Hammondhátíð Djúpavogs

Hammondhátíð Djúpavogs Hammondhátíð Djúpavogs fagnar 20 ára afmæli 23.-26. apríl 2026. Hammondhátíð Djúpavogs hefur það að meginhlutverki að heiðra og kynna Hammondorgelið.

Er það gert með því að fá tónlistarmenn, allt frá heimamönnum til landsþekktra, til að leika listir sínar og er Hammondorgelið rauði þráðurinn í gegnum alla dagskrána.

Í gegnum árin hafa í kringum Hammondhelgina sprottið upp fjölmargir aðrir viðburðir. Handverksfólk og hönnuðir hafa verið mjög áberandi með sínar afurðir. Listinn yfir þá tónlistarmenn og hljómsveitir sem komið hafa fram á hátíðin

ni í gegnum tíðina er orðinn langur og glæsilegur og hafa hljómsveitir og listamenn á borð við Hjálma, Baggalút, Dúndurfréttir, Megas, Stórsveit Samma og Nýdönsk, Stuðmenn, Agent Fresco, Valdimar, Todmobile, Mono Town, Skonrokk, Raggi Bjarna, Kiriyama Family, Amabadama, Jónas Sig. og Ritvélar Framtíðarinnar og Bubba og Dimmu heiðrað okkur með nærveru sinni. Allt í allt hafa um 200 tónlistarmenn stigið á stokk á Hammondhátíð. Þá hafa ófáir austfirskir tónlistarmenn komið fram auk þess sem þáttur heimamanna hefur verið rómaður en um 60 tónlistarmenn og konur frá Djúpavogi hafa tekið þátt frá upphafi. Hammondhátíð er orðinn langstærsti menningarviðburður Djúpavogs og í ár var bærinn fullur af fólki frá fimmtudegi til sunnudags. Það þarf því ekki að hafa mörg orð um hve mikils virði þessi hátíð er t.a.m. fyrir ferðaþjónustuaðila, verslun, handverksfólk og alla þá sem bjóða einhverskonar þjónustu, enda fer viðburðum í tengslum við þessa hátíð fjölgandi ár frá ári. Ekki síst er hún mikilvæg fyrir okkur íbúana; í þessu samheldna samfélagi bjóðum við landsmönnum öllum upp á tónlistarhátíð á heimsmælikvarða, hátíð sem er sú eina sinnar tegundar í heiminum. Stjórn Hammondhátíðar skipa:

Ólafur Björnsson
Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir
Kristján Ingimarsson
Guðjón Viðarsson
Þórir Stefánsson
Greta Mjöll Samúelsdóttir
William Óðinn Lefever

Tommi og Ómar ❤️Tómas Jónsson og Ómar Guðjónsson hafa séð um undirleik á lokatónleikunum á Hammondhátíð í Djúpavogskirkj...
01/05/2026

Tommi og Ómar ❤️

Tómas Jónsson og Ómar Guðjónsson hafa séð um undirleik á lokatónleikunum á Hammondhátíð í Djúpavogskirkju síðastliðnar 4 hátíðir. Þeir hafa leikið undir hjá Röggu Gísla, Bríeti, Páli Óskari og nú síðast hjá Friðriki Dór og Jóni Jónssyni. Útkoman hefur verið sönn upplifun fyrir tónleikagesti því hæfileikum þeirra fóstbræðra virðast engin takmörk sett. Fyrir okkur eru þeir órjúfanlegur hluti af Hammondhátíð og megi samstarf okkar við þá vara um ókomna tíð ❤️

Við leggjum til að við klöppum fyrir þeim félögum og hrópum þeim ferfalt húrra!

📷 Jón Einar Ágústsson, 2025

Hvað vilt þú sjá á Hammondhátíð 2027?Við höfum haldið Hammondhátíð í 20 ár. Á þeim árum hefur komið aragrúi af tónlistar...
30/04/2026

Hvað vilt þú sjá á Hammondhátíð 2027?

Við höfum haldið Hammondhátíð í 20 ár. Á þeim árum hefur komið aragrúi af tónlistarfólki og hljómsveitum til okkar. Sumir oft, flestir bara einu sinni. Okkur finnst gaman að hafa hátíðina eins fjölbreytta og mögulegt er, þannig að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Sumum er alveg sama hvað er boðið uppá og mæta bara, á meðan aðrir hafa mjög sterkar skoðanir á öllum atriðum. Okkur finnst allt feedback skemmtilegt, viljum endilega heyra hvað fólki finnst um dagskrána hverju sinni.

En nú spyrjum við.
Hvað vilt þú sjá á Hammondhátíð 2027? Áttu eftirlætis hljómsveit eða listamann sem hefur aldrei komið? Er hljómsveit eða listamaður sem hefur komið og þú vilt fá aftur? Hvernig lítur drauma-Hammondhátíðin þín út? Viltu meira rokk eða meiri djass? Meira af tribute-i eða meira af einhverju frumlegu?

Okkur þætti vænt um að heyra þína skoðun í kommentum 🙂

Við erum svo óendanlega þakklát öllum þeim aðilum sem hjálpa okkur að gera Hammondhátíð að veruleika á hverju ári
29/04/2026

Við erum svo óendanlega þakklát öllum þeim aðilum sem hjálpa okkur að gera Hammondhátíð að veruleika á hverju ári

Hammondhátíð þakkar kærlega fyrir sig. 20 ára afmælishátíðin um nýliðna helgi var draumi líkust. Allt gekk fullkomlega u...
28/04/2026

Hammondhátíð þakkar kærlega fyrir sig. 20 ára afmælishátíðin um nýliðna helgi var draumi líkust. Allt gekk fullkomlega upp. Veðrið var frábært, við eigum líklega bestu tónleikagesti landsins og listafólkið sem steig á svið er allt á heimsmælikvarða. Svo einfalt er það. TAKK 🎹

Myndir frá hátíðinni eru væntanlegar á næstu dögum. Skiljum við ykkur að sinni með þessum myndum af okkar besta listafólki ❤️

Við sjáumst að ári, en Hammondhátíð 2027 fer fram 22.-25. apríl 👋

27/04/2026

„Þetta var algjörlega upp á ellefu eins og maðurinn sagði, áhorfendur voru stórkostlegir, veðrið frábært og öll umgjörðin eins og best verður á kosið.“

Halldóra Dröfn, gjaldkeri Hammondhátíðar, var á línunni í morgun og ræddi við Huldu Geirs um hátíðina í ár auk annarra m...
26/04/2026

Halldóra Dröfn, gjaldkeri Hammondhátíðar, var á línunni í morgun og ræddi við Huldu Geirs um hátíðina í ár auk annarra málefna tengdum Djúpavogi í skemmtilegu samtali.

Viðtalið hefst á mínútu 31:30 - leggið við hlustir 🙂

Hulda var fyrst á fætur á Rás 2 í morgun, lék ljúfa tóna og sló á þráðinn austur á Djúpavog þar sem Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir var á línunni og sagði fréttir af þeim slóðum. Gestur þáttarins að þessu sinni var svo Sigurbjörg J. Helgadóttir sem sagði frá rúmlega...

26/04/2026

Gærkvöldið var algjörlega framúrskarandi þar sem Sniglabandið, Kristján I og leynigesturinn Ríkey sáu um að það var varl...
26/04/2026

Gærkvöldið var algjörlega framúrskarandi þar sem Sniglabandið, Kristján I og leynigesturinn Ríkey sáu um að það var varla þurr þráður á nokkrum gesti að tónleikum loknum. Þar var það staðfest að við erum öll Britney og Neisti. Þvílík dásemdarsnilld!

Og þá er hann enn runninn upp, fjórði í Hammond og lokatónleikarnir í Djúpavogskirkju framundan kl. 14:00 þar sem bræðurnir Jón og Friðrik munu koma fram ásamt okkar eigin Tomma Jóns og Ómari Guðjóns.

Við seljum miða á hammondhatid.is og við dyrnar.

Munið að sem fyrr er frítt inn fyrir börn í fylgd með miðaeigendum 🙂

Address

Varða 2
Djúpivogur
765

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hammondhátíð Djúpavogs posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Hammondhátíð Djúpavogs:

Share