Klassík á eyrinni

Klassík á eyrinni Kammertónlistarhátíð á Akureyri | 17. -18. ágúst 2024

Listrænir stjórnendur eru Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir og Sólveig Steinþórsdóttir

Kammertónlistarhátíð á Akureyri | 17. -18. ágúst 2024

Klassík á eyrinni er einstök kammertónlistarhatíð sem fer fram í fyrsta sinn sumarið 2024 í Hofi á Akureyri, Glerárkirkju og á Hrísey. Listrænir stjórnendur hátiðarinnar eru Sólveig Steinþórsdóttir fiðluleikari og Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir sellóleikari og aðrir flytjendur eru Rannveig Marta Sarc, Anna Elísabet Sigurðardóttir og Þóra Kristín Gunnarsdóttir.

Klassíska kammertónlistarhátíð Norðurlandsins! Miðasala er í fullum gangi á www.akureyrichambermusicfestival.is
07/08/2024

Klassíska kammertónlistarhátíð Norðurlandsins! Miðasala er í fullum gangi á www.akureyrichambermusicfestival.is

Klassík á eyrinni is an annual chamber music festival taking place in Akureyri, Iceland.

Miðasala er hafin á alla þrenna tónleika ! Þrír æsispennandi kammertónleikar á Akureyri og Hrísey. Tryggið ykkur miða á ...
06/08/2024

Miðasala er hafin á alla þrenna tónleika ! Þrír æsispennandi kammertónleikar á Akureyri og Hrísey. Tryggið ykkur miða á www.akureyrichambermusicfestival.is 👉 linkur í bio

Hlökkum til sð sjá ykkur! 🎶🤩


g

Síðust en ekki síst er píanóleikari hátíðarinnar, Þóra Kristín Gunnarsdóttir. Þóra er Akureyringur af holdi og blóði en ...
06/08/2024

Síðust en ekki síst er píanóleikari hátíðarinnar, Þóra Kristín Gunnarsdóttir. Þóra er Akureyringur af holdi og blóði en hefur stundað nám í Reykjavík, Luzern og Zürich. Hún hefur komið fram víða á Íslandi og í Sviss, m.a. á Klassík í Vatnsmýrinni, Velkomin heim í Hörpu, á tónlistarhátíðinni Chesa Planta Musiktage og hjá Liedrezital Zürich. Þóru er margt til lista lagt og er útskrifaður tamningamaður frá Hólskóla auk þess að hafa lært að jóðla og leika á alpahorn!

Þóra kemur fram á tvennum tónleikum hjá

Tryggið ykkur miða á www.akureyrichambermusicfestival.is
g

Anna Elísabet er víóluleikari hátíðarinnar. Hún er mjög virk í íslensku tónlistarlífi, er meðlimur Píanókvartettsins Neg...
31/07/2024

Anna Elísabet er víóluleikari hátíðarinnar. Hún er mjög virk í íslensku tónlistarlífi, er meðlimur Píanókvartettsins Neglu, kammersveitarinnar Elju og hefur hlotið hrós fyrir “hugrekki, einlægni, og viðkvæmni” í spilamennsku. Á komandi starfsári mun Anna gegna starfi víóluleikara í Sinfóníuhljómsveit Suður-Jótlands. Anna er söngfugl mikill og tekur iðulega lagið með góðum ferðafélögum. Svo er hún mikil áhugakona um grauta af öllu tagi, en þá sér í lagi hafragrautinn!
🍚🤩

Anna kemur fram á öllum þrennum tónleikum Klassíkar á eyrinni í næsta mánuði!


Geirþrúður Anna er listrænn stjórnandi og sellóleikari .Geirþrúður hefur komið fram víða um heim, ýmist sem einleikari e...
28/07/2024

Geirþrúður Anna er listrænn stjórnandi og sellóleikari .
Geirþrúður hefur komið fram víða um heim, ýmist sem einleikari eða kammermúsíkspilari og fengið mikið lof fyrir sellóleik sinn, m.a. fyrir "afar músíkalskan flutning", "endalaus blæbrigði" og "dýpt og breidd" í túlkun. 🔥
Geirþrúði er margt til lista lagt, hún er afburða skákkona og góður kokkur en svo er hún líka einstaklega skemmtileg! 😎
Hægt verður að hlýða á músíkalskan og dramatískan sellóleik Geirþrúðar á öllum þrennum tónleikum hátíðarinnar í ágúst! 🎶



Rannveig Marta Sarc er einn fiðluleikaranna á Klassík á eyrinni. Rannveig er margverðlaunuð tónlistarkona. Hún var nefnd...
24/07/2024

Rannveig Marta Sarc er einn fiðluleikaranna á Klassík á eyrinni. Rannveig er margverðlaunuð tónlistarkona. Hún var nefnd “Bjartasta vonin” á Íslensku tónlistarverðlaunum árið 2022 og hlaut tilnefningu til bestu plötu fyrir upptökur sínar á nýsömdum íslenskum dúóum fyrir fiðlu og víólu sama ár. Rannveig er vígaleg á brimbretti og er mikill kattavinur 😻

Þið getið heyrt listilegan leik Rannveigar á þrennum tónleikum Klassíkar á eyrinni í ágúst! Miðasala á https://www.akureyrichambermusicfestival.is/dagskra

Address

Akureyri

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Klassík á eyrinni posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category