Örn Ingi - Arnarauga

Örn Ingi - Arnarauga Örn Ingi Gíslason (1945 - 2017) var myndlistamaður, myndlistarkennari og útvarpsmaður frá Akureyri

Þeir sem hafa áhuga á að kaupa verk eftir Örn Inga vinsamlega hafið samband í gegnum netfangið: [email protected]

Örn Ingi var leitandi í eðli sínu og forvitinn, minnst í tilefni dagsins þegar þegar þjóðin kýs um hvort eigi að taka up...
29/08/2026

Örn Ingi var leitandi í eðli sínu og forvitinn, minnst í tilefni dagsins þegar þegar þjóðin kýs um hvort eigi að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju.
Gjörningar sem tjáningarform myndlistar var lítt þekkt listform á Akureyri þegar hann framdi þá á Akureyri og í Reykjavík árið 1979.
Innihaldið sagði hann „oftast ádeila á það sem að mínu áliti fer miður í þjóðfélaginu og þá geri ég helst grín að því, svo fólk fælist ekki frá þessu vegna veikinda. Menn mega gjarnan hlæja á gjörningum, eða hugsa ekki neitt á meðan, en hugsa síðan um þá eftir á.“ (Úr bókinni Lífið er LEIK-fimi (SanAr 2019)

Að veita lífinu eftirtekt, hversu smátt það er í sniðum, fínlegt og viðkvæmt, var eitt einkenna Arnar Inga sem listamann...
22/08/2026

Að veita lífinu eftirtekt, hversu smátt það er í sniðum, fínlegt og viðkvæmt, var eitt einkenna Arnar Inga sem listamanns. Hann bjó jafnvel til ramma sérstaklega fyrir lífskornið, teiknað árið 1983, virt fyrir sér í fjarlægð.
Spurning dagsins gæti verið á þá leið að velta fyrir sér af hverju strá brotna ekki svo auðveldlega í vindinum?"

Þessi ljósmynd er komin til grunnskólans í Vestmannaeyjum. Skólinn valdi myndverkið þegar þeim var boðið verk að gjöf í ...
14/08/2026

Þessi ljósmynd er komin til grunnskólans í Vestmannaeyjum. Skólinn valdi myndverkið þegar þeim var boðið verk að gjöf í tilefni áttræðisafmælis listamannsins. Nú er það spurningin til nemenda:
Er slíkt kofahreysi í Vestmannaeyjum?
Ef ekki, af hverju?
Hvað með allan rekaviðinn?
Er hann í Vestmannaeyjum?
Myndlist er farvegur fyrir ólíkar samfélagsgreinar og raunvísindi!

Þessar litlu ófullgerðu myndir fundust á vinnustofu listamannsins. Það má leika sér að því að "fylla upp í eyðurnar" og ...
08/08/2026

Þessar litlu ófullgerðu myndir fundust á vinnustofu listamannsins. Það má leika sér að því að "fylla upp í eyðurnar" og spyrja sig við hvað má bæta. Athyglisvert að skoða jafnvægið í myndunum gagnvart landi og jörð; litasamsetningu og áferð/mýkt.
Þekkjum við landslagið, árstímann? Eru veðrabrigði í aðsigi?

Það er eitthvað segir dregur mann að þessu verki. Augað þræðir línurnar á meðan hugleitt er. Hvert?
01/08/2026

Það er eitthvað segir dregur mann að þessu verki. Augað þræðir línurnar á meðan hugleitt er. Hvert?

Það er gaman hversu arfleið listamannsins er lifandi. Fréttir berast iðulega. Nú fyrir nokkrum dögum fékk ég senda ljósm...
25/07/2026

Það er gaman hversu arfleið listamannsins er lifandi. Fréttir berast iðulega. Nú fyrir nokkrum dögum fékk ég senda ljósmynd af olíumálverki af námaskarði frá 1979. Verkið var gefið í tilefni fimmtugsafmælis Björns á Laxamýri í Aðaldal.
Kærar þakkir, myndin verður nú skrásett í gagnagrunn listamannsins!
Nú rétt í þessu fékk ég skýrari mynd af skildinum, sjá hér að neðan!

Í dag er Nelson Mandela minnst á fæðingardegi hans 18. júlí og gerum við það með verkinu Sálfarir. Fiðlan hefur misst sá...
18/07/2026

Í dag er Nelson Mandela minnst á fæðingardegi hans 18. júlí og gerum við það með verkinu Sálfarir. Fiðlan hefur misst sálina sína og kemur fiðrildið í hennar stað með tákn sitt um von, styrk og hugrekki.

Sálfarir. 1992
Blönduð tækni
56x36x:4

Fyrstu þreifingar listamannsins í keramik voru í kringum 2008, stundum á mörkum listar og nytjahlutar.
11/07/2026

Fyrstu þreifingar listamannsins í keramik voru í kringum 2008, stundum á mörkum listar og nytjahlutar.

Nytjahlutir eru margir sem og tæknin til að búa þá til. Hér var listamaðurinn að þreifa sig áfram í mósaík í kringum 197...
04/07/2026

Nytjahlutir eru margir sem og tæknin til að búa þá til. Hér var listamaðurinn að þreifa sig áfram í mósaík í kringum 1970. Á ferð sinni til Ítalíu árið 1992 heillaðist hann af kirkjum landsins skreyttum mósaík myndum á hliðum. Hann langaði að reyna fyrir sér aftur og þá með smærri steina en hann hafði áður gert. Þær tilraunir bíða annarri kynslóð.

Fegurð í lífrænum formum verður að nytjahlut í höndum listamannsins.
27/06/2026

Fegurð í lífrænum formum verður að nytjahlut í höndum listamannsins.

Address

Akureyri
600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Örn Ingi - Arnarauga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Örn Ingi - Arnarauga:

Shortcuts

Share

Category