Rúllandi snjóbolti / Rolling Snowball

Rúllandi snjóbolti / Rolling Snowball Rolling Snowball is an international visual art exhibition which presents works by contemporary artists.

„Rúllandi snjóbolti/ Djúpivogur“ er alþjóðleg samtímalistasýning sem sett hefur verið upp í Bræðslunni á Djúpavogi á sumrin frá 2014-2020.
Árið 2022 fer sýningin fram í húsnæði ARS LONGA við Voginn. Rolling Snowball, Djúpivogur brings together artists working across the full spectrum of disciplines, including drawing, photography, painting, sculpture and video. The exhibition continues as a joint

project of the Chinese-European Art Centre (CEAC) in Xiamen, China, and the municipality of Djúpivogur.

Verið velkomin á opnun sýninganna Rúllandi snjóbolta 15 og Tímamót laugardaginn 9. júlí kl. 15 í ARS LONGA, Djúpavogi. R...
05/07/2022

Verið velkomin á opnun sýninganna Rúllandi snjóbolta 15 og Tímamót laugardaginn 9. júlí kl. 15 í ARS LONGA, Djúpavogi. Rúllandi snjóbolti er samstarfsverkefni ARS LONGA samtíma­lista­safns og Kínversk-evrópsku menningarmiðstöðvarinnar (CEAC) í Xiamen í Kína með stuðningi Múlaþings og Mynd­listarsjóðs. Sýningarnar eru þær fyrstu sem opna í safninu og standa þær yfir sumartímann. Sjá nánar ARS LONGA samtímalistasafn / contemporary art museum

Rúllandi snjóbolti 15 /// Rolling Snowball 15
Carien Engelhard
Claire Paugam
Guðjón Ketilsson
Jin Jing
Josefin Arnell
Karin van Dam
Katrín Elvarsdóttir
Kristín Karólína Helgadóttir
Logi Leó Gunnarsson
Meiya Lin
Mica Pan
OEPN:
Arnar Ásgeirsson,
Hildigunnur Birgisdóttir,
Una Margrét Árnadóttir,
& Örn Alexander Ámundason
Pan Feifei
Persijn Broersen & Margit Lukacs
Sigurður Guðjónsson
Tara Fallaux
Una Björg Magnúsdóttir
Yang Jian

Tímamót /// Turning Point:
Guðný Rósa Ingimarsdóttir
Kristbergur Óðinn Pétursson
Kristján Guðmundsson
Margrét Blöndal
Sigurður Guðmundsson

Welcome to the opening of Rolling Snowball 15 and Turning Point Saturday July 9th at 3 pm. at ARS LONGA – Djúpivogur, Iceland.

Rolling Snowball is a joint project of ARS LONGA and the Chinese-European Art Center (CEAC) in Xiamen, China. Supported by Múlaþing and The Visual Arts Fund. The exhibitions are the first to open in the museum and will run throughout the summer. See more: arslonga.is

01/06/2022
20/08/2021

Heimildarmyndin Möhöguleikar um Sigurð Guðmundsson verður sýnd í Löngubúð á Djúpavogi í kvöld, föstudaginn 20. ágúst kl. 21. Leikstj. Ari Alexander Ergis Magnússon, 2002, 52 min. Allir velkomnir.

See the documantary Possibihilities from 2002 on Sigurður Guðmundsson tonight Fri.22/8 at 9 pm at Langabud, Djupivogur. English subtitles.
Dir. Ari Alexander Ergis Magnússon, 2002, 52min.

Ars longa, nýstofnuðu samtímalistasafni á Djúpavogi, hefur borist vegleg listaverkagjöf eftir Sigurð Guðmundsson. Öll ve...
12/08/2021

Ars longa, nýstofnuðu samtímalistasafni á Djúpavogi, hefur borist vegleg listaverkagjöf eftir Sigurð Guðmundsson. Öll verkin má sjá á sýningu hans Alheimurinn er ljóð en hún stendur nú yfir í Bræðslunni til 15.ágúst. Allir velkomnir

Fréttatilkynning
Listaverkagjöf Sigðurðar Guðmundssonar
ARS LONGA – samtímalistasafn ses.

Ars longa, nýstofnuðu alþjóðlegu samtímalistasafni staðsettu á Djúpavogi, hefur borist listaverkagjöf tuttugu og sjö listaverka eftir myndlistarmanninn Sigurð Guðmundsson. Öll verkin má finna á sýningu Sigurðar, Alheimurinn er ljóð, sem opnuð var í Bræðslunni á Djúpavogi 10. júlí og stendur til 15 ágúst næstkomandi. Sýningin er sú síðasta sem haldin er í Bræðslunni eftir átta ára samfellt sýningarhald.

Verkin sem tilheyra listaverkagjöf Sigurðar spanna meira en 50 ára tímabil af ferli hans. Samanlagt verðmat verkanna eru rúmar 125 milljónir króna eða rúmlega ein milljón Bandaríkjadala. Ars longa samtímalistasafn hefur því eignast stæstu safneign af verkum Sigurðar á landsvísu og mörg þeirra talin lykilverk í ferli listamannsins. Aðeins Stedelijk Museum í Amsterdam á stærri safneign af verkum Sigurðar sem á fimmtíu og sjö verk eftir hann.
Sigurður Guðmundsson, sem er ásamt Þór Vigfússyni stofnandi hins nýja safns, segist vona að innan fárra ára verði þessi safneign orðin lítil innan um ný aðföng af listaverkum eftir samtímalistamenn jafnt erlendra sem íslenskra listamanna. Listaverkagjöfin verður flutt að lokinni sýningu í ný húsakynni Ars longa sem mun verða við voginn á Djúpavogi.


ARS LONGA – samtímalistasafn ses. er sjálfeignarstofnun sem heldur um starfsemi og rekstur sjálfstæðs listasafns á Djúpavogi. Stofnendur eru myndlistarmennirnir Sigurður Guðmundsson og Þór Vigfússon sem stýra faglegu starfi í samvinnu við sitjandi stjórn. Markmið með stofnun safns fyrir alþjóðlega myndlist á Djúpavogi er að safna og varðveita listaverkaeign eftir íslenska og alþjóðlega listamenn, vera leiðandi vettvangur alþjóðlegrar samtímalistar á Íslandi og efla tengsl og samvinnu við listamenn og aðra fagaðila á alþjóðavísu með metnaðarfullu sýningarhaldi. Sjálfstætt safn fyrir alþjóðlega samtímalist á Djúpavogi á sér ekki hliðstæðu hér á landi. Listin er tengivagn við hinn stóra heim með öflugri og metnaðarfullri starfsemi sem ætlað er að endurspegla strauma og stefnur samtímalistarinnar. Safnið mun styðja við frjóan jarðveg grasrótar listamanna samhliða sýningum á verkum þekktari listamanna víðsvegar að.

Sérkenni staðarins mun vera einkennandi í allri starfsemi safnsins og áhersla lögð á safnið sem áfangastað í alþjóðlegu samhengi. Aðdragandann að safninu má rekja til Eggjanna í Gleðivík eftir Sigurð Guðmundsson sem voru keypt með dyggri aðstoð Djúpavogshrepps þrátt fyrir erfitt efnahagsástand í upphafi hrunsins. Það hefur þó sannast á þeim 12 árum sem verkið hefur staðið að ekki einungis geta listaverk haft jákvæð áhrif á íbúa og gesti staðarins, heldur geta þau orðið að einkenni og ímynd svæðisins sem gerir hann að sérstökum áfangastað. Í samvinnu við Kínversk-evrópsku menningarmiðstöðina (CEAC), hafa stofnendur safnsins staðið fyrir árlegum sýningum undir heitinu Rúllandi snjóbolti frá árinu 2013. Sýningarverkefnið er orðið að þekktu fyrirbrigði í íslensku menningarlandslagi og sýningargestir talið tugþúsundum. Sveitarstjórn og íbúar Djúpavogs eiga heiður skilið fyrir þátttöku í þessu menningarlega átaki sem Snjóboltinn hefur verið og er hann prófsteinn sem hvetur til frekari uppbyggingar og starfsemi. Mikilvæg reynsla hefur komið með skipulagðri menningarstarfsemi á svæðinu og telst hún ómetanleg fyrir væntanlegt safn á Djúpavogi.

Uppbygging sjálfstæðrar öflugrar menningarmiðstöðvar á svæðinu mun styrkja vægi þess í íslensku menningarlandslagi til framtíðar. Safninu er ætlað að vera lifandi vettvangur í sífelldri endurnýjun um leið og safneign þess mun halda um ómetanlegan menningararf til frambúðar. Lagt er uppi með að viðburðir og sýningarhald hefjist sumarið 2022 í nýjum húsakynnum Ars longa við voginn á Djúpavogi.

Nánar um sýninguna Alheimurinn er ljóð:
Sýning Sigurðar Guðmundssonar Alheimurinn er ljóð samanstendur af ólíkum verkum frá árunum 1969–2021. Ferill Sigurðar er fjölbreyttur og miðlarnir ólíkir en póetískur tónn hefur umvafið verk hans alla tíð, hvort sem um er að ræða ljósmyndaverk, höggmyndir, teikningar, grafíkverk eða gjörninga hans, en hann hefur einnig samið tónverk, ljóð og gefið út fjórar skáldsögur.
Sýningin er rökrétt framhald af síðustu útgáfu Sigurðar Ljóð og Ljóð sem kom út árið 2020 og var safn af ljóðum listamannsins. Verkin á sýningunni eru ljóð í sjálfu sér – líkt og titill sýningarinnar gefur til kynna – en Sigurður lítur á alheiminn sem ljóð og í samskiptum sínum við hann finnst listamanninum bæði gott og rétt að upplifa alheiminn sem ljóð (SG, Alheimur, 2019).

Sigurður Guðmundsson (f.1942) er meðal fremstu myndlistarmanna Íslendinga. Hann býr og starfar á Djúpavogi, í Reykjavík, Amsterdam og Xiamen í Kína. Sýningin Alheimurinn er ljóð fer fram í Bræðslunni á Djúpavogi og er samstarfsverkefni Múlaþings, Kínverks-evrópsku menningarmiðstöðvarinnar – CEAC og ARS LONGA með stuðningi frá Uppbyggingarsjóði Austurlands.

Sýningarskrá kom út samhliða sýningunni sem unnin er í samvinnu við Studio Studio (Arnar Freyr Guðmundsson, Birna Geirfinnsdóttir). Sýningar- og framkvæmdastjórn: Kristín Dagmar Jóhannesdóttir í samvinnu við Hildi Rut Halblaub & Þór Vigfússon. Síðasti sýningardagur er 15.ágúst næstkomandi.

Allar frekari upplýsingar veitir sýningarstjóri Kristín Dagmar í síma 8881181 eða í netfang [email protected]

12/08/2021

Ars longa, sem er nýstofnað alþjóðlegt samtímalistasafn á Djúpavogi, hefur borist vegleg listaverkagjöf. Gjöfin inniheldur alls tuttugu og sjö listaverk eftir myndlistarmanninn Sigurð Guðmundsson en samanlagt verðmat verkanna eru rúmar 125 milljónir króna.

Sýning Sigurðar Guðmundssonar Alheimurinn er ljóð stendur til 15.àgúst.
29/07/2021

Sýning Sigurðar Guðmundssonar Alheimurinn er ljóð stendur til 15.àgúst.

Fylgið okkur | Follow us
20/07/2021

Fylgið okkur | Follow us

Sigurður Guðmundsson, Earthquake, 1969 @ The Universe is a Poem

16/07/2021

Address

Bræðslan, Víkurlandi 6
Djúpivogur
765

Opening Hours

Thursday 12:00 - 17:00
Friday 12:00 - 17:00
Saturday 12:00 - 17:00
Sunday 12:00 - 17:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Rúllandi snjóbolti / Rolling Snowball posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category