Safnasafnið

Safnasafnið Safnasafnið - The Icelandic Folk and Outsider Art Museum
www.safnasafnid.is

Safnasafnið er opið alla daga frá kl. 10:00 - 17:00
17. maí - 04. október 2026

Safnasafnið var stofnað 1995 af Magnhildi Sigurðardóttur og Níelsi Hafstein, Þinghúsinu á Svalbarðsströnd. Með þeim í stjórn eru myndlistarmennirnir Harpa Björnsdóttir, Unnar Örn J. Auðarson, Gunnhildur Hauksdóttir og Starkaður Sigurðarson, búsett í Reykjavík, og Þórgunnur Þórsdóttir sem býr á Akureyri. Safnasafnið annast fjölbreytt lista- og menningarstarf sem hefur vakið drjúga athygli heima og

erlendis. Um 140.000 frumdrög og fullgerð listverk eru í safnkosti, einnig tugþúsundir gripa sem settir eru upp í sérdeildum og á sýningum til að skerpa á myndhugsun eða ögra gestum. Safnasafnið er í stöðugri endurskoðun og sjálfsgagnrýni, hlutverk þess verður æ víðfeðmara og sú hugsun er ríkjandi að það eigi að höfða til barnsins í manninum jafnt sem barnanna sjálfra, efla í leik og starfi þau gildi sem ráða við sköpun listar, hreina sýn, sjálfsprottna framsetningu, móttækileik, undrun, kímni, saklausa frásögn og tjáningu. Safnasafnið vill opna augu fólks fyrir fegurð mismunandi hluta og minninga, samhljómi persónulegrar iðju og fjöldaframleiðslu en ekki síst þeirri miklu sjálfsábyrgð sem safnið axlar með varðveislu merkra menningarverðmæta - og rís undir þeim þunga. Safnasafnið stenst alþjóðlegar kröfur um fagmennsku og ábyrgð, það nærir hugsjónir sínar og kynnir frumlegar hugmyndir. Það er gagnvirkt, flott og óútreiknanlegt.

Á www.safnasafnid.is er hægt að fræðast um safnið og sérsöfnin í því, skoða sýningarskrár, lesa um núverandi og fyrri sýningar, finna fróðleik úr dagblöðum og tímaritum, panta dvöl í lista- og fræðimannsíbúðinni, fara yfir skipulagsskrá, stefnumótun, þjónustu, persónuverndarstefnu og samfélagslega ábyrgð, kynnast hringferli myndlistar (16 þátta greiningarkerfi) og panta skjöl með ársreikningum og ársskýrslum síðast liðins árs á [email protected]

Stjórn safnsins þakkar fylgjendum sínum á Facebook og vonar að sem flestir sjái sér fært að heimsækja það, skoða sýningarnar, fræðast um margslungna myndlist, skoða bækur, njóta útsýnis og heillandi umhverfis, garðs og lækjar

10/09/2026
Í Blómastofu safnsins er sýningin 'Liturinn blár – Fuglar og fiðrildi eru aldrei döpur' þar sem listakonan Auður Lóa Guð...
08/09/2026

Í Blómastofu safnsins er sýningin 'Liturinn blár – Fuglar og fiðrildi eru aldrei döpur' þar sem listakonan Auður Lóa Guðnadóttir leikur sér á landamærum hins hlutlæga og huglæga, skúlptúrs og teikningar, listar og veruleika. Auður vinnur markvisst með hversdagsfyrirbæri, fígúratíft myndmál sem hún sækir í forna jafnt sem nýliðna sögu. Auður vinnur í skúlptúr, og notar nær eingöngu pappamassa við gerð verka sinna.

Safnasafnið efnir á hverju ári til samstarfs við Valsárskóla, grunnskóla Svalbarðsstrandarhrepps, en samstarfið var orða...
02/09/2026

Safnasafnið efnir á hverju ári til samstarfs við Valsárskóla, grunnskóla Svalbarðsstrandarhrepps, en samstarfið var orðað á fyrstu opnun safnsins vorið 1998.

Á sýningunni Ísland úr fjarska hjá okkur í ár gefst gestum tækifæri til að velta fyrir sér ólíkri sýn á landið og kynnast um leið frumlegum hugmyndum nemenda Valsárskóla, sem sköpuðu sín eigin ímynduðu fjöll innblásin af dularfullum málverkum sýningarinnar.

Hér, og í bókhlöðu Safnasafnsins, má sjá heimildarmynd gerða í tilefni 30 ára afmælis Safnasafnsins. Rætt er við frumher...
01/09/2026

Hér, og í bókhlöðu Safnasafnsins, má sjá heimildarmynd gerða í tilefni 30 ára afmælis Safnasafnsins. Rætt er við frumherjana Níels Hafstein, Magnhildi Sigurðardóttur um hugmyndir þeirra og hugsjónir varðandi safnið. Einnig rætt við Bryndísi Símonardóttur um hvítsaum.

Umsjón: Stefán Jón Hafstein og Óskar Páll Sveinsson

Það er sérstakt ánægjuefni að kynna nýja, 45 mínútna heimildarmynd ...

Skreytiþörf má hiklaust telja til myndtjáningar, líkaminn eða fatnaðurinn utan á honum er ígildi málningar á striga eða ...
31/08/2026

Skreytiþörf má hiklaust telja til myndtjáningar, líkaminn eða fatnaðurinn utan á honum er ígildi málningar á striga eða þrívíðra eiginda skúlptúrsins, með sálrænum tónum sem gefa lífinu lit og sjarma. Ljósmynd af gjörningi listamanns er yfirleitt heimild en ljósmynd af einstaklingi sem kemur fram í gervi er lýsing á lífsstíl og sjálfstrausti og það hvernig útkoman kemur öðrum fyrir sjónir hefur tilfinningalegt gildi fyrir viðkomandi.

Í ár er í norðusölum sýningin 'Hugrekki persónulegrar tjáningar' sem beinir athygli að fólki sem tjáir sig á persónulegan máta með áherslu á það sem gerir það sérstakt, hún útvíkkar skilgreiningar og hafnar fyrirfram mótuðum smekk eða hefð í samfélagi sem aðlagast treglega því sjaldgæfa og ómótstæðilega í fari fólks. Listamenn nota þetta tjáningarform ef það rímar við hugmynd sem þarf að útfæra í rétt efni. Það sem skilur á milli í framsetningu eru úthugsaðar leiðir þeirra sem miðast við einstök verk og upphafning hinna sem hafa ekki faglegan bakgrunn. Með því að stefna þeim saman fæst tækifæri til þess að skoða ólíkar áherslur og mismunandi nálgun.

Í ár eru í sýningarskáp Brúðustofunnar valin verk úr safneign eftir listafólk sem býr og starfar á Sólheimum í Grímsnesi...
27/08/2026

Í ár eru í sýningarskáp Brúðustofunnar valin verk úr safneign eftir listafólk sem býr og starfar á Sólheimum í Grímsnesi, sjálfbæru samfélagi þar sem listsköpun er hluti af daglegu lífi. Verkin bera með sér frjálsa og skapandi úrvinnslu, þar sem efni, mynstur og litir mótast á persónulegan hátt.

Litir og þræðir //
Erla Björk Sigmundardóttir, Guðrún Lára Aradóttir, Helga Dómhildur Alfreðsdóttir, Kristján Ellert Arason, Pálína Erlendsdóttir

26/08/2026

Safnasafnið lokar fyrr í dag, miðvikudaginn 26. ágúst, vegna ófyrirséðra aðstæðna. Safnið lokar kl. 15:30 í stað kl. 17:00.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir skilninginn.

24/08/2026

Á hverju ári hlökkum við til að hitta vini og kollega víðs vegar að úr Evrópu á árlegri ráðstefnu European Outsider Art Association. Í ár lá leiðin til Hengelo í Hollandi, þar sem okkur gafst tækifæri til að miðla hugmyndum og reynslu og kynnast því fjölbreytta starfi sem unnið er á sviði alþýðu- og jaðarlistar víða um heim.

Hér má sjá stutt myndband úr ferðinni, en við heimsóttum meðal annars Art Brut tvíæringinn og KamaK leikhúsið í Hengelo, Atelier23 í Arnhem, Herenplaats í Rotterdam og Museum of the Mind í Haarlem.

Sérstaklega ánægjulegt var að Gunnhildur Hauksdóttir, myndlistarmaður og stjórnarmaður Safnasafnsins, tók þátt í dagskránni með 'The Name Choir', nýju kórverki sem hún vann í samstarfi við meðlimi KamaK leikhússins í Hengelo.

Við þökkum Safnaráði fyrir stuðninginn sem gerði okkur kleift að taka þátt í ráðstefnunni.

Myndband: Anouar Brissel

Í Bókhlöðu Safnasafnsins leynist ýmislegt. Þar má finna ógrynni bóka og fræðirita um myndlist, hönnun, arkitektúr, textí...
21/08/2026

Í Bókhlöðu Safnasafnsins leynist ýmislegt. Þar má finna ógrynni bóka og fræðirita um myndlist, hönnun, arkitektúr, textíl og handverk, auk heimilda um safneign, sýningarhald og rannsóknir Safnasafnsins á alþýðulist og alþýðulistamönnum.

Bókhlaðan er þó ekki aðeins bókasafn heldur einnig sýningarrými. Í sumar má þar sjá verk eftir Sæmund Valdimarsson (1918–2006) og Hálfdan Ármann Björnsson (1933–2009), auk sérstakrar sýningar á brjóstmyndum eftir Aðalheiði S. Eysteinsdóttur.

Þar má finna tvö af sérsöfnum Safnasafnsins - bókverkasafn safnsins og safn 230 ilmvatnsglasa, sem spannar fjölbreytta hönnun frá þekktum tískuhúsum og listamönnum.

Í ár er til sýnis heimildarmynd sem gerð var í tilefni 30 ára afmælis Safnasafnsins. Þar er litið til afmælissýningarinnar 2025 og rætt við stofnendur safnsins, Níels Hafstein og Magnhildi Sigurðardóttur. Einnig er rætt við Bryndísi Símonardóttur um hvítsaum.

Það er því margt að skoða, og ekki síður að fletta í, í Bókhlöðunni.

Ljósmyndir: Aldís Dagmar Erlingsdóttir Svarkur

Address

Svalbarðsströnd
Akureyri
601.HNIT65°44'56.84"-18°04'31.68"

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Safnasafnið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category