09/04/2026
Tryggið ykkur miða!
FORSALA Á HAUSTTÓNLEIKANA ER HAFIN 🥳
Okkar dyggustu aðdáendum býðst venju samkvæmt að kaupa miða í forsölu og tryggja sér þannig bestu sætin 🥰 Hér eru hlekkir:
Harpa. Reykjavík 24. október
https://checkout.tix.is/is/harpa/specialoffer/qv7h3oh5fglny
Hof. Akureyri 31. október
https://checkout.tix.is/is/mak/specialoffer/npt2zyieakszq
Frystihúsið. Breiðdalsvík 10. október.
https://checkout.tix.is/is/specialoffer/pm2ux4nz5pvgm/
Eins og fullkomið farartæki brunar sveitin áfram á vegum tónlistarinnar og sér ekki fyrir endann á ævintýrinu endalausa. Þetta ár bætist við nýr landshluti með tónleikum í Frystihúsinu á Breiðdalsvík.
Á síðasta ári sendi hljómsveitin frá sér hljómplötuna Í raunheimum sem innihélt meðal annars lag ársins. Á tónleikunum mun Nýdönsk leika sín þekktustu lög auk þess sem nýjasta efnið slæðist með.
Almenn miðasala hefst 10. apríl kl. 10.