10. - 16. nóvember 2014 ætlar Ungmennahúsið í Rósenborg, í samstarfi við félagsmiðstöðvarnar á Akureyri og Félagsmiðstöðina Ungmenningarhúsið Tún á Húsavík að standa fyrir listsköpunarhátíðinni Hömlulaus 2014. Hátíðin er ætluð ungu fólki á aldrinum 13 – 30 ára og er aðalmarkmið hátíðarinnar að skapa hvetjandi umhverfi fyrir ungt fólk á Eyþingssvæðinu til listsköpunar.
Þessu verður náð með því a
ð bjóða upp á aðstöðu, efnivið og leiðsögn í formi vinnusmiðja í leiklist, myndlist, graffiti, tónlist, ljósmyndun og tjáningu. Smiðjuvinnan hefst mánudaginn 10. nóvember og er starfrækt til og með föstudeginum 14. nóvember. Laugardaginn 15. nær listsköpunarhátíðin Hömlulaus 2014 hápunkti með sýningu á afurðum vinnunnar. Smiðjurnar verða staðsettar bæði í Rósenborg á Akureyri og í Félagsmiðstöðinni Tún á Húsavík en lokasýningin fer fram á Akureyri þar sem allir þátttökuhópar hittast og sýna afrakstur vinnu sinnar. Listasmiðjur á Akureyri
Tónlistarsmiðja
10. nóvember kl. 19 - 22
Leiðbeinandi: Eyþór Ingi Gunnlaugsson tónlistarmaður
Graffitismiðja
10. nóvember kl. 19 - 22
Leiðbeinandi: James Earl myndlistarmaður
Tjáningarsmiðja
11. nóvember kl. 19 - 22
Leiðbeinandi: Þuríður Anna Sigurðardóttir listakona
Tónlistarsmiðja
11. - 13. nóvember kl. 18 - 22
Leiðbeinandi: Eyþór Ingi Gunnlaugsson tónlistarmaður
Leiklistarsmiðja
12. - 14. nóvember kl. 18 - 22
Leiðbeinandi: Birna Pétursdóttir leikkona
Ljósmyndasmiðja
11. - 14. nóvember kl. 18 - 22
Leiðbeinandi: Klængur Gunnarsson myndlistarmaður
Myndlistarsmiðja
14. nóvember kl. 19 - 22
Leiðbeinandi: Ívar Freyr Kárason listamaður
Sýning á afrakstri listasmiðjuvinnkunnar á Akureyri verður laugardaginn 15. nóvember í Rósenborg frá kl. 14 - 16
Listasmiðjur á Húsavík
Myndasögusmiðja
11. nóvember kl. 19 - 22
Leiðbeinandi: Sam Rees myndlistarmaður
Myndlistasmiðja
12. nóvember kl. 19 - 22
Leiðbeinandi: Marina Rees myndlistarkona
Leiklistarsmiðja
13. nóvember kl. 19 - 22
Leiðbeinandi: Ásta Magnúsdóttir leikllistakennari
Sýning á afrakstri vlistasmiðjuvikunnar á Húsavík verður föstudaginn 14. nóvember á Húsavík, en sameinast svo sýningunni á Akureyri laugardaginn 15. nóvember í Rósenborg frá kl. 14 - 16