Leikfélag Akureyrar

Leikfélag Akureyrar Leikfélag Akureyrar/Akureyri Theater Company Saga Leikfélagsins spannar nú nær heila öld, en félagið varð atvinnuleikhús árið 1973. Hamraborg og Hömrum.

Leikfélag Akureyrar er eina atvinnuleikhús landsins utan höfuðborgarsvæðisins. Það er rekið með stuðningi Akureyrarbæjar á grunni samnings við Menntamálaráðuneytið. LA sem nú er leiklistarsvið MAk hefur sitt aðal aðsetur í fallegu húsi sem stendur nærri hjarta Akureyrar , Samkomuhúsinu, sem tekur 210 manns í sæti. Samkomuhúsið er hefðbundið leikhús með sviði, upphækkuðum sal og svölum. Leiklistars

við MAk mun einnig sviðssetja verkefni sín á sviðum Hofs. Verkefnaskrá LA hefur í gegnum tíðina verið fjölbreytt, klassísk íslensk og erlend verk, ný íslensk og erlend verk, barnaleikrit og söngleikir. Leiklistarsvið MAk sviðsetur þrjár-sjö leiksýningar á eigin vegum og í samstarfi við aðra auk ótal styttri sýninga og smærri viðburða. Fjöldi nýrra íslenskra verka hefur verið frumsýndur hjá LA og listamenn leiklistarsviðs MAk vinna reglulega með listamönnum sem einbeita sér að frumsköpun. Fjöldi fastráðinna leikara er nokkuð breytilegur á milli tímabila en leikhópurinn hefur talið 4-11. Gestir MAk koma frá landinu öllu og í gegnum tíðina hefur verið vinsælt að fara í leikhúsferðir til Akureyrar til að sjá þær leiksýningar sem eru á boðstólum. Auk uppsetninga leiksýninga þá hefur Leikfélag Akureyrar rekið Leiklistarskóla LA frá árinu 2009. Leiklistarsvið MAk rekur nú leiklistarskóla LA eða LLA. Skólinn er fyrir ungt fólk í 3. - 10. bekk grunnskóla. LLA hefur nú aðsetur í Hofi. Leiklistarsvið MAk á í samstarfi við fjölda aðila, skóla og menntastofnana um námskeiðahald, uppsetningar á leikverkum og fleira. Leiklistarsvið MAk býður upp á vinnustofur með sviðslistamönnum. Markmiðið með þeim er að nota hina frábæru aðstöðu MAk til þess að laða innlent og erlent sviðslistafólk til starfa á Akureyri árið um kring. Með þessu móti stuðlar MAk að nýsköpun í sviðslistum, eykur við tengsl félagsins innanlands sem utan og treystir innviði sviðslistanna á Norðausturlandi.

30/04/2026
Sjáumst í Samkomuhúsinu næstu helgi 🥰
28/04/2026

Sjáumst í Samkomuhúsinu næstu helgi 🥰

Frumsýning í kvöld og miðar lausir á mak.is
25/04/2026

Frumsýning í kvöld og miðar lausir á mak.is

Árni og Hreiðar frá Gonzo.creation kíktu í heimsókn á æfingar hjá Handbendi í Samkomuhúsinu

23/04/2026
23/04/2026
16/04/2026

Kíktu með fjölskyldunni í leikhús 🎭

Í dag hittust tveir mætir menn. Eða eiginlega mætur maður og hress strákur. Bergur Þór Ingólfsson, leikhússtjóri Leikfél...
15/04/2026

Í dag hittust tveir mætir menn. Eða eiginlega mætur maður og hress strákur. Bergur Þór Ingólfsson, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, kíkti á æfingu í Reykjavík og hitti þar hann Óla, aðalpersónu nýja leikritsins Rót, og fór vel á með þeim félögum. Óli sagðist hlakka til að frumsýna nýja leikritið sitt fyrir hjá norðan hjá Bergi eftir nokkra daga!

***

Today, two distinguished individuals met for the first time. Bergur Þór Ingólfsson, director of Akureyri Theatre Company, met Óli, the main character in our new play Rót. They had a good, friendly chat and Óli told Bergur he was excited to premiere his new play up in Akureyri in a few days!

Þjóðleikhúsið Listahátíð í Reykjavík / Reykjavik Arts Festival

Sögur, verðlaunahátíð barnanna er vettvangur þar sem öll börn á aldrinum 6–16 ára geta kosið það sem þeim finnst hafa sk...
15/04/2026

Sögur, verðlaunahátíð barnanna er vettvangur þar sem öll börn á aldrinum 6–16 ára geta kosið það sem þeim finnst hafa skarað fram úr á sviði barnamenningar á síðasta ári. Leyndardómar leikhússins sem sló í gegn meðal skólabarna á Akureyri nú á vordögum er þar á meðal. Hægt er að fara á kosningaslóðina í fyrstu ummælum.

Söngur, gleði, ævintýri og 1995 sameinast í þessari fallegu sýningu sem er á leið í Samkomuhúsið
14/04/2026

Söngur, gleði, ævintýri og 1995 sameinast í þessari fallegu sýningu sem er á leið í Samkomuhúsið

Rót er ljóðræn brúðuleiksýning fyrir alla fjölskylduna eftir leikhópinn Handbendi. Umfjöllunarefnið er hvernig það er að alast upp milli menningarheima, en

12/04/2026

Birtíngur og föruneyti kvöddu Samkomuhúsið í gær við standandi lófaklapp. Þessi kraftmikli söngleikur hlaut einróma lof áhorfenda á sýningartímanum og er kvaddur með söknuði. Næsta verkefni Leikfélagsins er gestasýningin Rót. https://www.mak.is/is/vidburdir/rot

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og maður hennar Björn Skúlason mættu á næstsíðustu sýningu leikfélagsins á Birtíngi. ...
11/04/2026

Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og maður hennar Björn Skúlason mættu á næstsíðustu sýningu leikfélagsins á Birtíngi. Þorgeir Baldursson náði mynd af þeim ásamt aðstandendum leikritsins á sviði Samkomuhússins í lok sýningar. Lokasýning er í kvöld, laugardag 11. apríl kl. 20. Hægt er að tryggja sér miða á mak.is

Address

Hafnarstræti 57
Akureyri
600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leikfélag Akureyrar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Leikfélag Akureyrar:

Share