Bertha Kvaran - ART

Bertha Kvaran - ART https://instagram.com/bertha.kvaran.art Myndir af málverkum og fl. af Instagram

03/05/2026

Yfir kaffibollanum í morgun var ég að skoða gömul Reel hjá mér á Instagram og fá í þessu sem er frá því sl sumar að öll málverkin eru seld nema eitt.

Nánari upplýsingar um verkið er að finna á heimasíðunni https://berthakvaranart.com

Rjúpur (Grouse) SELDGrouse flock together in the Icelandic landscape,flocking close, changing colors with the seasons, d...
26/04/2026

Rjúpur (Grouse) SELD

Grouse flock together in the Icelandic landscape,
flocking close, changing colors with the seasons, disappearing into the moss and stone—nature’s camouflage at its finest. 🪶🤍🤎

Acrylic on canvas, 40x100cm

Ný málverk með abstrakt bakgrunn sem geta hangið hlið við hlið eða verið sjálfstæðar einingar.Stærra verkið er 80x100cm ...
20/04/2026

Ný málverk með abstrakt bakgrunn sem geta hangið hlið við hlið eða verið sjálfstæðar einingar.
Stærra verkið er 80x100cm og það minna er 80x 65cm

Seyðisfjörður Lítil sérpöntun fyrir ungan mann sem heimsótti Ísland með konunni sinni og varð ástfanginn af staðnum.Hún ...
24/03/2026

Seyðisfjörður

Lítil sérpöntun fyrir ungan mann sem heimsótti Ísland með konunni sinni og varð ástfanginn af staðnum.

Hún pantaði þetta til að gefa honum í afmælisgjöf og bað um þessa fjallasýn en með kirkjuna og einhver nálæg hús speglast í vatninu.

Til að láta það ganga upp þurfti ég að breyta veruleikanum aðeins og færa einhverjar götur og sjónarhorn.

Alltaf smá stress þegar senda þarf málverk á milli landa, en gefandi þegar þau komast til skila og viðtakandinn er ánægður. Þessi mynd tafðist um einhverja daga, fór frá Tenerife til Madrid, svo til Leipzig í Þýskalandi, þaðan til Cincinnati US og að lokum til Virginia þar sem hún var afhent akkúrat a afmælisdeginum.

Olía á striga, 30x40cm

SpóarOlía á striga 30x40cm
28/02/2026

Spóar

Olía á striga 30x40cm

SiskoLítil olíumynd á lín strigaspjald 20x20cmFékk að mála þennan sæta krúttmund til að koma mér í gang að mála eftir st...
23/01/2026

Sisko
Lítil olíumynd á lín strigaspjald 20x20cm

Fékk að mála þennan sæta krúttmund til að koma mér í gang að mála eftir stutt hlé.

Hvítur hestur - PálínaPöntun gerð fyrir íslenska konu, Pálínu, sem hefur flutt til Tenerife og bað um hvítan hest á strö...
18/12/2025

Hvítur hestur - Pálína
Pöntun gerð fyrir íslenska konu, Pálínu, sem hefur flutt til Tenerife og bað um hvítan hest á ströndinni á Tenerife.

Það er sérstök saga á bak við beiðnina;

Fyrir mörgum árum var verslun í miðbæ Reykjavíkur sem seldi plaköt. Pálína gekk daglega með unga 2. ára dóttur sína í kerru fram hjá henni og stoppaði við gluggann til að njóta stórs plakats af fallegum hvítum hesti sem hljóp stoltur í forgrunni með nokkrum öðrum hestum í bakgrunni. Henni fannst þetta plakat frábært sem og að sýna það dóttur sinni. Dag einn, rétt fyrir jól, fer faðirinn með dótturina út og gengur fram hjá búðinni, þá verður dóttirin spennt og hrópar „stopp, hestinn, mömmu“ og bendir í ákefð. Þessi jól fékk Pálína plakatið í jólagjöf.

Áratugum síðar og fjórum börnum til viðbótar kom bróðir Pálínu í heimsókn og plakatið barst til tals. Eftir smá umræður segir hann: „Pálína, þú ert auðvitað hvíti hesturinn sem veður uppí vindinn, þú hefur aldrei látið neitt stoppa þig. Hinir þrír hestarnir erum við systkini þín." Pálínu þótti vænt um þetta en hefur nú gefið plakatið. Nú lifir hún þægilegu lífi á Tenerife og hvíti hesturinn hleypur nú á ströndinni í sólsetri á Tenerife í olíumálverki á veggnum hennar.

Merkingin er sú að dóttir hennar í sögunni fékk krabbamein sem fullorðin kona og lést aðeins 51 árs gömul.
Pálína, sem bloggar daglega um líf sitt á Tenerife, skrifar einnig margt fróðlegt um lífið almennt. Sem manneskja sem hefur iðkað zen-tækni táknar uglan hið andlega, visku, þroska og leiðsögn hennar í gegnum lífið.

Ég studdist við ljósmynd sem Pálína tók af svölunum hjá sér af sólsetrinu sem hún gerir nánast alla daga og bætti svo við hestinum á ströndinni.

Olía á striga, 65x81 cm.

Jæja þá er þessu formlegra lokið þó við eigum eftir morgunmat og spjall í fyrramálið áður en okkur verður skutlað á flug...
09/11/2025

Jæja þá er þessu formlegra lokið þó við eigum eftir morgunmat og spjall í fyrramálið áður en okkur verður skutlað á flugvöllinn í Almería sem er nú hálfgerður útnára flugvöllur.

Dagurinn var frábær.
Fyrir sólaripprás skrifaði ein í WhatsApp grúbbuna okkar að hún ætlaði í göngu ef einhverjir væru vakandi og 10 mínútum seinna örkuðum við fimm hressar kerlingar frá fertugu til sjötugs af stað út í eyðimörkina hér í kring í tæplega 4km kraftgöngu.
Birtan á fjöllunum var mögnuð þegar sólin kom upp.

Við héldum áfram að vinna í því sem við byrjuðum á í gær sem voru myndir að eigin vali.

Upp úr kl fjögur gengum við frá öllu saman og tókum til það helsta sem við höfðum gert og lært og Jill fór yfir og krítiseraði á uppbyggilegan hátt.

Við fengum geggjaðan kvöldmat eins og alltaf frá frábærum kokki og staffi og Jill kom okkur á óvart og gaf okkur prentverk eftir sig sem mun verða vandlega rammað inn og varðveitt þegar heim er komið.

Í dag er ferðadagurinn sem kallar fram angurværar minningar um yndislega menn sem ég var svo heppin að eiga fyrir pabba, en eru nú báðir eru farnir yfir móðuna en ég tel mig eiga að þakka það að hafa látið verða af því að láta drauma mína rætast og fylgja hjartanu eftir og njóta lífsins.

Ég ákvað að draga fram olíulitina hér og mála með þeim þó það verði smá áskorun að ferðast með verkin heim, og líka að nota fyrirmyndir sem ég tók á hestabúgarðinum hér um daginn frekar en margar af þeim flottu myndum sem ég fékk hér fyrir þessa ferð en hef m.anotað sem æfingar og mun klárlega nýta í nánustu framtíð.

Býsna góður dagur í dag þar sem við fórum á hestabúgarð í nágrenninu og fengum tilsögn í uppbyggingu hestsins og hvar ma...
07/11/2025

Býsna góður dagur í dag þar sem við fórum á hestabúgarð í nágrenninu og fengum tilsögn í uppbyggingu hestsins og hvar margir listamenn gera mistök með hlutföll og fl og gerðum margar 20sek æfingar að teikna hestana í kringum okkur sem voru jú á hreyfingu og ekkert að pósa fyrir okkur.
Mér tókst rétt svo að gera yfirlínu á fyrstu æfingunni en heilan hest á þeirri síðustu. Virkilega góðar æfingar
Næst fengum við aðeins lengri tíma og notuðum alls kyns teikni græjur sem ég hef aldrei notað sem var algjört æði.
Við komum heim á finkuna í hádegismat og fórum að gera alls kyns æfingar með málningu, tóna og slíkt og enduðum á að mála banana, sem reyndist erfiðara en okkur grunaði 😆🍌

Í gær var langur dagur, morgunmatur kl 7 og keyrt af stað kl 8 til Granada að skoða og teikna/mála Alhambra eða rauða vi...
07/11/2025

Í gær var langur dagur, morgunmatur kl 7 og keyrt af stað kl 8 til Granada að skoða og teikna/mála Alhambra eða rauða virkið, sem er höll og virki sem márískir furstar Granada á Suður-Spáni (Al-Andalus) reistu á 14. öld. Höllin er eitt frægasta dæmið um íslamska byggingarlist á Spáni. Innan Alhambra lét Karl 5. reisa höll sína árið 1527.

Við stoppuðum á leiðinni í Tabernas eyðimörkinni sem hefur orðið vinsæl til að taka upp kvikmyndir, ekki síst spagettí vestra.

Í Granada stilltum við upp og gátum skyssað eða málað á fallegu torgi með útsýni efir Alhambra með tónlist sígauna í bakgrunni, en þeir eru þar að skemmta túristum og ná sér í aur.

Skrefin urðu hátt í 12 þúsund á þessu brölti, þá aðallega að labba í gegnum Alhambra.

Ég vissi auðvitað ekkert um þetta allt en aðrir í hópnum voru með allt á hreinu en það var mjög fróðlegt að labba þarna um og sjá merki sögunnar hvert sem lítið var.

Sólin settist á leiðinni heim og þreyttur en ánægður hópur kom í kvöldmat kl 20:30

Í dag förum við á hestabúgarð þar sem við munum læra um byggingu hesta og skyssa þá ‘live’. Það verður eitthvað 😄 en í gær gerði ég mína fyrstu ‘plein air’ skyssu á torginu í Alhambra. Þær verða örugglega fleiri því þetta var virkilega skemmtilegt og ég sá að þetta er vel hægt an þess að eiga einhverjar spes græjur.

Frábær dagur að kveldi kominn.Fórum í þjóðgarð þar sem við vorum frædd um alls kyns náttúrufyrirbæri eins og eyðimörk, s...
05/11/2025

Frábær dagur að kveldi kominn.
Fórum í þjóðgarð þar sem við vorum frædd um alls kyns náttúrufyrirbæri eins og eyðimörk, salt tjarnir, gosmynjar og fl og sáum bleika flamingófugla spóka sig.
Svo var haldið á strönd i þjóðgarðinum þar sem stillt var upp í sýnikennslu og hægt var að skella sér i sjóinn. Ég óð eins hátt og buxurnar komust ásamt 2 öðrum, hinir létu það vera.
Kýldum vömbina af dýrindis réttum sem voru eldaðir fyrir okkur í San José og eftir að komið var aftur á finkuna beið blessuð taskan mín og við skelltum okkur í skyssur og meiri kennslu.
Ég lærði að teikna ‘blindandi’ og fannst það æði og ætla að mála eitthvað sniðugt úr því sem varð til við þær tilraunir 🥰
Á morgun verður farið af stað upp úr sólarupprás til Granada með skyssubækur, pensla og túpur og deginum að mestu eytt þar.
Í myndunum er fyrsta skyssan sem við fengum skammtaðan tíma til að skyssa eftir. Ég notaðist við ljósmynd frá Guðbjörg Albertsdóttir

Þeir sem þekkja mig vita að ég teikna ekki, hef ekki nennt því og fundist það hundleiðinlegt.
Ég vissi að þetta námskeið gengur að mestu út á grunnvinnu, m.a. að teikna, sem ég hef hingað til leyft mér að sleppa, en fann að ég þyrfti að vinna í að ná tökum á til að þróast áfram.
Það er ótrúlegt hvað það gerir mikið að læra og vinna undir handleiðslu góðs kennara frekar en að rembast við það einn heim í stofu þar sem svo auðvelt er að sleppa því sem manni leiðist að gera.

Address

Borgarnes

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Bertha Kvaran - ART posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Bertha Kvaran - ART:

Share

Category