07/05/2026
Sigrún Hjálmtýsdóttir eða Diddú er ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar. Hún stígur á svið í Menningarhúsinu Tjarnarborg föstudaginn 26. júní nk. kl. 20 og heilsar norðanfólki og öðrum gestum án efa með hlýju og einstökum nærverukrafti. Fáir íslenskir listamenn hafa náð jafn djúpri tengingu við þjóðina og Diddú. Með söng sínum hefur hún snert hjörtu landsmanna allt frá popplögum sem nutu gríðarlegra vinsælda, á borð við Tunglið, tunglið taktu mig, til stórbrotinna hlutverka á sviði Íslensku óperunnar. Á síðasta ári fagnaði hún 70 ára afmæli sínu með glæsilegum tónleikum í Eldborg og stendur enn í fullum blóma sem einn af okkar fremstu listamönnum. Ferill Diddúar ber vitni um áræðni, styrk og óbilandi eldmóð, ásamt þeirri sjaldgæfu náðargáfu að laða nýja hlustendur að sígildri tónlist og gera hana aðgengilega með faglegri næmni og hjartahlýju listarinnar.
Sigrún Hjálmtýsdóttir or Diddú is one of the nation's most beloved singers, taking to the stage at the Tjarnarborg Cultural Center on Friday, June 26th, greeting northerners, guests and good listeners with her art, warmth and unique presence. Few Icelandic artists have achieved such a deep connection with the nation as Diddú. With her singing, she has touched the hearts of the nation, from pop songs that enjoyed immense popularity, such as Tunglið, tunglið taktu mig, to magnificent roles on the stage of the Icelandic Opera. Last year, she celebrated her 70th birthday with a magnificent concert in Eldborg and is still in full bloom as one of our leading artists. Diddú's career is a testament to her boldness, strength and unwavering enthusiasm, along with the rare gift of attracting new listeners to classic music and making it accessible with professional sensitivity and the warmth of art.