, hefur átt því láni að fagna að fegra mannlífið og bæjarbraginn með söng sínum og starfi. Af því er ég afar stolt, en einnig þakklát og auðmjúk.

Garðbæingum og öðrum velunnurum kórsins þakka ég ómælda tryggð í gegnum árin.

Meðfylgjandi er stutt afmælismyndband sem ég setti saman í tilefni 20 ára afmæli kórsins þann 4. september 2020.

Kær kveðja, Ingibjörg Guðjónsdóttir

Garðabær Women's Choir was formally discontinued on the 1st of June. As the founder and conductor, I decided this spring to say farewell to my choir after a good and rewarding work for twenty years.

There are many things to remember and many things to be thankful for. The choir has always been characterized as an ambitious organization with strong unity and valuable friendships. The number of women who have sung with the choir for a longer or shorter period has shown and proved how great their power is. All these women I thank wholeheartedly and wish them all the best.

From the beginning, the choir has organized various cultural events and concerts, participated in choir competitions and festivals, and traveled both domestically and abroad on concert tours arousing admiration wherever they went. In 2015, the choir won both gold and silver awards in an international choir competition in Spain.

I am particularly proud and grateful that my choir has been one of the pillars of Garðabær's cultural life for the last twenty years. The people of Garðabær and other followers I would like to thank for their unique loyalty and devotion over the years.
Attached is a video that I put together last September when the choir celebrated its twentieth birthday.

Sincerely, Ingibjörg Guðjónsdóttir

20/12/2020

Það snjóar, eitt af uppáhaldsjólalögum kórkvenna, hljómar hér í upptöku frá aðventutónleikum kórsins 2017. Minningar ylja og vekja vonir um endurfundi á nýju ári. Upptaka: Tryggvi Rúnarsson.

18/12/2020

Klukkanna köll (Carol of the Bells) frá aðventutónleikum í Digraneskirkju árið 2017. Minningarnar ylja og vekja vonir og tilhlökkun um endurfundi á nýju ári. Fleiri myndbönd munu birtast hér á síðunni fram að jólum. Upptaka: Tryggvi Rúnarsson

16/12/2020

Nú er nóttin sú, hið fallega þýska jólag, flutti kórinn á aðventutónleikum í Digraneskirkju árið 2017. Minningarnar ylja og vekja vonir og tilhlökkun um endurfundi á nýju ári. Fleiri myndbönd munu birtast hér á síðunni fram að jólum. Upptaka: Tryggvi Rúnarsson Anna María Sigurjónsdóttir Hrönn Eir Grétarsdóttir Margrét Sigurðardóttir Agnes Kragh Hansdóttir Heiða Gunnarsdóttir Margrét Milla Sigurjónsdóttir Halldóra Viðarsdóttir Kristin Erla Kristjansdottir Hafdís Erla Baldvinsdóttir Herdís Tómasdóttir Anna Svanlaugsdóttir Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir Ragnheiður Dögg Ísaksdóttir Helen Hreidarsdottir Heiðrún Pétursdóttir Helga Melsteð Kolbrún Þ. Pálsdóttir Kristín Ösp Jónsdóttir Valgerður Jóhannesdóttir Margrét Valgerður Pálsdóttir Valborg Stefánsdóttir Sigríður Kragh Hansdóttir Una Berglind Þorleifsdóttir Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir Ragnheiður Katrín Thorarensen

02/12/2020
Það eru akkúrat fimm ár síðan við tókum þátt í kórakeppninni Canta al mar á Spáni og unnum til tveggja verðlauna. Ógleym...
25/10/2020

Það eru akkúrat fimm ár síðan við tókum þátt í kórakeppninni Canta al mar á Spáni og unnum til tveggja verðlauna. Ógleymanleg ferð, upplifun og heiður ❤️🎶❤️

04/09/2020
17/08/2020
Það var einstök sumarblíða þegar kátar kórsystur hittust á veitingastaðnum Café Flóru í Grasagarðinum í fyrrakvöld. "Sum...
04/07/2020

Það var einstök sumarblíða þegar kátar kórsystur hittust á veitingastaðnum Café Flóru í Grasagarðinum í fyrrakvöld. "Sumarhittingar" hafa verið fastur punktur í kórstarfinu til fjölda ára og þó flestir landsmenn séu á faraldsfæti á þessum árstíma láta þær kórkonur sem eru í bænum þessa samverustund ekki fram hjá sér fara. Oftast er hittst á kaffihúsum en einnig eru stuttar göngurferðir vinsælar. Vegna Covid og þess ástands sem nú ríkir í þjóðfélaginu hafa sumarhittingar haft enn meiri þýðingu fyrir kórkonur, sérstaklega þar sem kóræfingar hafa legið niðri síðan í mars sl. Það ríkir því mikil tilhlökkun fyrir komandi starfsári og þau verkefni sem bíða söngs og sælu en kórinn fagnar tuttugu ára afmæli sínu á hausti komandi.

Það voru kátar kórkonur sem mættu í "plokkið" í gærkveldi. Þessa dagana stendur Garðabær fyrir hreinsunarátak og létu kó...
13/05/2020

Það voru kátar kórkonur sem mættu í "plokkið" í gærkveldi. Þessa dagana stendur Garðabær fyrir hreinsunarátak og létu kórkonur ekki sitt eftir liggja í að fegra og hreinsa bæinn á örlítið köldum vordegi en þurrum 💚😉💚

Address

Asparholt 13
Garðabær
225

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kvennakór Garðabæjar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Kvennakór Garðabæjar:

Share

Category