22/06/2026
Eru þið með hugmyndir af atriðum, listsmiðjum og skapandi verkefnum, tónlist, dansi og sviðslistum eða bara öllu öðru sem gleður, kveikir forvitni og virkjar sköpun barna og ungmenna?
Nú er opið fyrir umsóknir og hugmyndir á Barnó – BEST MEST VEST! Barnamenningarhátíð Vesturlands 2026.😍
Hátíðin fer fram í október 2026 en dagana 22okt-1nóv erum við einmitt að halda uppá menningarhátíðina okkar Vökudaga og því kjörið tækifæri til þess að láta þetta vinna fallega saman.
Við hvetjum einstaklinga, listafólk, hópa, félagasamtök, skóla, stofnanir og aðra skapandi aðila á Akranesi til að senda inn hugmyndir að spennandi atriðum, viðburðum og skapandi verkefnum fyrir börn og ungmenni á aldrinum 0–18 ára.💜
Nú er opið fyrir umsóknir og hugmyndir á Barnó – BEST MEST VEST! 2026 Barnó er sameiginleg barnamenningarhátíð Vesturlands þar sem börn og ungmenni fá að njóta, skapa og taka þátt í fjölbreyttu menningarlífi um allt Vesturland. Hátíðin fer fram í október 2026 og nú leitum ...