Braggaparkið

Braggaparkið Innanhússaðstaða á Akureyri fyrir hjólabretti, línuskauta, hlaupahjól og BMX-hjól. Seinni hlutinn var opnaður í janúar 2021. Virkar eingöngu milli kl. 14/12-19.

„Ég ákvað bara að fara í þetta sjálfur“

Draumur brettakappans Eiríks Helgasonar um innanhússaðstöðu fyrir hjólabretti, línuskauta, hlaupahjól og BMX-hjól varð að veruleika 25. maí árið 2020, þegar Braggaparkið var formlega opnað á Akureyri. Þessi hugmynd var búin að vera Eiríki lengi hugleikin og árið 2019 fann hann loksins hentugt húsnæði í gömlu bröggunum við Laufásgötu, sem áður hýstu stálsmið

ju til margra ára. Ekki leið á löngu þar til Eiríkur og félagar hans hófu að hanna aðstöðuna. Árið 2020 hófst smíðavinna á fyrri helmingi verkefnisins og var sá hluti opnaður í maí. Einn eða fleiri starfsmenn eru alltaf í húsinu milli kl. 12-19:
Eiríkur Helgason - Eigandi
Haraldur Jónsson - Starfsmaður
Þorgils Sigurðsson - Starfsmaður
Brynjar Helgason - Starfsmaður
Almar Alfreðsson - Markaðs- og kynningarmál

Bent skal á að í húsinu eru öflugar öryggismyndavélar í gangi allan sólarhringinn. VERÐSKRÁ
Dagskort og fleira - Selt á staðnum
1 dagur 1.000 kr.
10 daga klippikort 8.000 kr.
*Leyfilegt er að fara og koma aftur. ATHUGIÐ
Enginn posi er á staðnum en hægt er að greiða með pening, millifæra eða greiða með Aur. Eiki Helgason ehf. Kt. 650609-0260
Rn. 0565-26-650609
Aur. 847-8598

Mánaðarkort - Selt í gegnum https://braggaparkid.is
Fullorðinn 10.000 kr. Barn 8.000 kr. Hálfsárskort - Selt í gegnum https://braggaparkid.is
Fullorðinn 30.000 kr. Barn 20.000 kr.

Árskort - Selt í gegnum https://braggaparkid.is
Fullorðinn 50.000 kr. Barn 35.000 kr.

*Fullorðinskortin (16+) virka allan sólarhringinn alla daga.
*Barnakortin virka eingöngu milli kl. 14/12-19 alla daga. HÚSREGLUR
· Áfengi, tóbak og önnur fíkniefni eru ekki leyfð í húsinu.
· Öll meðferð elds er stranglega bönnuð.
· Hjálmaskylda fyrir yngri en 16 ára og mælt er með að eldri noti slíkan búnað líka.
· Öll skemmdarverk af ásettu ráði verða kærð til lögreglu.
· Ekki má opna fyrir fólki á kvöldin sem ekki hefur fullorðinskort eða sérstakt leyfi.
· Virða skal alla sem nýta aðstöðuna. Stríðni og einelti verða ekki liðin.
· Aðstaðan er aðeins ætluð hjólabrettum, hlaupahjólum, línuskautum og BMX-hjólum.
· BMX-hjól verða að hafa park friendly plast pegs.
· Bannað er að nota vax í aðstöðunni. Einungis starfsmenn hafa leyfi til þess.
· Bannað er að vera einn í húsinu eftir almennan opnunartíma.
· Ekki skal hafa opna drykki eða mat inn á svæðinu.
· Vinsamlegast ekki sitja á pöllunum. Notið heldur setustofuna.
· Engan hávaða fyrir utan húsið eftir kl. 22.00.
· Tónlist á ekki að spila hærra en með 50% hljóðstyrks.
· Ávallt skal fara varlega og einungis fara þær leiðir sem hæfa getu viðkomandi.
· Passa skal að aðeins einn renni sér í einu í hvorum salnum til að koma í veg fyrir árekstra.
· Aldrei má skilja eftir hjólabretti, hlaupahjól, BMX-hjól, línuskauta, föt, drykki, mat eða annað lauslegt inni á svæðinu
· Bannað er að fara inn á svæðið á blautum eða skítugum skóm.
· Setustofan er ekki til að leika sér á hjólabretti, hlaupahjólum, línuskautum eða BMX-hjólum.
· Halda skal röðinni og bannað að riðjast fram fyrir (“Snake’a”)
· Hér eiga allir að henda ruslinu eftir sig í ruslafötur og láta tómar flöskur í flöskupoka þegar farið er heim.

*Birt með fyrirvara um breytingar

Sjáumst í kvöld frá kl. 20-22. Lánsbretti á staðnum. Tilvalið fyrir fyrir þau sem vilja prófa eitthvað nýtt eða rifja up...
02/09/2026

Sjáumst í kvöld frá kl. 20-22. Lánsbretti á staðnum. Tilvalið fyrir fyrir þau sem vilja prófa eitthvað nýtt eða rifja upp gamla takta. Viðburðurinn er styrktur af Birtu CBD og Sjoppunni vöruhúsi.

Á morgun er fyrsti miðvikudagur í mánuðinum og það þýðir hjólabrettahittingur með leiðbeinendum (18+) frá kl. 20-22. Til...
01/09/2026

Á morgun er fyrsti miðvikudagur í mánuðinum og það þýðir hjólabrettahittingur með leiðbeinendum (18+) frá kl. 20-22. Tilvalið tækifæri til að prófa eitthvað nýtt, rifja upp gamla takta eða hitta skemmtilegt fólk með sama áhugamál. Lánsbretti á staðnum. Viðburðurinn er styrktur af Birtu CBD og sjoppunni vöruhúsi

Vikulegur hittingur Old skate hópsins er í kvöld frá kl. 20-22 í Braggaparkinu. Viðburðurinn er opin öllum sem náð hafa ...
26/08/2026

Vikulegur hittingur Old skate hópsins er í kvöld frá kl. 20-22 í Braggaparkinu. Viðburðurinn er opin öllum sem náð hafa 18 ára aldri.

Tilvalið fyrir þau sem vilja prófa eitthvað nýtt eða rifja upp gamla takta. Mælt er með því að þátttakendur komi með sitt eigið hjólabretti en möguleiki er á að fá lánsbretti. Mikilvægt er að mæta í góðum strigaskóm.

Athugið: Enginn sérstakur leiðbeinandi er þetta kvöld en stjórnendur geta aðstoðað ef þarf.

Styrktaraðilar eru Birta CBD og Sjoppan vöruhús.

Vonumst til að sjá sem flest í kvöld frá kl. 20-22. Lánsbretti á staðnum. Viðburðurinn er styrktur af Birta CBD og Sjopp...
19/08/2026

Vonumst til að sjá sem flest í kvöld frá kl. 20-22. Lánsbretti á staðnum.

Viðburðurinn er styrktur af Birta CBD og Sjoppunni vöruhúsi

Það var aldeilis fjör síðasta miðvikudag á Old Skate hittingnum. Tveir ungir og upprennandi fengu leyfi til að taka þátt...
18/08/2026

Það var aldeilis fjör síðasta miðvikudag á Old Skate hittingnum. Tveir ungir og upprennandi fengu leyfi til að taka þátt en aldurstakmark er vanalega 18+. Vonumst til að sjá sem flest annað kvöld frá kl. 20-22. Lánsbretti á staðnum og 1.000 kr. inn fyrir þau sem ekki eiga aðgangskort.
Viðburðurinn er styrktur af Birtu CBD og Sjoppunni vöruhúsi.

Address

Laufásgata 1
Akureyri
600

Opening Hours

Monday 14:00 - 19:00
Tuesday 14:00 - 19:00
Wednesday 14:00 - 19:00
Thursday 14:00 - 19:00
Friday 14:00 - 19:00
Saturday 12:00 - 17:00
Sunday 12:00 - 17:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Braggaparkið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Establishment

Send a message to Braggaparkið:

Shortcuts

Share