Tónleikafélag Austurlands

Tónleikafélag Austurlands Tónleikafélagið eru frjáls félagasamtök og standa fyrir tónleikum á Austurlandi

25/03/2026

Frikki að glíma við Zakk og tekur hann gersamlega á Ippon -> Fullnaðarsigur hjá þessum ljúfa dreng. Þvílíkur gítarleikari með sitt einstaka fell, eins og vel strokkað smjör.

24/03/2026

Vélarnar í gangi. Tónleikafélag Austurlands er svo lánsamt með meðlimi. Öll hafa þau lagt hart að sér og aldrei kveinkað sér sama hvað. Við heiðruðum Ozzy síðasta haust. Hér er bútur úr laginu Shot in the dark.
5 September 2026 ætlum að að heiðra annan stórmeistara og áberandi vörðu í íslenskri tónlist og verður sá heiðursmaður 70 ára 6.6.2026.

Mjög þarft mál sem verður að ganga eftir.
06/09/2025

Mjög þarft mál sem verður að ganga eftir.

Heilbrigðisráðherra segir til skoðunar að efla geðheilbrigðisþjónustu á Austurlandi eftir röð áfalla þar á síðasta rúma ári. Sjálfsvíg verða rannsökuð afturvirkt til ársins 2000 til að finna rauðan þráð.

Styrktaraðilar okkar í ár. Við erum ævinlega þakklát þeim aðilum sem leggja okkur og góðum málstað lið. Án ykkar værum v...
05/09/2025

Styrktaraðilar okkar í ár.
Við erum ævinlega þakklát þeim aðilum sem leggja okkur og góðum málstað lið. Án ykkar værum við ekki hér. TAKK

05/09/2025
Við viljum biðja tónleikagesti sem taka upp myndskeið að vera svo væn að merkja/tagga tónleikafélagið í póstana Við erum...
05/09/2025

Við viljum biðja tónleikagesti sem taka upp myndskeið að vera svo væn að merkja/tagga tónleikafélagið í póstana
Við erum virkilega spennt að sjá ykkur sem flest, flytja skemmtilega tónlist og safna fyrir Píeta Samtökin á Austurlandi

149 Followers, 275 Following, 52 Posts - See Instagram photos and videos from Tónleikafélag Austurlands ()

05/09/2025

Tónleikafélagið óskar eftir sjálfboðaliðum til að selja varning frá Píeta á tónleikunum okkar í Valaskjálf 6 september.

04/09/2025

Píeta samtökin eru að hefja ferðalag um landið þar sem Tómas Daði Bessason sálfræðingur hjá Píeta og Birna Rún Eiríksdóttir leikkona, heimsækja framhaldsskóla og ræða opinskátt um andlega líðan og mikilvægi þess að við tölum saman um hlutina.

👉Verkefnið ber heitið "Segðu það upphátt!"
Í fræðslunni er lögð áhersla á vonina, lausnir og bjargráð þar sem rætt verður um líðan og tilfinningar á léttum og uppbyggilegum nótum 💛

💛💙 Verkefnið var fjármagnað með landssöfnun Lions á Íslandi sem fór fram fyrr á árinu. Lionsfélagar um allt land seldu Rauðu fjöðrina til styrktar forvarnarverkefninu "Segðu það upphátt!" fyrir ungt fólk.

03/09/2025

Tónleikafélag Austurlands heiðrar Ozzy Osbourne á góðgerðartónleikum í Valaskjálf. Ágóði rennur til Pieta-samtakanna sem vinna gegn sjálfsvígum og opnuðu nýlega skjól á Austurlandi.

02/09/2025
02/09/2025

Styrktartónleikar til stuðnings Píeta samtökunum á Austurlandi

Eins og við öll vitum hefur verið þungt og erfitt ástand í samfélaginu okkar. Fólk í blóma lífsins hefur horfið á braut og fallið fyrir eigin hendi. Það er ekki hægt að ímynda sér þann sársauka og þær tilfinningar sem fylgja svo miklu áfalli, en áhrifin ná langt út fyrir fjölskyldur og vini – þau skekja allt samfélagið. Við þurfum að standa saman, sýna samhug og styðja við þá sem þurfa á hjálp að halda.
Tónleikafélag Austurlands ætlar því að efna til styrktartónleika í Valaskjálf 6. september þar sem allur ágóði rennur til Píeta samtakanna á Austurlandi. Með því viljum við leggja okkar af mörkum til að styrkja starfsemi sem er lífsnauðsynleg og getur skipt sköpum þegar einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir eða aðstandendur þurfa á stuðningi að halda.
Það er mikilvægt að minna á að enginn þarf að standa einn í þessum aðstæðum. Þeir sem glíma við sjálfsvígshugsanir geta leitað sér aðstoðar hjá heilsugæslu, í hjálparsíma Rauða krossins 1717 eða hjá Píeta samtökunum í síma 552-2218, sem er opinn allan sólarhringinn. Ef um bráða hættu er að ræða skal hringja í Neyðarlínu 112.

Við viljum hvetja sem flest að mæta í Valaskjálf þann 6 september á heiðurstónleika Ozzy Osbourne og styrkja þarft málefni í leiðinni. Þetta verður svakalega gaman.

Address

Egilsstaðir
700

Telephone

+3546161513

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tónleikafélag Austurlands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Tónleikafélag Austurlands:

Share