Listasafn Samúels

Listasafn Samúels Félag um listasafn Samúels var stofnað 1998. Tilgangur félagsins er að stuðla að endurreisn listaverka og bygginga Samúels Jónssonar í Selárdal.

Tilgangur félagsins er að stuðla að endurreisn listaverka og bygginga Samúels Jónssonar í Selárdal við Arnarfjörð. Söfnunarreikningur: 512-26-4403, kt. 440398-2949.

Frá og með sunnudeginum 30. ágúst er Listasafn Samúels lokað og Safn Gísla á Uppsölum - Museum about Gísli from Uppsalir...
29/08/2026

Frá og með sunnudeginum 30. ágúst er Listasafn Samúels lokað og Safn Gísla á Uppsölum - Museum about Gísli from Uppsalir in Selárdal sömuleiðis. Við þökkum kærlega fyrir fallegar og dýrmætar stundir í sumar :)

Í þættinum Með okkar augum var sýnt frá opnun sýningar Listvinnzlunnar. Fallegt innslag sem gert var í lok maí. Umfjöllu...
26/08/2026

Í þættinum Með okkar augum var sýnt frá opnun sýningar Listvinnzlunnar. Fallegt innslag sem gert var í lok maí. Umfjöllunin byrjar eftir 1:15 mín.

Í þessum þætti tökum við viðtal við Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóra. Við fáum að smakka á því besta af borðum kokkalandsliðs Íslands og spókum okkur í einum elsta kirkjugarði landsins. Við sýnum frá opnun sýningar fatlaðra listamanna á Samúelssafni í Sel....

Sýningum sumarsins lýkur á næstu dögum. Sýningu Listvinnzlunnar á útilistaverkum lýkur á fimmtudaginn, ljósmyndasýningu ...
25/08/2026

Sýningum sumarsins lýkur á næstu dögum. Sýningu Listvinnzlunnar á útilistaverkum lýkur á fimmtudaginn, ljósmyndasýningu Jónu Þorvaldsdóttur í kirkjunni lýkur á föstudaginn og sýningu Húberts Nóa Jóhannessonar á laugardaginn. Á sunnudaginn lokum við safninu og þá verður ekki lengur hægt að fá miða á Safn Gísla á Uppsölum - Museum about Gísli from Uppsalir in Selárdal fyrr en næsta sumar. Takk fyrir sumarið! :)

Sýningu Jónu Þorvaldsdóttur lýkur í vikunni. Síðasti sýningardagur er föstudagurinn 28. ágúst. Sumardagskránni lýkur svo...
25/08/2026

Sýningu Jónu Þorvaldsdóttur lýkur í vikunni. Síðasti sýningardagur er föstudagurinn 28. ágúst. Sumardagskránni lýkur svo um helgina og veitingasalan aðeins út laugardaginn.

Sýningunni Ómur sem Listvinnzlan hefur verið með í safninu í sumar í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík lýkur eftir vi...
21/08/2026

Sýningunni Ómur sem Listvinnzlan hefur verið með í safninu í sumar í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík lýkur eftir viku. Síðasti sýningardagur er fimmtudagurinn 27. ágúst. Því eru síðustu forvöð að skoða þessa fallegu og ævintýralegu sýningu. Velkomin í Selárdal!

Bæjarins besta fjallar um Selárdalshátíð. Hátíðin hófst með opnun Safns Gísla á Uppsölum á föstudeginum, en á laugardagi...
18/08/2026

Bæjarins besta fjallar um Selárdalshátíð. Hátíðin hófst með opnun Safns Gísla á Uppsölum á föstudeginum, en á laugardaginn var dagskrá í Samúelssafni.

Selárdalshátíð var haldin um síðustu helgi í góðu veðri og var hún vel sótt. Hátíðin hófst með opnun Safns Gísla á Uppsölum á föstudeginum, en á laugardaginn var dagskrá í Samúelssafni. Sólveig Ólafsdóttir leiddi sögugöngu í Verdali. Listasmiðjur í framköllun sóla...

Staðarhaldarar í safninu fram til 23. ágúst eru Huld Ingimarsdóttir, Helga Þórólfsdóttir og Birna Halldórsdóttir.
16/08/2026

Staðarhaldarar í safninu fram til 23. ágúst eru Huld Ingimarsdóttir, Helga Þórólfsdóttir og Birna Halldórsdóttir.

Mögnuð stund í safninu. Á annaðhundrað manns varð vitni að sólmyrkvanum í fallegu veðri. Ský birgði sólina, en hún gægði...
12/08/2026

Mögnuð stund í safninu. Á annaðhundrað manns varð vitni að sólmyrkvanum í fallegu veðri. Ský birgði sólina, en hún gægðist í gegn á besta tíma :)

Sólmyrkvadagskráin í Listasafni Samúels þann 12. ágúst hófst  kl. 12 með sólmyrkvasmiðju í umsjón Sirru Sigrúnar Sigurða...
11/08/2026

Sólmyrkvadagskráin í Listasafni Samúels þann 12. ágúst hófst kl. 12 með sólmyrkvasmiðju í umsjón Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur. Teknar voru myndir með aðferð camera obscura og þær framkallaðar.
Þá var boðið upp á leiðsögn um söfn Samúels og Gísla í umsjón Kára G. Schram, Sólveigar Ólafsdóttur og Ólafs J. Engilbertssonar.
El Lobo sá um sólmyrkva DJ-sett í kirkju Samúels kl. 16 í aðdraganda sólmyrkvans. Sólmyrkvagleraugum var svo úthlutað á staðnum og fólk fylgdist spennt með hvort sólin sæist gegnum skýin. Það sást til sólar í örlitla magnaða stund.
Gestir fengu kræsingar í veislutjaldi á staðnum eftir sólmyrkvann kl. 19. Upp úr kl. 21 var brenna í fjörunni og að því búnu sá El Lobo um DJ sett í kirkjunni.

Address

Bíldudalur
465

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 18:00
Saturday 09:00 - 18:00
Sunday 09:00 - 18:00

Telephone

+3548221931

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Listasafn Samúels posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Listasafn Samúels:

Share

Category