A - Gjörningahátíð / Performance Festival

A - Gjörningahátíð / Performance Festival A! Gjörningahátíð / A! Performance Festival in Akureyri, Iceland Fjölbreyttir gjörningar myndlistarmanna og sviðslistafólks hafa verið framdir á A!.

Gjörningahátíð (English below) var haldin í fyrsta sinn 2015 og hefur verið árlegur viðburður síðan. Að hátíðinni standa Listasafnið á Akureyri, Leikfélag Akureyrar, Menningarfélag Akureyrar, Gilfélagið, Leiklistarhátíðin LÓKAL og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar. Meðal listamanna sem hafa komið fram eru: Magnús Pálsson, Anna Richardsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Snorri Ásmundsson, Þóra Sól

veig Bergsteinsdóttir, Marta Nordal, Freyja Reynisdóttir & Brák Jónsdóttir, Örn Ingi Gíslason, Choreography Rvk, Kriðpleir, Gjörningaklúbburinn, Rúrí, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Arna Valsdóttir, Suchan Kinosh*ta, Gabrielle Cerberville, Heiðdís Hólm, Hekla Björt Helgadóttir & Svefnleikhúsið, Katrine Faber, Magnús Logi Kristinsson, Voiceland – Gísli Grétarsson, Mareike Dobewall og Hymnodia.
///
A! Performance Festival is an annual event, first held 2015. Collaborators and co-producers are: Akureyri Art Museum, Akureyri Theater, Menningarfélag Akureyrar, Gilfélagið, LÓKAL-Performing Arts Reykjavík and Icelandic Arts Centre. Artists that have presented at A! include: Magnús Pálsson, Anna Richardsdóttir, Katrín Gunnarsdóttir, Snorri Ásmundsson, Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir, Marta Nordal, Freyja Reynisdóttir & Brák Jónsdóttir, Örn Ingi Gíslason, Choreography Rvk, Kriðpleir, Gjörningaklúbburinn, Rúrí, Ragnheiður Harpa Leifsdóttir, Arna Valsdóttir, Suchan Kinosh*ta, Gabrielle Cerberville, Heiðdís Hólm, Hekla Björt Helgadóttir & Svefnleikhúsið, Katrine Faber, Magnús Logi Kristinsson, Voiceland – Gísli Grétarsson, Mareike Dobewall og Hymnodia.

Hér má sjá myndir frá þriðja degi A! Gjörningahátíðar:Tjátiljur – Rangi Riddarinn,Drengurinn Fengurinn – Alltof metnaðar...
14/10/2025

Hér má sjá myndir frá þriðja degi A! Gjörningahátíðar:
Tjátiljur – Rangi Riddarinn,
Drengurinn Fengurinn – Alltof metnaðarfullt miðað við fjárhag,
Alysse Bowd – Bubblegum Breaths,
Hildur Elísa Jónsdóttir – Harmkvæði íspinna,
Fríða Katrín Bessadóttir – Skjöldur
og
Linde Rongen & Eydís Rose Vilmundardóttir – How Do We Break This Circle?

Gjörningasmiðja Arnar Alexanders ÁmundasonarAllt til enda Sunnudagur 12. október kl. 14ListasafniðÞátttakendur í gjörnin...
11/10/2025

Gjörningasmiðja Arnar Alexanders Ámundasonar
Allt til enda
Sunnudagur 12. október kl. 14
Listasafnið

Þátttakendur í gjörningasmiðju Arnar Alexanders Ámundasonar sem fram fór um helgina sýna afrakstur vinnunnar. Ungmenni á grunn- og framhaldsskólaaldri tóku þátt og skoðuðu sögu gjörningalistar og gerðu spennandi tilraunir með miðilinn. Lokahnykkurinn er sýning í sal 06 í Listasafninu sem sýnir ferli og afrakstri verkefnisins og verður opnuð á næstu dögum. Sýningin mun standa til 2. nóvember.

Örn kláraði MFA gráðu í Myndlist frá Listaháskólanum í Malmö og BFA gráðu frá sama skóla. Hann hlaut hin virtu Edstandska Stiftelsen verðlaunin í Svíþjóð 2013. Verk hans hafa verið sýnd víða, bæði á Íslandi og erlendis. Örn er einn af stofnendum listamannarekna sýningarrýmisins Open í Reykjavík og rak hið skammlífa Parent í Malmö í Svíþjóð.
-------
Participants in Arnar Alexander Ámundason's performance art workshop held over the weekend are showing the results of their work. Teenagers of primary and secondary school participated and explored the history of performance art, conducting exciting experiments with the medium. The culmination is an exhibition in Gallery 06 at Akureyri Art Museum, which showcases the process of the project will be opened in the coming days. The exhibition will run until November 2nd.

Örn completed an MFA in Fine Arts from Malmö University of Arts and a BFA from the same institution. He received the prestigious Edstandska Stiftelsen award in Sweden in 2013. His works have been exhibited both in Iceland and abroad. Örn is one of the founders of the artist-run exhibition space Open in Reykjavík and operated the short-lived Parent in Malmö, Sweden.

Í kvöld kl. 21.45 í MjólkurbúðinniTjátiljurRangi RiddarinnÓkeypis aðgangurSýningargestur sest niður og bíður eftir drykk...
11/10/2025

Í kvöld kl. 21.45 í Mjólkurbúðinni
Tjátiljur
Rangi Riddarinn
Ókeypis aðgangur

Sýningargestur sest niður og bíður eftir drykk á Ranga Riddaranum. Innan skamms heyrir hann óvænt hljóð og hlaupahéri sprettur sveittur að honum með aðeins hálfan drykk, því hinn helmingurinn sullaðist niður á leiðinni. Rangi Riddarinn er splúnkunýr bar þar sem allt er dálítið rangt og óvænt. Þær Ágústa Björnsdóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Tara Njála Ingvarsdóttir og Silfrún Una Guðlaugsdóttir taka á móti ykkur með stæl og stæla. Það er opið frá 21.45 og þar til Riddarinn slær í lás. Verið öll hjartanlega velkomin.
-------
The guest sits down and waits for their drink. In a while they hear a sound while a sweaty running hare runs up to them with half a drink, the other half was spilt on the way. The Wrong Knight is a brand-new bar where everything is just a bit wrong and surprising. You will be greated and treated by Ágústa Björnsdóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Tara Njála Ingvarsdóttir and Silfrún Una Guðlaugsdóttir. It is open from 21:45 until the clock strikes closed. You are all wholeheartedly welcome.

Í kvöld kl. 21.10 í ListasafninuDrengurinn FengurinnAllt of metnaðarfullt miðað við fjárhagAðgangur ókeypisFyrir þá sem ...
11/10/2025

Í kvöld kl. 21.10 í Listasafninu
Drengurinn Fengurinn
Allt of metnaðarfullt miðað við fjárhag
Aðgangur ókeypis

Fyrir þá sem ekki þekkja þá eru pedalar (einnig kallaðir effektar) lítil box sem tengjast gítar á leið í magnara. Þegar pedalarnir eru orðnir margir er oft æskilegt að festa þá á bretti: pedalabretti.
„Pedalabretti eru spegill sálarinnar. Rétt eins og að klæðaburður getur verið vísbending um hvaða manngerð fólk er (eða hvaða manngerð það vill vera) er hægt að kynna sér pedalabretti fólks. Hver sem er getur lesið í útlit, skipulag, fjölda af tökkum og fleira. Þeir sem þekkja til geta lesið enn meira í manngerð og drauma eigandans.

Brettið er heiðarleg og berskjaldandi sjálfsmynd. Það krefst langra raða misgáfulegra fjárhagslegra og listrænna ákvarðana að búa til veglegt bretti. Draumurinn um rokk, ról og ríkidæmi er veggur. Með árunum og sárunum brotnar gjarnan úr honum. Þá er oft upplagt að fylla í sprungunar með einum pedala í viðbót og þá verður allt gott".
-------
For those who don‘t know them pedals (also called effects) are small boxes that connect to a guitar and then to an amplifier. When there are several pedals they should preferably be attached to a pallet: a pedalpallet.

„Pedalpallets are a mirror for the soul. Just like the right clothes can implicate what type of person one is (or the person one wants to be) people‘s pedalpallets can be examined. Anyone can read into looks, organisation, number of buttons and more. Those who are familiar with pedals can read ever further into the character and dreams of the owner.

The pallet is an honest and vulnerable identity. To create a fine pallet requires a series of not very intelligent, financial and artistic desitions to be made. The dream about rock and roll and fortune is a wall. As the years go by it wears and tears. Then it can be a good idea to mend the cracks with yet another pedal to make everything ok.

Í kvöld kl. 20 í ListasafninuAlysse BowdBubblegum BreathsÓkeypis aðgangur „Ég fæst við þverfaglega skapandi starfssemi s...
11/10/2025

Í kvöld kl. 20 í Listasafninu
Alysse Bowd
Bubblegum Breaths
Ókeypis aðgangur

„Ég fæst við þverfaglega skapandi starfssemi sem felur í sér gerð hluta, teikningu og gjörningalistar með fókus á kvenlæga fullkomnunaráráttu, sjálfsrækt og goðsagnir tengdar móðurhlutverkinu. Ég nota myndlíkingar, ritúöl og hríðir til að kanna grunntengslin milli sjálfsins og heimilismenningar. Þetta er afl sem er bæði villt og tamið – sérstök blanda af varanleika, hverfulleika og einangrun einstaklingsins.

Nándin, gagnkvæmnin og einangrunin sem felst í móðurhlutverkinu eru kjarninn í mínum nýjustu verkum. Þar held ég áfram að kanna ólínulegar frásagnir sem skoða sérstöðu sambands móður og barns, dýrslegt innsæi tengdu meðgöngu og fæðingu, líkamsímynd og sjálfsmyndarkreppu móðurhlutverksins.

Bubblegum Breaths speglar aðferðir við sjálfssefun í of-örvuðu umhverfi á sama tíma og það snertir þemu eins og jafnvægi, kynbundnar væntingar, skynjun móðurhlutverksins, seiglu og nauðsyn húmors innan fáránleika daglegs lífs.”
-------
“I navigate an interdisciplinary creative practice of object making, drawing and performance art with a thematic focus on female perfectionism, self-care and Motherhood mythologies. I use metaphor, ritual and labor to explore fundamental relationships between the self and domestic culture. It is a dynamic that is at once both wild and tame(d), with its particular combination of permanence and impermanence and frequent alienation of the individual.

The intimacy, interdependence and isolation held within Motherhood are at the core of my most recent work. In this work, I continue exploring nonlinear narratives that examine the singularness of the mother - child dyad, the feral intuitiveness of the pregnant/postpartum experience, body dysmorphia and the identity crisis of Motherhood.

Bubblegum Breaths reflects on tactics of self-soothing in an overstimulated environment while resonating on themes of balance, gendered expectations, motherhood sensorium, resilience and the necessity of humor within the absurdity of the everyday.”

Í dag kl. 16.30 í ListasafninuHildur Elísa JónsdóttirHarmkvæði íspinna / Popsicle's LamentÓkeypis aðgangurFlytjandinn er...
11/10/2025

Í dag kl. 16.30 í Listasafninu
Hildur Elísa Jónsdóttir
Harmkvæði íspinna / Popsicle's Lament
Ókeypis aðgangur

Flytjandinn er klæddur glimrandi hvítum búningi, sem minnir um margt á jökul, og fer með harmkvæði fyrir íspinna sem bráðnar í höndum flytjandans. Á meðan hann horfir á íspinnann hverfa syngur flytjandinn frumsamið harmaljóð og syrgir hverfulleika lífsins. Í gegnum þessa einföldu en súrrealísku athöfn snertir verkið á fallvaltleika tilverunnar og missi, hvernig landslög leysast upp og ástvinir hverfa.

Það að halda fast, þrátt fyrir að vita hið óumflýjanlega, verður myndlíking fyrir sorg: blíð, tilgangslaus tilraun til að varðveita það sem ekki er hægt að geyma.
-------
One performer dressed in brilliant white costume that resembles a glacier, recites a tragic poem for a popsicle that melts in his hands. While the performer looks at the melting popsicle, he sings an original lament and mourns life’s impermanence. Through this simple but surreal act, the performance touches on how unsustainable our existence is and loss – how landscapes disappear and loved ones vanish.

To hold on tight, despite knowing what’s inevitable, becomes a metaphor for sorrow: tender, pointless effort to keep that which cannot be saved.

Í dag kl. 15.30 í ListasafninuFríða Katrín BessadóttirSkjöldurÓkeypis aðgangurEr hægt að flýja rætur sínar? Skjöldur er ...
11/10/2025

Í dag kl. 15.30 í Listasafninu
Fríða Katrín Bessadóttir
Skjöldur
Ókeypis aðgangur

Er hægt að flýja rætur sínar? Skjöldur er verk sem fylgir ferðalagi dóttur í leit að staðsetningu sinni í heiminum og uppgötvar að móðir hennar gekk eitt sinn svipaða leið.

Móðir, klædd í málmkjól skreyttum garnafgöngum. Hún hreyfir sig hægt og af ásettu ráði, í fylgd með þremur kórmeðlimum sem halda á mismunandi skúlptúrum. Þau hringsóla um rýmið, syngjandi. Á meðan safnar dóttirin brotum, bútum og hlutum og byrjar að móta sinn eigin skúlptúr. Þegar hún mótar sköpun sína stendur spurningin eftir: Getur maður flúið uppruna sinn, eða erum við öll, á einhvern hátt, að endurskapa fortíðina?

Fríða Katrín Bessadóttir er listakona sem vinnur á þverfaglegan hátt, en einbeitir sér að gjörningalistinni og tengslum hennar við myndlist. Verkin kanna flókið samspil veruleika og skáldskapar. Með því að endurhugsa og endurskapa þessar frásagnir ögrar hún skynjun áhorfenda, blekkir þá stundum eða skilur vísvitandi eftir eyður sem bjóða þeim að klára söguna.
-------
Is disconnecting from your root possible? Shield is a performance that follows the journey of a daughter in search of her place in the world who discovers that her mother once went on a similar journey.

A mother, dressed in metal decorated with yarn-leftovers. She moves slowly and deliberately, accompanied by three choir members who each hold different sculptures. They circle the space, singing. Meanwhile the daughter gathers scraps, pieces and things and starts to create her own sculpture. As she sculpts the question remains: can we escape our origins or are we all somehow recreating the past?

Fríða Katrín Bessadóttir is a cross-disciplinary artist who focuses on performance art and its connection with visual art. In her work she examines the complex interplay between reality and fiction. By reimagining and recreating these narratives she challenges the viewer’s perception, sometimes tricking them or leaving blanks for them to fill, to finish the story.

A! GjörningahátíðÍ dag kl. 13 í HofiEydís Rose Vilmundardóttir og Linde Hanna RongenHow Can We Break This Circle?How Can...
11/10/2025

A! Gjörningahátíð
Í dag kl. 13 í Hofi
Eydís Rose Vilmundardóttir og Linde Hanna Rongen
How Can We Break This Circle?

How Can We Break This Circle? Er skapandi rými þeirra Júlíu Kolbrúnu Sigurðardóttur og Linde Rongen sem frumsýnt var í Borgarleikhúsinu vorið 2023. Verkið er áframhald af fyrri vinnu þeirra, How Can We Make This Circle Straight? frá 2021. Markmiðið er að skapa rými þar sem áhorfendum líður vel, geta slakað á og leyft sér að vera meðvituðum á skapandi hátt á meðan fylgst er með dansgjörningi. Tveir dansarar dansa dúett á hringlaga teppi á meðan áhorfendum er boðið að teikna, mála og móta það sem fyrir augu ber. Hreyfingar dansdúettsins eru innblásnar af teikningum sem safnað hefur verið frá fyrri viðburðum.
-------
How Can We Break This Circle? is a creative space hosted by artists Júlía Kolbrún Sigurðardóttir and Linde Hanna Rongen premiered in Borgarleikhúsid in the spring of 2023. The piece is a continuation of their previous work, How Can We Make This Circle Straight? premiered in 2021. The aim is to create a creative space in which the audiences feel comfortable, can rewind and allow themselves to become creatively present during a dance performance. During the event two dancers will perform a dance duet on a circular carpet, meanwhile the audience is invited to draw, paint and sculpt what they observe. The movements of the dance duet are inspired by the drawings that have been collected from previous
events.

Hér má sjá myndir frá gjörningum gærdagsins:Sunneva Kjartansdóttir – Ögraðu mér,Ari Logn – Óður til feita líkamans,Tianj...
11/10/2025

Hér má sjá myndir frá gjörningum gærdagsins:
Sunneva Kjartansdóttir – Ögraðu mér,
Ari Logn – Óður til feita líkamans,
Tianjun Li (Timjune) – Free as Birds
og
Kjersti Austdal – The Oracle.
Takk fyrir komuna í gær!

Dagskráin heldur áfram í dag og hefst kl. 13 með gjörningi Linde Rongen og Eydísar Rose Vilmundardóttur í Hofi og lýkur með gjörningi Tjátilja sem hefst kl. 21.45. Ókeypis er inn á alla viðburði.

Dagskrá laugardagsins 11. október:

Kl. 13, Hof
Linde Rongen og Eydís Rose Vilmundardóttir
How Do We Break This Circle?
45 mínútur

Kl. 15.30, Listasafnið
Fríða Katrín Bessadóttir
Skjöldur
120 mínútur

Kl. 16.30, Listasafnið
Hildur Elísa Jónsdóttir
Harmkvæði íspinna / Popsicle’s Lament
60 mínútur

Kl. 20, Listasafnið
Alysse Bowd
Bubblegum Breaths
45 mínútur

Kl. 21.10, Listasafnið
Drengurinn Fengurinn
Alltof metnaðarfullt miðað við fjárhag
15 mínútur

Kl. 21.45, Mjólkurbúðin
Tjátiljur
Rangi Riddarinn
40 mínútur

Dagskrá A! Gjörningahátíðar í dag:Kl. 20.00Sunneva KjartansdóttirÖgraðu mérListasafnið20 mínúturKl. 20.40Ari LognÓður ti...
10/10/2025

Dagskrá A! Gjörningahátíðar í dag:

Kl. 20.00
Sunneva Kjartansdóttir
Ögraðu mér
Listasafnið
20 mínútur

Kl. 20.40
Ari Logn
Óður til feita líkamans
Mjólkurbúðin
30 mínútur

Kl. 21.30
Tianjun Li (Timjune)
Free as Birds
Listasafnið 30 mínútur

Kl. 22.20
Kjersti Austdal
The Oracle
Listasafnið 20 mínútur

A! Gjörningahátíð hófst í gærkvöldi í Deiglunni með gjörningi Árna Vil og Lísöndru Týru Jónsdóttur, Mötuð. Að honum lokn...
10/10/2025

A! Gjörningahátíð hófst í gærkvöldi í Deiglunni með gjörningi Árna Vil og Lísöndru Týru Jónsdóttur, Mötuð. Að honum loknum tóku við gjörningar Marte Dahl, Paper Cut, og Áka Frostasonar og Andro Manzoni, Takovo je Vrime, sem fram fóru í Listasafninu. Framundan er frábær dagskrá fram á sunnudag. Sjáumst á A!

A! Gjörningahátíð9.-12. október, ókeypis á alla viðburðiDrengurinn FengurinnAllt of metnaðarfullt miðað við fjárhagLauga...
08/10/2025

A! Gjörningahátíð
9.-12. október, ókeypis á alla viðburði

Drengurinn Fengurinn
Allt of metnaðarfullt miðað við fjárhag
Laugardaginn 11. október kl. 21.10
Listasafnið á Akureyri

Fyrir þá sem ekki þekkja þá eru pedalar (einnig kallaðir effektar) lítil box sem tengjast gítar á leið í magnara. Þegar pedalarnir eru orðnir margir er oft æskilegt að festa þá á bretti: pedalabretti.

„Pedalabretti eru spegill sálarinnar. Rétt eins og að klæðaburður getur verið vísbending um hvaða manngerð fólk er (eða hvaða manngerð það vill vera) er hægt að kynna sér pedalabretti fólks. Hver sem er getur lesið í útlit, skipulag, fjölda af tökkum og fleira. Þeir sem þekkja til geta lesið enn meira í manngerð og drauma eigandans.

Brettið er heiðarleg og berskjaldandi sjálfsmynd. Það krefst langra raða misgáfulegra fjárhagslegra og listrænna ákvarðana að búa til veglegt bretti. Draumurinn um rokk, ról og ríkidæmi er veggur. Með árunum og sárunum brotnar gjarnan úr honum. Þá er oft upplagt að fylla í sprungunar með einum pedala í viðbót og þá verður allt gott".
-------
For those who don‘t know them pedals (also called effects) are small boxes that connect to a guitar and then to an amplifier. When there are several pedals they should preferably be attached to a pallet: a pedalpallet.

„Pedalpallets are a mirror for the soul. Just like the right clothes can implicate what type of person one is (or the person one wants to be) people‘s pedalpallets can be examined. Anyone can read into looks, organisation, number of buttons and more. Those who are familiar with pedals can read ever further into the character and dreams of the owner.

The pallet is an honest and vulnerable identity. To create a fine pallet requires a series of not very intelligent, financial and artistic desitions to be made. The dream about rock and roll and fortune is a wall. As the years go by it wears and tears. Then it can be a good idea to mend the cracks with yet another pedal to make everything ok.

Address

Kaupvangstræti 8-12
Akureyri
600

Telephone

+3544612610

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when A - Gjörningahátíð / Performance Festival posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to A - Gjörningahátíð / Performance Festival:

Share

Category